Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1959, Síða 63

Andvari - 01.10.1959, Síða 63
ÁNDVAHI IIINRIK VIII. OG ÍSLAND 173 öld flyzt einungis 31% af innflutningi til Lundúnaborgar með enskum skipurn. Um 1520 hefur utanríkisverzlun lands- ins fjórfaldazt, en þá kemur um 41% af innflutningi höfuðborgarinnar á inn- lendum skipum, enn þá eru um 59% í höndum útlendinga. II. Þegar Uinrik VIII. tók völd 22. apríl 1509, var Englendingum bannað að sigla til Islands lögum samkvæmt, en frjálst í framkvæmd. Þá höfðu enskir sæ- farar stundað siglingar hingað norður í hundrað ár rétt, eftir því sem næst verður komizt, og oftast í heimildarleysi. Vorið 1408 eða 1409 hafa enskir fiskimenn í fyrsta sinn séð ísland rísa úr hafi.1) Á næstu árum löðuðu auðug fiskimið við strendur landsins fjölda skipa „til hinna köldu stranda". Þessar siglingar voru brot á verzlunarréttindum Björgvinjarkaup- manna, sem höfðu einkarétt til verzlunar við skattlönd norska ríkisins,2) og Islend- ingar voru lítt hrifnir af erlendum sjó- mönnum á fiskimiðum við landið. Árið 1413 bannar Eiríkur Danakonungur af Pommern íslendingum að verzla við erlenda kaupmenn, sem þeir væru ekki vanir að kaupslaga með.3) Slík bönn voru um þær mundir út í bláinn, því að Danir voru ekkert flotaveldi og um- boðsstjórnin á Islandi umkomulítil til stórræða. Konungur varð því að neyta annarra bragða til þess að stöðva þann leka, sem kominn var á skatt- og toll- heimtu hans á íslandi. Þegar Hinrik V. kom heim að unnurn frægum sigri við Agincourt, biðu hans í Lundúnum sendi- menn norsku krúnunnar og kærðu ný- uppteknar, löglausar fiskveiðar og verzl- un Englendinga við ísland og aðrar fisk- veiðieyjar Noregskonungs.4) Þar með hófust deilur um fiskveiðirétt við ísland, og þeim er ekki lokið enn í dag. Hinrik VIII. varð tilhlýðilega við kærum frænda síns og bannaði Englendingum að sigla til íslands í citt ár „nema samkvæmt fornri venju“ (aliter quam antiquitus fieri consuevit). Þetta bann var tilkynnt í enskum hafnarborgum, en því var sam- stundis mótmælt kröftuglega af neðri málstofu enska þingsins.5) Stjórnin virð- ist ekkert hafa gert til þess að frarn- fylgja banninu næsta ár, enda mun ensk sigling til Islands hafa farið stöðugt vax- andi. Islenzkir annálar herma, að árið 1419 hafi 25 ensk skip farizt við Island í ofviðri á skírdag,8) en annars er fátt vitað um enskan skipafjölda á Islands- miðum á 15. öld; helzt mætti ætla, að þau hafi oft verið um 100. Fiskur var aðalútflutningsvara Islend- inga um þessar mundir eins og jafnan síðan, en fyrir íslenzka skreið hafði aldrei verið mjög góður markaður í Björgvin, því að Norðmenn veiddu gnægð af fiski sjálfir. Við komu Eng- lendinga opnaðist íslendingum nýr og betri markaður fyrir fisk, því að þeir buðu um helmingi betra verð en Norð- menn höfðu gert.7) Englendingar boluðu því Norðmönnum frá verzlun við íslend- inga á fáum árum. Hin aldagömlu við- skiptabönd þessara landa rofnuðu og urðu ekki hnýtt aftur um nokkrar aldir.8) íslendingar fögnuðu frá upphafi kaup- siglingu Englendinga, en börðust gegn fiskveiðum þeirra á ýmsan hátt.°) Á al- þingi reyndu íslenzk stjórnarvöld að skipuleggja athafnir þeirra með lögum og leyfisveitingum,10) en konungsvaldið og Björgvinjarkaupmenn gripu fram fyrir hendur þeim. Nýr hirðstjóri, Hannes Pálsson, var sendur til íslands og þýzkur verzlunarerindreki.11) Þeir félagar riftuðu tilskipunum Islendinga, sviptu menn embættum og reyndu að skera upp herör gegn Englendingum.12) Árið 1425 ítrek- aði Danakonungur bannið við siglingum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.