Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1951, Side 43

Andvari - 01.01.1951, Side 43
ANDVARI Stefnt að höfundi Njálu 39 hvað veldur þeirri umsögn í Ljósvetninga sögu, þegar ráð er fyrir því gert, að af frændum Veisufóstbræðra sé enginn líklegur til þess að veita þeim fulltingi gegn Eyjólfi lialta, nema Hrafn í Lundarbrekku. A Ljárskógafundinum reynist svo Vigfús sam- huga Snorrunum: „Þóttust þeir skilja að engi varð uppgangur þeirra ef svo búið stæði ríki Hrafns.“ Nokkru eftir Ljárskógafundinn lét Sturla Þórðarson til leið- ast að ríða að Hrafni Oddssyni með þeim nöfnum „en Vigfús dró sig úr atferð, er að kom. Snorri mælti við föður sinn, kvaðst þeim illa trúa er hjá sátu, en ekki vildu halda af viðræðu þeirra. Sturla mælti: „Eigi mun oss mein verða að Vigfúsi, en sakir vina Hrafns, munum við fara leynilega um Dali .... Riðu þá suður um heiði og námu staðar í skógunum ofan frá Grísar- tungu. Þeir sendu mann ofan til Norðurár, að vita hvort áin væri reið, því að vatnavextir voru miklir, eða hvort Hrafn væri heima að Stafholfi- Kom aftur sendimaður þeirra og segir, að áin væri óreið. Snéru þeir þá ofan með Norðurá og út á Mýrar. Hrafni gekk njósn vestan úr Dölum. Og nokkru síðar konr Snorri Markússon, sendur af Vigfúsi til Hrafns með njósn, og þótti Hrafni sem Vigfús myndi mátt hafa þessa ferð látið verða skjótari, ef hann hefði öruggur í verið.“ Samkvæmt þessari frásögn lætur Vigfús Gunnsteinsson sér ekki nægja að svíkja Snorra Sturluson um liðveizlu, heldur sendir hann aðvaranir til Hrafns Oddssonar um yfirvofandi hættu. En gætum nú vel að. Það er látið í veðri vaka, að Vigfús sendi Idrafni boðin svo seint, að þau trauðlega gætu orðið hon- uni að nokkru gagni, enda hafði Hrai’ni borizt vitneskja um at- förina áður en sendimaður Vigfúss kom á hans fund. „Eigi mun °kkur mein verða að Vigfúsi,“ segir hinn forvitri Sturla. Hann þekkir vel Vigfús og veit að bonum er ósárt um það, þótt at- förin bæri tilætlaðan árangur. En Vigfús hefir þegar tekið þátt f fjandsamlegum ráðagerðum gegn Hrafni, sem bann þó er van- ó'úaður á að heppnist. Hann óttast því afarkosti af Hrafns hendi, ef Sturla og Snorrarnir verða undir í átökunum. Þess vegna sendir

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.