Stúdentablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 21
h
STBL. • Desember 1994
M E N N I N G
_________ i
Bls. 21
Fékk stráxi rembinxkoss frá Jaxon í ruglinx-
legri einstaklingxíbúð í Kópavoxkaupstað?
Fylxtu með viðfanxefni x-orðfræða
Um þessi jól er að koma út athyglisverð bók um stílfræði. í gegnum tíðina hefur
verið deilt hart um stíl og stafsetningu íslensks máls. Frægasta dæmið er vafalítið
Halldór Laxness sem skrifaði með sínu eigin nefi og skeytti engu boð eða bönn.
Annað dæmi er Mogginn sem streitist við að skrifa Reykjavíkurbréf og leiðara
með zetunni. Fræðimennimir Hjálmar Skarphéðinson, Kristján Bjamason,
Freyr Frostason, Teitur Atlason og Helgi Amarson hafa ásamt fjölda annara
valinkunnra stílfræðinga lengi barist fyrir því að ýmis orð úr móðurmálinu
verði skrifúð með x-i, þar sem því er við komið. Hvað sem segja má um rétt-
læti þeirrar kröfú, fylgja nokkur x-orð hér á eftir forvitnum lesendum til á-
nægju og yndisauka. Hvort menn taka upp þessa stafsetningu til brúx (og
svixöm og gaxlaus vanræxla upphefst) er mönnum í sjálfsvald sett enda
smexatriði. Kannski munu málvemdunarmenn löxækja Stúdentablaðið
fyrir vikið. Spyrjum að leixlokum.
s
&
CÖ
X
3
+j
<u
(fí
verölaxþróun
Toxtreita og framtaxleysi Sigga
Dax á unlinxárum olli hneyxli
meðal Fáxfélagxins og annars
klunnalex fólx af Berxætt
Hrafn Gunnlauxon lenti í árextri enda
með hixta. Marxkonar verxumerki voru
laxkór, húðflyxa og rafmaxgítar
Floxbundin. Slaxíða. Óska þér gleðilex árs. Eyxt. Þjóðfélaxhópur. Text ekki.
Kópavxkaupstaður. Þorláxhöfn. Telex. Busavíxla. Harpix. Ku Klux Klan.
Kalxtöðvar. Ryxuga. Flaxtöng. Eiríxjökull. Þorláxmessa. Xenon. Félaxmál.
Ríkissaxóknari. Isaxkóli. Boston Seltix. Rexkógur. Bettínó Craxi. Alvarlex
eðlis. Axtur. Mexíkó. Kexverxmiðjan. Gauxklukka. Lexteinn. Reyxkynj-
ari. Bloxúkkulaði. Drauxi. Koníaxflaska. Laxerolía. Marxkonar. Raxpíri.
Rixjaw. Karl Marx. Leixvið. Moxtur. Hrinxtigi. Hexía da trix. Þynxli.
Loxins. Loxuðutæki. Vanræxla. Auxkuggi. Hixti. Hauxíjöður. Skipu-
lax. Fjöldi fólx. Koxa. Þaxkegg. Hjartaslaxtilfelli. Tóxt. Verxumerki.
Haxkælingar. Smexatriði. Tópaxpungur. Húðflyxa. Miðbaux. í lenxtu
lög. Til tax. Verðlaxþróun. Taxti. Laxkór. Kónxi. Stráxi. Axminster.
Daxetning. Flaxtöng. Huxa. Baxtra. Jólabaxtur. ívar Hauxon. Gagnx-
emi. Gaxlaus. Fluxlys. Vanræxla. Slaxmál. Hrafn Gunnlauxon.
Lauxúpa. Marex. Flexnes. Bræðralax. Foxvoxkirkjugarður. Leixkóli.
Nixon. Pondexter. Fluxund. Arextur. Króxi. Durex. í nafúi heilax anda.
Innanfloxmót. Handknattleixamband Islands. Flugfélax. Mistóxt. Brúx.
Félaxmella. Kappaxtur. Breiðablixmenn. Svixamur. Vaxtjóri. Soxkálar.
Floxtjóri. Axturslag. Marxkonar. Rafmaxgítar. Nærbuxnastöng. Micael
Jaxon. Snúníxbolti. Laugavexapótek. Fluxkóli. Landslaxmynd. Hann raxt í.
Vanræxla. Konunxonur. Ýsuflaxomiur. Samninxbrot.
Háteixvegur. Stinninxkaldi. Til vex og virðingar. Mannlex eðlis. Fróð-
lexmoli. Sigtryxon. Útflutninxfyrirtæki. Þú féxt gjöf. Kostulex. Glæfraleixför.
Kúxop. Verxtjóri. Andlaxfall. Fáxfélagar. Berxætt. Skuxjá. Daxtofa. Bræðralax-
band. Blixmíðaverxmiðja. Einstaklinxíbúð. Hryllinxmynd. Annars stix jafna. Lextu
niður. Hvað hyxtu fyrir? Snjómoxtur. Hneyxli. Vaxtjóri. Verxtæði. Dróxt lengi. Norex-
konungur. Staxt í hafið. Oxvo? Éxkal. Kærleix. Víxtöðvar. Vinninxhafi. Líxkoðun. Vaxta-
rækt. Handlexbrot. Eyðilext. London dox. Lámarxneysla. Árangursríx. Almenninxalemi.
Löxækja. Yxna. Affaxtur. Afrexmaður. Rexkúr. Klunnalex. Innanstoxmunir. Marxlungin.
Fylxtu með. Höxtokkur. Toxreita. Framtaxleysi. Siggi Dax. Laxeringar. Tampax. Innlexnóta.
Unglinxár. Helminxhluti. í hendinxkasti. Innlyxa. Hexistingur (útsaumur). Hexameter
(bragarháttur). Til Eiríx Hauxonar. Alveg daxatt. Fólxbíll. Bókaforlaxbók. For-
gangxmaður. Vegna lélex frágánx. Felix Berxon. Fylxni. Lex-sokkabuxur.
Dennslax. Þesslax. Drenxkapur. Lína Lánxokkur. Kærleixbimimir. At-
vixorð. Atvixliður. Viðurlaxliður. Voxós. Frumlaxígildi. Floxmaður
Alþýðubandalax. Listi Bandalax jafnaðarmanna. Xerex (kon-
ungur). Löxkráður. Ganxetning. Berxtaðastræti.
,nú°
inx
Er þér alvexama
Hvað hyxt Blixm
um andlaxfallið?
ðja Eiríx Hauxonar ger
Selvoxgmnnur. Stexhólar. Apótexútibú. Kvennfélaxhúsið. Sönxkólinn í Reykjavík. Stoxeyri. Skrif-
stofa borgarverxffæðings. Sjúkrasamlaxkýrteini. Fólxvagen. Xanadu (kvikmynd). Bánxi. Kixa. Haxtætt.
Franx og jóa-bók. Öfuxnúin. Til snax og ráðagerða. Loftbelxhitari. Elxhom. Norextrönd.
Vexpjald. Kaupfélaxtjóri. Félaxkítur. Axjón karl. Flaxkerari. Hann gékk til sjúx manns. Hann
skóxér við Ultravox. Til loðins skex. Lanxamlega best. Ganxtétt. Önxtræti. Sextuxafmæali.
Umfanxmikið. Sannleixkom. Skáxambands. Svixkíði. Stöxkíði. Lánxum. Án ásetninx. Dax-
brún. Alvexama. Sveixt mig. Vexemd. Staxteinar. Flauxtu á hausinn? Útvexbankinn.
Leixlok. Flauta til leix. Röxemi. Flækinxhundur. Þvaxýni. Kalxteinar. Röxemdafærsla.
Aðstoð túlx. Bóxtaflega. Umfánxmikið. Vegna misgánix. Huxýki. Hryxkekkja.
Ruglinxlegt. Ágreininxefni. Loftlaxbreytingar. Lenxt í burtu. Túnxljós. Viðfanx-
efni. Rembinxkoss. Bóxtafúr. Ránxtaða. Þrýstinxmælir. Kalxvik. Kúp-
linxdiskur. Suxamur. Púnxviti. Fluxamgöngur. Laxaexi. Fómarlamb
fylleríismglx. Fómarlamb böx. Hunanxfluga. Slux. Hombjarxviti. Fé-
laxmótun. Laxkipting. Konunxriki. Tilganxleysi. Leixlok.
Hrópandinn í eyðimörk Háskólans
Á veggjum Háskólans hanga alls kyns blöð og sneplar, yfirleitt misómerkilegt auglýsingaskrum og
pólitískur áróður. Á því finnast gleðilegar undantekningar eins og þessi skilaboð frá Haraldi Ing-
ólfssyni, heimspekinema, sem notar auglýsingatöflur skólans til þess að opinbera skoðanir sínar.
Haraldur er sannkallaður hrópandi í eyðimörk skoðanaleysis meðal stúdenta eins og meðfylgjandi
pistill sem útsendari Stbl. fann á vegg um daginn. Við birtum hér hróp Haraldar í heild sinni af
virðingu við framtakiö:
ÉG MÓTMÆLI...
. . .reykingabanninu! Ávinningurinn er enginn, ókostirnir margir. Eigum við að skjálfa þegjandi,
reykingafólk, eða eigum við að gera eitthvað ( okkar málum?
. . .tlmasetningunni á opnun Þjóðarbókhlöðunnar! Eru e.t.v. að koma kosningar?
. . .niðurskurði! Uppskurður hefur ætíð skilað betri árangri.
. . .kaffibollum sem leggja land undir fót! Þurfið þið endilega að skilja kaffibollana eftir út um
allar trissur?
. . .verði á áfengi! (Bara. . .)
. . .aulahúmor! (Hjá öðrum en mér).
. . .sukkferðum til útlanda! Af því þær eru of algengar hjá öðrum en mér.
ÉG LEGG TIL...
. . .að fólk opinberi skoðanir sfnar á auglýsingatöflum skólans. Það er eitthvað svo yndislega
flott. Fylgið fordæmi m(nu I stað þess að fordæma það. Ég legg einnig til að sett verði upp sér-
stök „skoðanatafla".
. . .að háskólaráð svari bréfum og erindum sem fyrir ráðið eru lögð. Ég sendi bréf um reykingar
til háskólaráðs þann 6. okt. síðastliðinn en hef hvorki heyrt hósta né stunu síðan. Að vísu gerðist
það fyrir fáeinum dögum eftir að ég sendi bréfið, þar sem ég benti m.a. á sóðaskapinn, að rusla-
fötum var komið upp á samkomustöðum reykingafólks! Brjálað að gera, ha?
. . .að allri þjóðinni verði boðið á opnunarhátíð Þjóðarbókhlöðunnar. Ekki aðeins fáum útvöldum.
. . .að bannað verði að borða samlokur f byggingum Háskólans. Imyndið ykkur fegurðina f því að
dreifa samlokupokum um tröppur og stéttir.
■ - .að sem flestir nemendur láti sækja fyrir sig bækur f Þjóðarbókhlöðuna. Sýnum fram á fárán-
leika þess að flytja f nóvember og desember.
Auk þess legg ég til að reykingar verði leyfðar innanhúss í Háskóla íslands!
Haraldur Ingólfsson, heimspekinemi.
Stúdentablaðið fagnar þessu framtaki með lúðrablæstri og húrrahrópum. Loksins stúdent sem lætur sig fram-
faramál þjóðarinnar varða og stingur á kýlum samfélagsins og Háskólans. Áfram á þessari braut, Haraldur.
Aðrir: Fylgið I kjölfarið!
Heilræði
3 dæmi um jólagjafir handa þeim sem þér er í NÖP við:
1 . Bókin „Sorry, mister boss!“ hlýtur hér fyrsta sætið. Raunar kom
aldrei annað til greina. Kápan ein nægir til þess að enginn nennir að lesa
þetta bull. Ótvírætt versta jólagjöfin í ár. Og ekki var sjónvarpsauglýs-
ingin skám, skotbardagi í Rhodesíu og einhver B-mynda-hasar. Útgef-
andi sýnir þó húmor með því að segja í auglýsingu að mister boss hafi
náð að koma undir sig fótunum á íslandi. Vei og vei, þvílík grimmd,
þvílík mannvonska.
2 . Eins árs áskrift að Morgunpóstinum er í öðru sæti. Blað sem hef-
ur að því er virðist þá ritstjómarstefnu, að hafa skandal á hverri forsíðu,
er dæmt til þess að þurfa að búa til skandal æði oft, enda mörlandinn
hreinlega ekki nógu fjölmennur til að skandalisera tvisvar í viku.
„Skandallinn" um sendiherrann í Kína sem er raunar enn í Bonn og birtist á forsíðu Morgunpóstsins
með hundinn sinn („guð, og bara með hundinn sinn úti að labba, á öllum þessum launum. . .“ var tónn-
inn) sagði meira en mörg orð. Enda engin
fúrða að gárungamir skuli kalla blaðið
dmllulúðurinn.
3 . Fullkominn tölva er fín gjöf handa þeim
sem þú vilt að falli í prófum eða vilt ná starf-
inu af. Eftir allan fréttaflutningin af kláminu á
Intemet er hálfþjóðin komin inn á netið að
leita að bara einhverju ólöglegu, ósiðlegu og ó-
réttmætu. í vor er viðkomandi örugglega orð-
inn einn af þessum folu tölvugaumm sem tala
um að „blurra“ og „tiffa“ og „peista“ og „-
seiva“ og horfnir á vit netsins sem er óendan-
legt. Grimm örlög það, meira að segja fjend-
um.