Menntamál - 01.04.1946, Síða 12
42
MENNTAMÁL
LEIÐBEININGAR
Stafsetningarverkefni þau, er hér fylgja, ná yfir rúm-
lega 1000 orð alls. Er þeim skipt í 20 tölusetta kafla
(I—XX), sem eru nokkurn veginn jafnlangir.
Verkefni þessi verða lögð fyrir börn í 12 ára bekkj-
um í barnaskólum Reykjavíkur. Ætlazt er til, að hægt
sé að komast yfir tvo kafla í venjulegri kennslustund
(45—50 mín.). Víkja má þó frá því, ef þörf krefur, en
ekki skal byrja á nýjum kafla, nema hægt sé að ljúka
við hann í sömu kennslustund.
Hér er ekki um próf að ræða í venjulegum skilningi,
því að hvorki verða einstaklingum, bekkjum né skólum
gefnar einkunnar fyrir úrlausnirnar. Tilgangurinn er sá
að komast að raun um, hve auðvelt (eða erfitt) börnum
yfirleitt reynist að stafsetja þessi orð, og notfæra sér
síðan þær niðurstöður, sem fást, bæði við venjuleg próf
og stafsetningarkennslu.
Veltur því á miklu, að „prófið“ verði framkvæmt
þannig, að það sýni sem réttasta heildarmynd af staf-
setningarleikni barnanna. Verður það bezt tryggt með
því, að allir prófendur fylgi sömu reglum, eins nákvæm-
lega og unnt er.
Reglur.
1. Segið börnunum að skrifa í hverja línu, en ekki
nema öðru megin á blaðið. (Skrifið með bleki.)
2. Börnin skrifi nafn sitt, fæðingardag og fæðingarár
efst á hvert blað.
3. Kaflana skal tölusetja og skrifa þá í réttri röð.
4. Segið við börnin: „Nú les ég upp fyrir ykkur nokkr-
ar setningar. Þið eigið að skrifa þær jafnóðum, rétt
og greinilega á blaðið hjá ykkur. Ég segi ykkur til
um öll greinarmerki, en sjálf verðið þið að muna eftir
merkjum yfir stöfum. Þið megið einskis spyrja, eftir
að við erum byrjuð.“ .....