Menntamál - 01.04.1946, Side 14
44
MENNTAMÁL
b) ef það var ólæsilegt,
c) ef breytt var um beygingarmynd,
d) ef orð var fellt úr,1)
e) ef skipt var um orð,2)
f) ef merki vantaði yfir staf eða greinilegt var, að
rangt merki var notað.
Á sama hátt voru stafsetningaratriði þau, er kanna
skyldi, rituð á sérstök blöð og merkt við í hvert skipti,
sem vikið var frá réttum rithætti.
HELZTU NIÐURSTÖDUR
Eins og getið var í upphafi skýrslu þessarar, var
rannsóknin aðallega gerð í þeim tilgangi að komast að
raun um, hve auðvelt börnunum reyndist að stafsetja
ákveðin orð og hve leikin þau væru í að beita algengum
stafsetningarreglum. Niðurstöður rannsóknarinnar grein-
ast því af sjálfu sér í tvennt: orðalista og reglur.
A. ORDALISTAR
Svo sem áður er áminnzt, var texti verkefnanna 1066
orð lesmáls alls. Eru þar með talin ýmis smáorð, sem
voru mjog oft endurtekin, sum allt að 36 sinnum. Endur-
teknu orðin gengu úr af sjálfu sér, þegar orðalistinn var
tekinn saman. Þá féllu og nokkur orð önnur niður af
öðrum ástæðum. Dragast þannig frá heildartölunni 328
orð, svo að eftir verða þau 738 orð, er eftirfarandi listar
sýna.
Tölurnar aftan við orðin á listunum eru hundraðstöl-
1) Sjá bls. 68.
2) Sjá bls. 68 og athgr. ncðanmáls á bls. 54, 55 og 56.