Menntamál - 01.04.1946, Blaðsíða 37
MENNTAMÁL
67
Sérstaka athygli vekur, hve tvíritað r (rr) hefur háa
villutíðni. Af vangá féll eitt orð, er snerti þetta atriði,
niður úr textanum, svo að aðeins tvö orð heyrðu þar undir.
Orðið kyrrt féll niður. Ekki er líklegt, að þetta orð hefði
lækkað villutíðni atriðisins. Hitt mun heldur, að atriðið sé
mjög- þúngt meðal annars vegna þess, að það er tiltölulega
fátítt í málinu.
Þá vantar einnig eitt orð í atriðið eyju — eyu. Orðið
eyjunum féll niður. Ekkert bendir til, að það orð hefði
breytt villutíðni atriðisins, svo að nokkru næmi.
Síðustu stafsetningaratriði skýrslunnar, um ei, i, í, ey,
y og ý, hafa nokkra sérstöðu. Þess vegna eru orðin, er falla
undir þau, ekki rituð upp, en aðeins vísað til verkefnanna.
Verkefnin voru ekki samin með hliðsjón af því að kanna
þessi atriði, enda er örðugt að kanna þau örugglega eftir
nákvæmum reglum í jafnumfangsmikilli rannsókn að öðru
leyti og þessari. Það varð því nokkuð af handahófi, hvaða
orð með þessum stöfum urðu i textanum og einkum þó um
fjölda þeirra. Þar er þó mjög fátt af óalgengum orðum
með ey, y eða ý. Við nánari athugun þótti sjálfsagt að
vinna úr þessum atriðum, þar sem brátt kom í ljós við
yfirlestur úrlausnanna, að þar voru tíðar villur. Reyndist
það líka svo, að ey, y og ý urðu með örðugustu stafsetn-
ingaratriðunum. Könnuð voru í textanum öll orðin, er
höfðu þessa sex stafi, sem hér um ræðir, þó með þeim
undantekningum, að örfáum smáorðum með ei, i og í var
sleppt og einnig endingum, svo sem ing í endingu, i í grein-
inum og öðru hliðstæðu.
Annars skýrir skýrslan sig sjálf. Með því að líta á at-
riðadálkinn og dálk hundraðstölunnar sést ljóslega, hvaða
stafsetningaratriði hafa reynzt börnunum erfiðust. Er ætl-
azt til þess, að þær niðurstöður geti veitt hagnýtar leið-
beiningar um það, hvaða atriði öðrum fremur beri að
leggja áherzlu á i stafsetningarkennslu í barnaskólunum
og ýmsum framhaldsskólum.