Vorið - 01.12.1971, Page 28

Vorið - 01.12.1971, Page 28
Þar gat Þórir skriðið inn nm gluggann og farið síðan upp stigann, sem lá upp á loft. Þetta var skrýtið, mamma var ekki heima. Hann leitaði í öllum herbergjun- um, en það var ekki um að villast, mamma var ekki heima. Þórir var orð- inn svangur, en enginn matur hafði ver- ið eldaður. Allt var eins og þegar liann fór út í dag, nema taskan hans, hún hafði verið tekin úr ganginum og lögð á stofuborðið. Ef til vill hefur mamma skroppið til einhverrar kunningjakonu sinnar, hugsaði Þórir. Þórir beið og beið, en ekki kom mamma hans. Þóri var ekki orðið rótt, hvar gat mamma hans verið? Hann opnaði fyrir útvarpið. „Dagskrá kvöldsins er á enda, góða nótt,“ sagði þulurinn. Tíminn leið og loks var barið að dyrum. Þórir þaut fram. Þetta hlaut að vera mamma. Ilonurn brá, er hann opnaði liurðina. TJti stóð ókunnur maður. „Gott kvöld, heitir þú ekki Þórir V ‘ sagði maðurinn. „Má ég koma inn fyrir og tala við þig?“ Þegar þeir voru seztir inn í stofu, sagði maðurinn: „Þórir minn, ég kem til að segja þér slæm tíðindi. Það fannst kona hér á götunni í dag. Það hafði bíll ekið á hana. Hún var með brauð undir hendinni. Hefur sennilega verið að koina úr bakaríinu. I veskinu hennar var sjúkrasamlagsskírteini. Yið lásum á það og þannig vitum við, að hún átti heima hér.“ Þórir var nú farinn að hágráta. Mað- urinn reyndi að hugga hann. „Það er nú ekki víst, að hún sé dáin, Þórir minn. Það var farið með hana á sjúkrahúsið. Við skulum fara þangað og vitja um hana.“ Þeir fóru út 1 bíl, sem maðúrinn átti. A leiðinni þangað hugsaði Þórir með sér, að betra hefði verið, að hann liefði gegnt mömmu sinni og sótt brauð fyrir hana, þá hefði þetta ekki komið fyrir. í hugan- um bað Þórir: „Góði Guð, láttu hana ekki deyja, ég skal aldrei vera svona hugsunarlaus og ógegninn framar. Eg skal gera allt fyrir hana og læra lexíurn- ar mínar, bara að hún fái að lifa.“ Nú minntist hann líka orða Sigurðar kenn- ara, þá um daginn, að maður ætti að gegna foreldrum sínum. Nú voru þeir komnir að sjúkrahúsinu. Þeir gengu inn. I litlu lierbergi á neðstu hæð, sat móðir hans. Hann fleygði sér grátandi í faðm hennar. Það voru gleði- tár. Mamma hans hafði meiðst minna en talið var í fyrstu. Hún hafði að vísu handleggsbrotnað og var með handlegg- inn í gipsi og liún hafði misst meðvit- und og fengið heilahristing. Hún var lát- in jafna sig á sjúkrahúsinu og mátti nú fara heim. Þegar Þórir var kominn lieim með mömmu sinni, biðu þau ekki boðanna og hjálpuðust að við að búa til matarbita, því að bæði voru svöng. Þau voru fegn- ari en orð fá lýst, að vera komin aftur heim. — Þótt komin væri nótt, gekk Þóri illa að sofna. Hann fór upp úr rúminu og gekk út að glugganum. Hann horfði á hvernig regndroparnir féllu á glugga- rúðuna og runnu svo niður glerið, — eins og þegar tár rennur niður kinn. Kannske voru regndroparnir líka tár. Guð grætur stundum líka. Hann finnur til með mönnum í gleði þeirra og sorg. Þórir fór með bænina sína og brátt var hann sofnaður í rúminu sínu, í hreinum rúmfötum, sem mamma' hans hafði þveg- ið þá um daginn. 172 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.