Vorið - 01.12.1971, Page 30

Vorið - 01.12.1971, Page 30
ÁGÚSTA ÓLAFSDÓTTIR: Kertið hennar mömmu Það dimmir snemma á Þorláksmessu, þegar loftið er þungt af snjó, svo að hvergi sér í bláa rönd af liimni og svo var þennan dag. Sveinn í Bjarney var léttur í spori, þegar hann var að smala saman mönnum sínum, en ekki eftir því léttur á brúnina. Það var ekki svo fljótlegt að finna þá í þorpinu, en nú vildi hann fara að komast af stað og það undir eins. Það var að byrja að skyggja, útlitið ófagurt, sjórinn úfinn og löng leið fyrir höndum, en lieim vildi hann komast í kvöld. Konan var ein heima með lasið barnið og lítið um glaðn- ing til jólanna. Hann hafði lofað litlu stúlkunni að gefa henni kerti, og það vildi hann efna, en ekki var víst, að eftir betra væri að bíða. Nágrannarnir voru svo sem vísir til að hjálpa með ráðum og dáð, eftir því sem efnin leyfðu, en hann vissi, að lítið var til, því að heimil- isfeðurnir voru emmitt þarna með hon- um, ætluðu líka að fá eitthvað til jólanna, og svo vonaðist litla stúlkan hans eftir honum. Loks voru mennirnir fundnir, allt tilbúið, bátnum var ýtt frá landi, undið upp segl. Sveinn settist undir stýri og nú var lagt á flóann. Það var ágætt leiði og báturinn skreið drjúgum, en eftir því sem utar kom í flóann, þyngdi sjóinn og lá við ágjöfum, en bæði stjórnandi og bátur voru góðir. En nú komu nokkur snjókorn og svo fleiri, það hvessti líka í élið, og bráðum sást ekkert, nema hríð- armökkurinn og æðandi, snjóhvítar öld- urnar, sem steyptust yfir bátinn, reiðu- búnar að keyx-a hann niður í djúpið dökka. Sveinn kreppti höndina fastar ut- an um stýrissveifina. Nú varð liann að duga, úr þessum bardaga varð ekki flú- ið, og undir kröftum hans og ratvísi var líf þeirra allra komið. Hann treysti sér til að finna eyjuna og hann treysti Guði og bátnum sínum. Það var aðeins að finna lendinguna og þar mátti svo litlu muna, því að skerin voru beggja megiu við innsiglinguna og hún aðeins ein, beint fram undan bænum hans. Og þegar inn á voginn var komið, var hlé fyrir öllum vindum. Heirna í litla bænum beið kon- an með litlu stúlkunni sinni. Hún hafði nóg að gera, hún var að hreinsa til 1 174 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.