Vorið - 01.12.1971, Side 37

Vorið - 01.12.1971, Side 37
er hann kominn að hengjunni; hann beygir sig í knjáliðunum, tekur undir sig stökk og þýtur sem elding í lausu lofti. Hann kemur niður langt fyrir neðan bengjuna og gefur þá dálítið eftir í knjá- liðunum, en réttir svo úr sér. Svo rennir bann sér að fólksþyrpingunni og beygir þar laglega við. Gleðiópin dynja nú yfir hann, svo að undir tekur í fjöllunum. — >,Níu metrar!“ segir sá, sem mældi stökkið, og dómararnir skrifa það hjá sér. Svo er haldið áfram. Drengirnir renna sér niður, hver á fætur öðrum. Sumir detta, en aðrir standa. En nú virðist sem áhorfendunum þyki ekki taka því, að horfa á aðra en Hrólf. Hrólfur fer aftur upp brekkuna; en að þessu sinni lætur hann sér ekki nægja að byrja í benni miðri. — Það mætti heita kynlegt, ef hann stæði ekki brekk- una og stykki ekki nema níu metra. — »Þarna kemur sá þriðji,“ sagði dreng- bnokki einn, og það var satt; Hrólfur var kominn að liengjunni. Ilann stekkur eins og hann bezt getur, °g fólksfjöldinn, sem kominn er fast að brautinni, víkur ósjálfrátt frá og horfir uPp. — En, æ! Um leið og hann kemur aiður, skerst annað skíði t.il hliðar und- lr snjóinn og þarna liggur hann næst- 11111 á hliðinni. Og munnarnir, sem voru að opnast til þess að hrópa fagnaðaróp, lokuðust aftur til liálfs, og neðri vörin verður svo einkennilega löng. En allt í einu gerir Iirólfur dálitla sveiflu á sig, °g skíðið kemur aftur inn í rásina. Ungir °g gamlir lirópa og klappa lof í lófa! ®n Hrólfur hoppar livað eftir annað á leiðinni niður brekkuna, eins og til þess aÖ sýna, að lrnnn hefði ekki fipast við snJÓkerlingu þá, sem liann var'byrjaður gera þarna uppi í brekkunni. Og Vorið Björn gamli í Ilvammi sagði: „Fyrst hann stóðst þetta, fellur hann víst ekki héðan af. Nei, hann er fimur, hnokkinn sá arna.“ „Ilve langt stökk liann?“ spurði einn drengurhm í hópnum. „Tólf metra,“ svaraði sá, sem mældi. Nú lilaupa tveir menn niður brekk- una til Hrólfs, sem er að klifa upp aft- ur. „Haltu hérna í, svo skulum við draga þig upp eftir,“ sagði annar og sneri hryggnum í Hrólf. Strákur vill það ekki, en kveðst munu komast upp hjálparlaust. En liinn tekur liann orðalaust á bak sér og ber hann upp eftir. Hrólfur skammast sín liálfgert fyrir þetta, en hlær þó. Þann- ig liefur liann aldrei farið upp nokkra skíðabrekku fyrr. En hann liafði nú lield- ur aldrei farið eins vel niður brekku og í dag. Tveir drengir hafa brotið skíðin sín og geta því ekki haldið áfram. Tveir dreng- ir hafa dregið sig í hlé, vonlausir um að fá nokkur verðlaun. Tala skíðamannanna hefur þannig minnkað, og er því brátt, komið að Hrólfi í þriðja skiptið. „Eeyndu nú að standa á löppunum,“ sagði maðurinn, sem hafði borið hann upp eftir. „Eg skal reyna,“ svaraði ITrólfur og brosti. Og hann reyndi og honum heppnaðist það. ITann stökk jafn- vel meter lengra en áður. Meðan hann er í loftinu, tekur hann röndóttu prjónahúfuna af höfðinu og veifar henni; þannig þýtur hann gegn- um loftið. Svo kemur hann hægt og ró- lega að áhorfendrmum, sem lofa fimleik hans enn á ný með fagnaðarópi og öðr- um gleðilátum. Drengir þeir, sem eftir eru renna sér niður eftir, og svo er æf- ingunni lokið. 181

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.