Vorið - 01.12.1971, Side 41

Vorið - 01.12.1971, Side 41
r BEBA JOKA og töfrarokkurinn ---------------------i Lengst inni í þéttasta frumskógi gamla Rússlands, mitt á litlu, opnu svæði, stend- ur gamall bjálkakofi, sem hringsnýst hljóðlega á mjóum fæti. Kofinn heitir Hringver, eins og allir vita, bústaður Bebu Jóku, grimmustu galdranornar í heimi. Hinum megin í sama skógi í hæsta fjallinu er hellir, miklu dýpri en inn að miðju jarðar. I þúsund aldir hefur hell- irinn verið bólstaður Bogga, hins forna og góða frænda hennar Bebu Jóku. Þó að Boggi sé voldugur galdrakarl sjálfur, þá vill hann frekar lifa kyrrlátu lífi meðal maura og dropasteina, því hefur töfra- máttur hans dálítið ryðgað af notkunar leysi síðastliðna öld. Einn morgunn, þegar afar kalt var í veðri, sat Boggi í hnipri við arineldinn í helli sínum. Iiann liafði sveipað gömlu teppi um axlir sér. Nú var þetta teppi °rðið slitið og lítið skjól í því, en það hafði einu sinni verið frábært. Þræðirnir 1 því voru fínir eins og silki og eins mjúk IJ' og fislétt ský. Það var ekki þyngra en vængur á fiðrildi, en veitti meiri hlýju en sólskin á sumardegi. Samt sem áður var það orðið slitið og þunnt, vegna stiiðugrar notkunar. Boggi starði þungbúinn á flöktandi eldinn. Þetta gamla teppi er dálítið nota- Vorið legt. fyrir gömlu beinin mín, hugsaði hann dapur. Galdrakarlinn sveipaði tepp- inu þéttar að sér til að verjast kuldan- um og sagganum. Hrollur fór um hann þegar þrjú ný göt rifnuðu á teppið. „Þetta teppi er nærri eins gamalt og ég sjálfur,“ muldraði Boggi. Hann strauk góðlega með hendinni yfir tætta þræðina. ,,Eg man, þegar systir mín óf þetta teppi með töfrarokknum, sem hún fékk að gjöf frá langömmu okkar,“ and- varpaði galdrakarlinn. „Eg vildi gefa aleigu mína fyrir að fá annað teppi sem væri eins fínt og þetta var einu sinni.“ Allt í einu sá Boggi fyrir sér töfra- rokkinn. Hann mundi, hvernig rokkur- inn gat breytt jafnvel ljótasta bandspotta í fegursta þráð, sem hægt var að hugsa sér. Allt í eiiiu ljómaði andlit galdra- karlsins. „Eg held, að töfrarokkurinn sé nú í eigu minnar ltæru frænku, Bebu Jóku,“ sagði hann ánægður. Ilann ýtti slitnu á- breiðunni til hliðar og flýtti sér að hillu úti í einu horninu í hellinum. Þar blés hann rykið af stórri krystalskúlu. Boggi mundi eftir því, að Beba Jóka hafði, síð- ast þegar hún kom í heimsókn, hvað eftir annað dáðst að kúlunni, sem gat sagt fyr- ir um óorðna hluti. „Kominn á minn aldur er ég ánægður 185

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.