Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 7
Gunnar J. Gunnarsson Sannur kristindómur tilýtur að kalla til ábyrgðar og þjónustu Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. Rætt við Jónas Þórisson f 'ra mk v æ mclas IJ ó ra Hj cilpors íofn uiicir kirkjunnar Aðventan og jólin endurspegla á vissan hátt misjöfn kjör fólks. Sumir hafa nóg af öllu meðan aðrir þurfa jafnvel að leita til hjálparstofnana og samtaka til að geta haldið fábrotin jól. Hjálparstofnun kirkj- unnar er ein þeirra stofnana sem ber mikið á á þessum árstíma. Þá fer fram ár- leg söfnun til hjálparstarfs erlendis en jafnframt þiggja margir hér á landi aðstoð stofnunarinnar. Bjarmi spurði Jónas Þórisson, framkvæmdastjóra Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, að því hve mikill þáttur aðstoð hér innanlands væri í starf- seminni. - Samkvæmt skipulagsskrá er innan- landsaðstoð annar meginþáttur í starf- semi Hjálparstofnunarinnar. Hún á að hafa forgöngu um og samhæfa hjálpar- starf íslensku kirkjunnar innanlands sem utan. Innanlandsaðstoðin hefur alltaf verið ríkur þáttur í starfseminni. Hér áður fyrr var hún fyrst og fremst stuðningur við ýmis félagasamtök og hópa, t.d. Sjálfsbjörg og aldraða, en undanfarin sjö ár hefur þetta breyst mikið í að verða neyðaraðstoð við ein- staklinga. Hefur aðstoðin við einstaklinga hér á landi aukist á undanjomum ámm? - Aukningin hefur orðið gífurleg frá árinu 1990. Þá afgreiddum við um 70 umsóknir á einu ári, en á bak við hverja umsókn geta verið nokkrir einstaklingar. Á síðasta starfsári afgreiddum við hins vegar 1250 umsóknir á átta mánaða tímabili. Við þurftum að loka fyrir innan- landsaðstoðina í íjóra mánuði vegna þess að það sem við höfðum til hennar var uppurið. Á ársgrundvelli er þarna um að ræða 55% aukningu á milli ára. Hverjar telurðu að ástæðurnar séu Jyrír þessarí miklu aukningu? - Að mínu mati eru ástæðumar fyrst og fremst staða öryrkja og atvinnu- lausra. Það segir sig sjálft að þeim sem þurfa að lifa nær eingöngu á bótum hins opinbera og greiða fyrir þær húsaleigu, kaupa lyf og fæði og klæði gengur illa að láta enda ná saman þar sem bætumar sem samfélagið greiðir þeim eru ekki það háar. Það segir sína sögu að 47% þeirra sem komu til okkar á sl. starfsári voru öryrkjar, atvinnulausir 21% og einstæðir foreldrar 15%. Dugir að veita þeim einhverja aðstoð sem leita til stojhunarinnar? Þarf ekki að ráðast að rótum vandans og reyna að skapa réttlátara þjóðfélag? - Fyrst vil ég taka fram að þessi aðstoð sem við veitum er neyðaraðstoð. Við erum yfirleitt ekki að leysa vanda fólks varanlega þótt dæmi séu sem bet- ur fer um að það hafi tekist. Þetta er neyðaraðstoð þar sem verið er að hjálpa fólki í nokkra daga, t.d. fram að þvi að það fær næst útborgaðar bætur. Fólk á z

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.