Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 27
Konur að störfum heima í þorpi. Konsófólkinu fellur sjaldan verk úr hendi. Skömmu áður en við komum heim núna í ágúst höfðum við látið frá okkur dreng sem komið var með á sjúkraskýlið. Foreldrarnir höfðn skilið og vildu hvor- ugt eiga hann. Drengurinn var sjúkur og vegalaus og um síðir tókum við hann á heimili okkar. En við komum honum í góðar hendur áður en við héldum heim. Slík böm em mörg í Konsó og við hefð- um getað stofnað heilt barnaheimili fyrir þau!“ Og gesturinn kveður hjónin. í hugann koma orð Jesú: „Lítið upp og horfið á akrana, þeir eru hvítir og tilbúnir til uppskeru." Og einnig: „Uppskeran er mikil en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verka- menn til uppskeru sinnar" (Jóh. 4,35; Matt. 9,37-38). Áfram, Kristsmenn, krossmenn! Gífurleg breyting hefur orðið á mörgum sviðum meðal Konsómanna frá því ís- lenskir kristniboðar hófu að starfa þar fyrir rúmum 40 árum. Áhrifa kristin- dómsins gætir víða þó að ekki hafi allir gengið Jesú Kristi á hönd. „Heita má að fóstureyðingar séu úr sögunni og þar hafa kristnir menn farið i broddi fylk- ingar,“ segir Benedikt. Hann bendir á að samkvæmt fornum siðum hafi fólk oft orðið að bíða árum saman eftir að mega gifta sig. Og konur máttu einatt bíða þess í mörg ár að mega fæða böm þótt þær væru giftar og yrðu þungaðar og var þá mikið um fóstureyðingar. „Ég vissi dæmi þess að kona lét eyða fóstri tólf sinnum." Mjög sjaldan heyrist nú orðið í trumb- um seiðmanna þegar myrkrið er skollið á. Fjölmargir hafa lært að lesa og gengið í skóla. Og skilningur er smám saman að vakna á gildi heilsugæslu. En mest er um vert að fólk er leitt út úr myrkrinu inn í undursamlegt ljós Guðs. Anda- Margrét fór reglubundið í hjúkrunarferðir til nokkurra þorpa í Konsó. Vanfærar konur voru skoðaðar og mæður eða feður komu með börn sín. Sú hvítklædda til vinstri er eþíópsk hjúkrunarkona sem veitti aðstoð. dýrkendur losna úr viðjum og taka að lifa Jesú Kristi. Þau hjónin svara hiklaust játandi þeg- ar þau eru spurð hvort við eigum að halda áfram að vinna að kristniboði. „Við hljótum að hlýða skipun Jesú,“ segir Margrét. „Við eigum að fara út um allan heim og boða fagnaðarerindið — ekki aðeins í Jerúsaiem. Sumir eiga að starfa hér á landinu okkar en aðrir fá köllun til að fara til heiðingjanna." Benedikt kveðst sannfærður um að söfnuður eða kristilegt félag, sem ýtti kristniboðinu til hliðar, myndi bíða mik- ið tjón, „því að kristniboðið er ekki vaxtalaust," segir hann, „það gefur af sér andlegan arð. Við sjáum í Biblíunni að ísraelsmönnum farnaðist vel þegar þeir gengu á Guðs vegum og hlýddu orði hans. Þetta gildir enn í dag. Það er hörgulsjúkdómur ef kristniboðið vantar eða er hálfgerð hornreka þar sem menn vinna kristilegt starf." En hvað á sá að gera sem hyggur að Guð sé hugsanlega að kalla hann til starfa úti á meðal heiðingjanna? „Hann á að lesa í orði Guðs, iðka bænina og biðja Guð að leiða sig, að hann opni dyr eða loki þeim, þvi að þannig leiðir Guð. Hann ætti líka að ræða við trúaðan mann sér eldri sem hann treystir, eða kristinn leiðtoga eða kristniboða. Guð staðfestir kallið með einhverjum hætti ef það er frá honum. En á þessum bið- tíma þurfum við að vera þolinmóð."

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.