Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 9
að fást við hafa það að meginmarkmiði. Verkefnin eru einnig upprunnin hjá fólkinu sjálfu. Það hefur skilgreint vanda sinn og það er einmitt mikilvægt að svo sé þannig að við komum ekki frá Vesturlöndum með einhverjar „patent- lausnir" og segjum: „Svona á að leysa vandann." Okkar hlutverk er að hjálpa fólkinu að takast á við vandann og beita sínum hæfileikum til að skilgreina hann og setja forgangsröðunina upp sjálft. Það ánægjulega við verkefnin okkar á Indlandi og í Mósambík er að þar hefur fólkið sjálft lýst vanda sínum og er þá lika móttækilegra fyrir breytingum sem þurfa að verða til að leysa hann. Þannig eru líka miklu meiri líkur á að aðstoðin skili sér sem varanlegar bætur íyrir ein- staklinga. Ég hef oft sagt að í þróunar- aðstoð eigum við ekki að hugsa bara um heil samfélög, heldur einstaklinga. Við þurfum að byrja á þvi að breyta lífi einstaklinga sem síðan hafa áhrif út frá sér og breyta samfélaginu í kringum sig. Þannig getur það sem okkur finnst vera tiltölulega lítil þróunaraðstoð haft varan- leg áhrif og gefið mcirgfalt af sér. Hvemig bregst þú við þeim viðhorfum að verkefnin hér innanlands séu næg og að við séum vart aflögufær fyrir aðra? Eigum við ekkifullt ífangi með að láta kærleikann til náungans ná til þeirra sem standa okkur næstir? - Við fáum oft að heyra að það sé nær að sinna hjálparstarfi hér innan- lands. Margir halda jafnframt að Hjálparstofnun kirkjunnar sinni ein- göngu hjálparstarfi erlendis þótt mikið hafi verið fjallað um hjálparstarfið hér- lendis í fjölmiðlum, einkum siðustu ár- in. Ég vil benda á að það er ekki hægt að setja samasemmerki milli þess vanda sem við erum að fást við hér á landi og þeirrar fátæktar og örbirgðar sem við er að etja víða í þróunar- löndum, t.d. á Indlandi eða í Afríku. Við eigum heldur ekki að setja neitt samasemmerki þar á milli og annað útilokar ekki hitt. Ef við hugsum málið út frá kristilegum kærleika eða mannúðarhugsjón þá sjáum við strax að okkur ber að sinna hvoru tveggja. Þá komumst við að raun um að ábyrgð okkar er bæði á náunganum í næsta húsi og einnig þeim sem eru fjær og búa við allt aðrar aðstæður en við og hafa enga til að leita til um hjálp. Sannur náungakærleikur birtist í því að við gerum ekki þarna upp á milli heldur leitumst við að hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi bæði nær og fjær. Við getum líka orðað þetta svo að hver og einn sem þarf á hjálp eða aðstoða að halda og ég hef tækifæri til að hjálpa, hann er náungi minn sem ég á að bera umhyggju fyrir. Hjálparstofnunin er þá tæki eða farvegur fyrir þá sem vilja hjálpa náunga sínum bæði hér á landi og í fjarlægum löndum Hvernig tengir þú starfsemi Hjálpar- stofnunarinnar við boðskap Jesú Krists og starfið nú í desember við jólaboð- skapinn? - Kristur kom til þessarar jarðar til þess að kalla menn til fylgdar við sig. Hann kom til að gefa líf sitt íyrir syndir okkar og reis upp frá dauðum svo við gætum eignast eilíft líf. Hann er gjöf Guðs til okkar mannanna. Fagnaðar- erindið boðar okkur þennan sannleika en það kallar okkur einnig til þjónustu við Guð og náungann. Sannur kristin- dómur hlýtur því að kalla til ábyrgðar og þjónustu. Þess vegna er það eðlileg aíleiðing þess að fylgja Kristi og trúa á hann að bera umhyggju fyrir náungan- um. Kristur er okkur fyrirmynd í þessu efni. Hann bar umhyggju íýrir þeim sem hann umgekkst og gaf sjálfan sig til að frelsa okkur mennina. Hann sendir okkur síðan áfram með boðskapinn, ekki bara i orði heldur einnig í verki. í desember, þegar við hugleiðum sér- staklega fagnaðarboðskap jólanna um gjöf Guðs til okkar, er eðlilegt að við stöldrum við og íhugum í hvaða skuld við erum og hvernig við getum sýnt þakklæti okkar til Guðs og manna með þvi að rétta þeim hjálparhönd sem eru í þörf fyrir það. Kristniboð hefur alltaf verið með þeim hætti, bæði hér á landi og annars staðar, að það fer saman að vitna um kærleika Guðs í orði og sýna hann í verki. Til þess erum við kölluð. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur unnið að því að þjálfa konur á Indlandi til sjálfsábyrgðar.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.