Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 30

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 30
Margrét Eggertsdóttir Hér andar Guðs blœr 50 ár eru nú liðin frá þvi sumarbúðastarf hófst í Vindáshlíð í Kjós. í tilefni þess er komin út bók þar sem rakin er saga sumar- starfs KFUK frá því það hófst á fyrri hluta þessarar aldar og greint frá starfsemi þess allt fram á þennan dag. Meðal annars er lýst sumardvöl í Straumi fyrir sunnan Hafnarfjörð, tjaldútilegum í Botnsdalnum og byggingu skálans i Vindáshlíð við erfiðar aðstæður á árunrnn eftir síðari heimsstyrjöld. Gyða Karlsdóttir er ritstjóri bókarinnar en í ritnefnd voru ásamt henni Betsy Halldórsson, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Hólmfríður Pétursdóttir og Sigríður M. Sandholt en hún lést árið 1994. í bókinni eru 16 kaflar eftir ýmsa höfunda. Hér á eftir fer viðtal sem Margrét Eggertsdóttir tók við Gyðu Karlsdóttur og Betsy Halldórsson. Mig langar Jyrst að spyrja ykkur um aðdraganda þess að bókin var samin. Var þetta ekki mikil og löng vinna? Upphaflega var okkur aðeins falið að safna heimildum um sumarstarf KFUK en smám saman varð ljóst að þetta var efni í bók. Undirbúningur hófst árið 1991 með bréfi sem við sendum félagskonum þar sem við buðum þeim að senda inn minningar um sumarstarfið. Okkur lá í siálfu sér ekkert á vegna þess að afmælisárið var ekki alveg á næstunni. Sigríður Sandholt var í upphafi með okkur í ritnefndinni og það var mjög gaman að hafa hana með, hún mundi svo margt. Fyrstu fundirnir voru aðallega samræður þar sem rifjað var upp eitt og annað. Sigga var tengiliður okkar við fortíðina, það var gott að geta spurt hana. Okkur finnst mjög dýr- mætt að hafa fenöið að vera í ritnefnd- inni og rifja þannig upp handleiðslu Guðs í þessu starfi. Hvernig var bókin unnin, hvaða heimildir gátuð þið notað? Helstu heimildir okkar voru fundar- gerðabækur stjómar Vindáshlíðar sem em allar varðveittar. í fyrstu leit reyndar út fyrir að þær sem ná yfir fyrsta árið eða fyrstu tvö árin væm týndar en það fannst okkur mjög bagalegt því að það er auðvitað svo spennandi að fá upplýs- ingar um hvemig þetta allt byijaði. En síðar kom í ljós að Guðlaugur Þorláks- son, sem var framkvæmdastjóri skála- byggingarinnar í Vindáshlíð, hafði hald- ið dagbók sem er í raun dagbók Vindás- hlíðar frá hans sjónarhorni, rituð með það í huga að varðveita þá sögu og meira að segja vélrituð upp og þar em fyrstu fundargerðimar varðveittar. Önn- ur mikilvæg heimild er Dagbók Vindás- hlíðar sem nær yfir árin 1948-1954. í hana var skrifað uppi í Vindáshlíð, skráð það sem gerðist í bamaflokkun- um og í vinnuílokkum og gestir skrifuðu einnig í hana. Svo má nefna Döggina, fundarblað sumarstarfs KFUK, sem var handskrifað og ætlað til upplestrar á félagsfundum, þar er heilmikill fróð- leikur. En auk þess að nota skriflegar heimildir tókum við viðtöl við fólk sem tengst hafði sumarstarfinu með ýmsum hætti. Gyða Karlsdóttir.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.