Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 18
Sigvaldi eins og hann leit út daginn fyrir aðgerðina í Svíþjóð. grennast, hélt illa niðri mat og hafði stöðugan kláða. Þetta ágerðist stöðugt og síðustu sjö til átta vikumar áður en ég fór út í aðgerðina gat ég lítið nærst. Það var helst að malt og poppkom héld- ist niðri í mér. Allur venjulegur matur fór jafnharðan niður af mér og ég þurfti kannski að fara fimmtán til tuttugu sinnum á klósett á sólarhring! Þetta var óneitanlega svolítið erfitt og á þessum síðustu vikum léttist ég um tæp átján kíló, eða um rúm tvö kíló á viku! Ég fór í aðgerð hér heima þar sem gerð var til- raun til að víkka gallgangana. í fáeina daga leið mér betur en síðan sótti allt í sama far aftur. Að síðustu var staðan orðin sú að gallgangarnir virtust alveg lokaðir og „endurvinnslan" að gefast upp! Maður var dálítið slappur þá. Þá var orðið ljóst að min eina von til lífs væm lifrarskipti. Ég þurfti þvi að kom- ast sem fyrst út i svokallað lifrarmat þar sem ég yrði samþykktur á biðlista sem væntanlegur líffæraþegi. En þá vildi þannig til að samningur við sjúkrahúsið í Gautaborg var mnninn út og til stóð að semja við Kaupmannahöfn. Um tíma var þvi talsverð óvissa um það á hvom stað- inn ætti að senda mig og málið velktist í kerflnu á meðan mér hrakaði stöðugt. Erfiður biðtími Ég spyr Eddu hvernig henni hafi liðið þann tíma sem Silli þurfti að bíða eftir að komast í lifrarmatið. E: Mér fannst það alveg rosalega erflður tími. Silli var hættur að geta unnið full- an vinnudag og þá er eitthvað að hjá Silla. Síðustu dagana lá hann að mestu rúmfastur og hann klæjaði hræðilega, hvort heldur að nóttu sem degi. Þessi kláði sem Silli hafði var enginn venju- legur kláði. Hann risti svo djúpt að það var einhvem veginn engin svölun fyrir Silla að klóra sér á venjulegan hátt. Hann þurfti helst hníf eða eitthvað odd- hvasst sem gat ert hömndið nógu mikið. Ég sá hvemig Silli missti smám saman allt þrek og var orðinn svo gulur, horað- ist hratt og leið kvalir. Það var líka mjög erfitt íyrir litla drenginn okkar að horfa upp á pabba sinn svona veikan. Silli sem hafði alltaf verið sá hressasti fram- úr á morgnana og alltaf til í eitthvert fjör. Undir það síðasta átti Silli orðið verulega erfitt með að sinna honum. Davíð Amar hafði líka stuttu áður fylgst náið með veikindum ömmu sinnar, en við bjuggum hjá henni síðustu vikumar sem hún lifði. Nú horfðum við upp á að Silla versnaði og versnaði og ekkert var að gerast. Við vorum bara að bíða á meðan einhverjir voru að ákveða það hvort hann ætti að fara til Gautaborgar eða Kaupmannahafnar. Á sama tíma var ég að reyna að róa fólkið í kringum okkur þó að ég væri ofsalega áhyggjufull sjálf. En ioks fengum við staðfest að við ættum að fara til Gautaborgar og ég man hvað mér létti þá mikið. Loksins var eitthvað að gerast. „Þessir þrír til fimm dagar urðu tveir mánuðir!" Hvenær farið þið svo utan? S: Við fömm út mánudaginn i8. nóv- ember og ég byija í rannsókn strax næsta morgun. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og Inga Þóra Geirlaugsdóttir höfðu boðið okkur að vera hjá sér á meðan á rann- sókninni stæði og tóku þau alveg ein- staklega vel á móti okkur og veittu ómetanlegan stuðning, en sr. Jón gegndi um þetta leyti stöðu sendiráðsprests í Gautaborg. Við reiknuðum með að rannsóknin tæki svona þrjá til fimm daga eða í mesta lagi viku og að síðan yrðum við að fara aftur heim til íslands til að bíða nánari meðferðar. Þess vegna skildum við Davíð Amar eftir hjá systur Eddu heima á íslandi því það stóð aldrei annað til en að þetta yrði bara stutt „tékk“. En annað kom á daginn. Á mið- vikudeginum kemur læknirinn til okkar Eddu og fer að ræða við okkur um líf okkar, hvað við hyggjumst gera, hvemig heimilisaðstæður séu o.s.frv. Allt í einu spyr hann mig hvað ég myndi gera ef mér biðist lifur. Ég segi við hann: „Hef ég einhveija aðra möguleika?“ „Nei, ég sé það nú ekki,“ segir hann og útskýrir nánar hversu sjúkdómur minn sé alvar- legur. Þá svara ég honum eitthvað á þá lund að ég sé vanur að msla þeim hlut- um af sem þörf er á hveiju sinni og að ég vilji helst mmpa þessu í gegn! Hann brosti og virtist svolítið ánægður með svarið. Þetta var rétt fyrir hádegi en á slaginu tólf hringir boðtækið hans og ég segi svona í gamni við hann að nú sé verið að tilkynna honum að það sé komin lifur handa mér. Hann hló og segir að það sé verið að kalla á sig í hádegismat. Ég held síðan áfram í rannsóknum þennan miðvikudag og við Edda komum ekki til sr. Jóns og Ingu fyrr en rétt fyrir kvöldmat. Það átti að vera íslenskur fiskur í matinn en um það leyti sem við erum að setjast til borðs hringir síminn. Sr. Jón svarar en kallar síðan á mig. Ég fer í símann og heyri að þetta er sami læknir og hafði talað við okkur rétt fyrir hádegið. Hann tjáir mér að það sé 99% öruggt að það sé komin lifur og spyr mig hvað ég vilji gera, hvort ég vilji fara í aðgerð. Ég þurfti ekkert að hugsa mig Daginn eftir lifrarskiptin. Kominn af gjörgæslunni niður á stofu.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.