Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.12.1997, Blaðsíða 26
Benedikt spjallar við heimamenn í Bedengeltú, þorpi í nágrenni kristniboðsstöðvarinnar í Konsó. Nú reisa menn ekki aðeins kringlótta kofa heldur líka hús á ferhyrndum grunni með bárujárnsþaki. Sumtféll í góða jörð Fljótlega eftir komuna á kristniboðs- stöðina tók Benedikt að halda biblíu- lestra og námskeið auk boðunarstarfs- ins. Nú er þar biblíuskóli. Árangur kristniboðsins hefur orðið mikill. „Kristn- ir menn í Konsó eru 26-27 þúsund," segir Benedikt og bætir við að kirkjur séu ekki aðeins á stöðinni heldur á víð og dreif um héraðið. Skipulagðir söfn- uðir eru 84 talsins. Víða er mjög góð kirkjusókn og margir sjálfboðaliðar að verki auk launaðra starfsmanna. „Það er mikið þakkareíni að safnaðar- fólk í lúthersku kirkjunni er áhugasamt um að breiða út trúna. Konsómenn eru þar engin undantekning. Þeir hafa m.a. lagt lið í Voitó og Ómórate, langt suður í landi, eins og íslenskum kristniboðs- vinum er kunnugt. Nú eru 2,1 milljón manna í lúthersku kirkjunni í landinu. Hún á marga góða forystumenn." Og lesendur Bjarma vita að engin lúthersk kirkja i heiminum vex eins hratt og sú í Eþíópíu. Kirkjan stjómar sjálf starfi sinu og hún er eigandi kristniboðsstöðvanna. Börn í neyð Margrét hafði ekki lært hjúkrun þegar þau hjónin fóm í fyrsta sinn út á akur- inn. Hjúkrunarnámi lauk hún 1968 og hefur hún starfað síðan sem hjúkmnar- fræðingur, nú síðast á sjúkraskýlinu í Konsó. „Sjúkraskýlið er eiginlega spítali. Þar eru 20 rúm, og göngusjúklingar em stundum á annað hundrað á dag. Ég sinnti sérstaklega vanfæmm konum og vannæðrum og ranglega nærðum böm- um auk annarra sjúklinga, bæði þar og í sex þorpum. Bömin vom mörg mjög illa haldin og stafaði það fyrst og ffemst af rangri meðferð og vanþekkingu for- eldranna. Mæðurnar fá ekki að vera kyrrar heima með nýfædd börnin nema þrjá fyrstu mánuðina en þá ber þeim að fara út á akrana og hjálpa til þar. Litlu böm- in fá þvi ekki móðurmjólkina allan dag- inn og þeir sem em með þau heima gefa þeim iðulega komsúpu, sem oft er geij- uð, eða eitthvað annað sem er alls ekki við þeirra hæfi. Það er þvi engin furða þótt þau veikist og deyi. Auk þess er fæða fólksins einhæf og stuðlar það að sjúkdómum, ekki síst meðal bamanna. Því var það hluti af starfi mínu að leið- beina konunum um næringargildi ým- issa fæðutegunda og kenna þeim að elda hollan mat. Vanfærar konur í áhættuhópi voru lagðar inn á sjúkraskýlið og biðu þess þar að fæða eða ekið var með þær til nærliggjandi sjúkrahúss. Einnig var sérstök deild fyrir berklasjúklinga og ef faraldur geisaði af einhverju tagi voru sett upp tjöld fyrir þá sjúklinga." Starfsfólk sjúkraskýlisins i Konsó bendir sjúklingunum á Jesú Krist og það gerist oft að heiðingjar taka af sér töfra- gripi og játa trúna á Jesú meðan þeir dveljast þar til lækninga. Þeir halda siðan heim og vitna um frelsara sinn. Sumar konurnar í hópi kristniboð- anna hafa tekið eþíópsk börn í fóstur. „Við vomm að bjarga þeim frá dauða,“ segir Margrét. „Konsómenn vom einkum áður fyrr þeirrar skoðunar að ef kona dó af bamsfömm væri bamið haldið illum anda sem valdið hefði dauða móður- innar. Feðumir komu þá stundum með bömin til okkar í von um að við tækjum við þeim svo að þau dæju ekki en í þeirra eigin húsum myndu þau deyja. Litlu börnin fá pví ekki móðurmjólkina allan daginn og peir sem eru með pau heima gefa peim iðulega kornsúpu sem oft er gerjuð. Það er mikið pakkarefni að safnaðarfólk í lúthersku kirkjunni er áhugasamt um að breiða út trúna. Konsómenn eru par engin undan- tekning. Þeir hafa m.a. lagt lið í Voitó og Ómórate, langt suður í landi.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.