Ægir - 01.10.1994, Page 15
að núverandi eftirlit sé fullnægjandi
heldur hefur margoft verið bent á að
20 menn annist eftirlit á sjó og í landi
með þeim tæplega þrjú þúsund skipum
og bátum sem stunda fiskveiðar hér við
land og með tæplega 70 löndunarstöð-
um þar sem afla þeirra er landað.
Fiskistofa hefur með margvíslegum
hætti aukið á skilvirkni þessa hóps.
Til þessa hefur verið litið svo á að
veiðieftirlitið væri hluti af stjórnkerfi
sjávarútvegsins og heyrði því eðli
málsins samkvæmt undir sjávarútvegs-
ráðuneytið. Annist Landhelgisgæslan
veiðieftirlitið verður það lögregluliö
sem fer undir dómsmálaráðuneytið og
ekki fellur öllum jafnvel sú hugsun að
íslenskir sjómenn stundi starf sitt und-
ir stöðugu eftirliti lögreglu.
Hve miklu er kostað til veiðieftirlits
er og verður pólitísk ákvörðun á hverj-
um tíma.
Örn Pálsson
framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
Með lögum skal land byggja og
ólögum eyða. Því miður er pottur brot-
inn hvað varðar lög um stjórn fisk-
veiða. Viðurlög laganna eru á reiki,
skilvirkni ófullnægjandi og virðing fer
þverrandi. Þessu þarf að breyta.
Lög um stjórn fiskveiða fela Fiski-
stofu framkvæmd þeirra þar með talið
veiðieftirlit. Á síðustu mánuðum hefur
umræða um mismun á veiddum afla
og lönduðum orðið slík að telja verður
þennan mun verulegan og hrein fjar-
stæða að neita því að þessi mismunur
sé eitthvað sem ekki skipti máli í „hár-
fínni fiskveiðistjórnun", við tölum nú
ekki um öll verðmætin sem fara for-
görðum.
Gera þarf breytingar á lögum um
Fiskistofu. Tryggja þarf meö lagabreyt-
ingunni að Fiskistofu verði heimilt að
svipta skip veiðileyfi þegar uppvíst
verði um lögbrot. Skýr ákvæði verði í
lögunum um viðurlög við hvers konar
brotum, þar með talið þegar áhöfn er
staöin að því að henda fiski. Gildir þá
einu hvort um er aö ræða meðafla, afla
sem ekki er kvóti fyrir, undirmál, afla
sem hentar ekki til vinnslu eða ólög-
lega löndun. Auk veiðileyfissviptingar
skal koma til afla- og veiðarfæraupp-
taka, sé brotið talið mjög alvarlegt.
Starfsemi Fiskistofu verður að efla,
m.a. með auknu samstarfi við Land-
helgisgæsluna. Þá veröur Fiskistofa aö
hafa til umráða hraðskreiða smábáta.
Þannig yrðu starfsmenn minna háöir
því að „komast í róður" og gætu meö
litlum fyrirvara ákveðið að fara sjálfir á
miðin.
Samhliða því sem hér hefur verið
ritað ætti að breyta lögum um stjórn
fiskveiða þannig að í þeim verði ákveð-
inn hvati til að koma með allan afla aö
landi. Andvirði aflans gæti t.d. skipst á
milli útgerðar, sjómanna, veiðieftirlits
og Hafrannsóknastofnunar. □
Búist við uppreisn
spænskra fiskimanna
Búist er við uppreisn meðal fiski-
manna í Galisíu og Baskahéruðum
Spánar reyni Evrópusambandið að
framfylgja gildandi reglum á fiski-
miðum þeirra, s.s. kvóta. Spænskir
fiskimenn hafa látið illa að stjórn og
spænsk stjórnvöld liggja undir miklu
ámæli í Brussel fyrir aö stöðva ekki
veiðar þeirra utan kvóta og fleiri brot
á gildandi reglum. Spænskir fiski-
menn í norðurhémðunum líta svo á
að ríkisstjórnin hafi gefið þeim full
yfirráö yfir fiskimiðunum út að 12
mílum og engum komi við hvernig,
hvab eba hvar þeir veiða.
„Við látum Madrid ekki segja okk-
ur fyrir verkum og beygjum okkur
alls ekki fyrir Brussel," er haft eftir
forsvarsmanni fiskimanna.
(Fishing News sept. 1994.)
Norðursjórinn
hitnaði
í þeim miklu hitum sem gengu
yfir Skandinavíu og Norður-Evrópu
á liðnu sumri hækkabi yfirborðshiti
Norðursjávar um 3,5 gráður í júlí
miðað við yfirboröshitann í meðal-
ári.
(Fiskeri Tidende sept. 1994.)
C6000Í bylting í færaveiðum
Nýr mótor
75% aukning í afli og nýtni
meðal straumnotkun 3A, tog 55kg.
Veggja tölvu stýring
Ermatimsitjnöguleikar í í stjómun.
Tilbúin eða'&rgia^eiðikerfi.
Vindumar geta "tala^símaal!
og lært að keipa.
sími 96 11122
Leitið nánari upplýsinga.
ÆGIR OKTÓBER 1994 15