Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 36

Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 36
um fyrirvara, telst hann gallaður þegar við eiga þau tilvik sem um getur í a og b-liðum 1. mgr. ákvæðisins. I a-lið er fjallað um það tilvik þegar ástand söluhlutar er verra en neytandi hafði ástæðu til að ætla miðað við kaupverð og atvik að öðru leyti og í b-lið þegar fyrir liggja atvik sem lýst er í b eða c-liðum 1. mgr. 16. gr. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 16. gr. telst söluhlutur gallaður ef seljandi hefur vanrækt að gefa upplýsingar um söluhlutinn og samkvæmt c-lið er söluhlutur gallaður ef hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem um hann hafa verið gefnar.43 1 28. gr. fkpl. segir að þótt fasteignakaup séu gerð með þeim skilmálum að eign sé seld „í því ástandi sem hún er og kaupandi hefur kynnt sér“ eða með sambærilegum almennum fyrii-vara telst hún samt gölluð ef ákvæði 26. gr. (skortur á upplýsingum) og 27. gr. (rangar upplýsingar) eiga við. Fasteign telst einnig gölluð þótt hún sé seld með framangreindum skilmálum ef ástand hennar er til muna lakara en kaupandi hafði ástæðu til að ætla miðað við kaupverð eða atvik að öðru leyti.44 4.1.2 Söluhlutur svarar ekki til þeirra upplýsinga sem gefnar hafa verið í a-lið 1. mgr. 19. gr. kpl. er um það fjallað þegar hlutur svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandinn hefur gefið. Þar kemur fram að þótt söluhlutur sé seldur „í því ástandi sem hann er“ eða með öðrum áþekkum almennum fyrir- vara telst hann gallaður þegar hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur gefið um hann, eiginleika hans eða not og ætla má að þessi atriði hafi haft áhrif á það að kaup gerðust. Akvæðið er í flestu í samræmi við 1. mgr. 18. gr. kpl. og er því ætlað að hafa jafn víðtækt umfang og það ákvæði.45 Samkvæmt b-lið 1. mgr. 17. gr. nkpl. gildir sú regla að þótt söluhlutur sé seldur „í því ástandi sem hann er“ eða með öðrum áþekkum almennum fyrir- vara telst hann gallaður þegar fyrir liggja atvik sem lýst er í c-lið 1. mgr. 16. gr. sömu laga. Samkvæmt því ákvæði telst söluhlutur gallaður ef hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur við markaðssetningu eða á annan hátt gefið um hlutinn, eiginleika hans eða notkun og ætla má að hafi haft áhrif á kaupin. Samkvæmt 27. gr. fkpl. telst fasteign gölluð ef hún er ekki í samræmi við upplýsingar sem seljandi eða þeir sem koma fram fyrir hans hönd hafa veitt kaupanda, þótt kaupin hafi verið gerð með þeim skilmála að eignin sé seld „í því ástandi sem hún er og kaupandi hefur kynnt sér“. 4.1.3 Seljandi hefur vanrækt að gefa upplýsingar Samkvæml b-lið 1. mgr. 19. gr. kpl. er um galla að ræða ef seljandinn hefur við kaupin vanrækt að gefa upplýsingar urn atriði sem verulegu máli skipta varðandi söluhlut eða not hans og seljandi hlaut að þekkja til og kaupandi mátti 43 Alþt. 2002-2003, A-deild, bls. 3806. 44 Um skýringu þessa ákvæðis fkpl. sjá Alþt. 2001-2002, A-deild, bls. 1468-1469. 45 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 839. 220
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.