Vesturland - 01.01.1972, Blaðsíða 6
6
firðings og Þórdísar Snorra-
dóttur Sturlusonar. Virðist
hann hafa verið gætinn mað-
ur, fastur fyrir og óáleitinn.
Um hans daga hóf Árni bisk-
up Þorláksson hinar hörðu og
nafnfrægu deilur um Staða-
mál.
Stefndi kirkjuvaldið að því
að ná forræði kirkna og
kirkjustaða úr höndum
bænda. Hörðust var deilan
um Odda, Hítardal og Vatns-
fjörð. Dæmdi erkibiskup í
Niðarósi Vatnsfjörð undir
forræði Skálholtsbiskups. Stóð
Einar með festu á móti þess-
um úrskurði og hinum ný-
stárlegu kröfum kirkjuvalds-
ins, og vitnaði til hins forna
máldaga kirkjunnar.
Á öndverðri 14. öld var Ei-
ríkur riddari Sveinbjarnarson
orðinn eigandi Vatnsfjarðar.
Hann var nafnkunnur maður
og friðsamur höfðingi. Hafði
konungur, Hákon háleggur
Magnússon, slegið hann til
riddara og veitt honum aðals
mannstign. Enda er hann í
heimildum nefndur herra eða
riddari. Sat hann Vatnsfjörð
af mikilli rausn og skörungs-
skap.
Eftir daga hans situr hvert
stórmennið eftir annað í
Vatnsfirði; fyrst Einar sonur
hans, þá Björn Jórsalafari og
því næst dóttir Björns,
Vatnsfjarðar-Kristín, móðir
Björns ríka Þorleifssonar
hirðstjóra og margra nafn-
kenndra systkina.
Telja má, að Björn Jórsala-
fari hafi á sinni tíð verið
einn ágætasti höfðingi hér á
landi og nafnkunnastur allra
þeirra, er setið hafa í Vatns-
firði.
Hann var sonur Einars Ei-
ríkssonar jungherra í Vatns-
firði og Grundar-Helgu, sem
víðfræg hefir verið fyrir skör-
ungsskap sinn. Sérstaklega
hefir nafn hennar verið róm-
að í sambandi við víg Smiðs
Andréssonar hirðstjóra árið
1362.
Björn Jórsalafari var auð-
ugur, vinsæll og friðsamur
höfðingi, sem hvarvetna stillti
til friðar í deilum og róstum
þeirra tíma. Þá var hann mik
ill og einlægur trúmaður,
enda fór hann pílagrímsferðir
til helgra staða hvað eftir
annað. Utanlandsferðir hans
eru taldar fjórar.
Hann var kvæntur stórætt-
aðri konu, Sólveigu Þorsteins-
dóttur, sem fylgdi honum á
ferðum hans.
í annarri utanferð Björns
hrakti skip hans til Græn-
lands. Tepptist hann þar um
tveggja ára bil sakir ísa. Um
þá hrakninga lét hann rita
„reisubók," sem hefur verið
stórmerk heimild, en er nú
því miður glötuð. Sá Björn
á Skarðsá, hinn merki annála
ritari, bók þessa og hefir
ritað glefsur úr henni. Sam-
kvæmt frásögn hans hafa
Grænlendingar tekið Birni og
förunautum hans hið bezta og
veitt þeim bæði vistir og virð
ingu.
Fjórðu og síðustu utanferð
sína fór Björn árið 1405. Var
sú ferð lengst og merkust því
hann ferðaðist alla leið til
Jórsala. Áður en hann lagði
í þessa för gerði hann „testa-
menti“ sitt eða sálugjafar-
bréf. Gefur hann þar stór-
gjafir í margar áttir. Mest
gefur hann þó Vatnsfjarðar-
kirkju, bæði jarðir, ítök og
kirkjubúnað, enn fremur hálf
an skreiðartoll í Bolungarvík.
Auk þess gaf hann mörgum
öðrum kirkjum veglegar gjaf
ir og fyrirskipar ölmusugjaf-
ir til fátæklinga. Felur hann
sig jafnframt í „vald og
vernd“ frelsara síns og Drott
ins, Jesú Krists. Er bréf þetta
á allan hátt stórmannlegt, og
sýnir að Björn hefir verið
frábært göfugmenni og sér-
stæður mannkostamaður.
Úr þessari för kom Björn
ekki heim fyrr en árið 1411,
enda hafði hann á heimleið-
inni sótt ýmsa helga staði
í Vestur-Evrópu. Svo mikils
álits og virðingar naut Björn
hér á landi, að Árni Ólafsson
mildi, biskup í Skálholti, sem
jafnframt var hirðstjóri yfir
íslandi, fól honum að fara
með hirðstjóraembættið fyrir
sína hönd um tveggja ára
skeið.
Björn andaðist árið 1415
og var jarðsettur í Skálholti.
Þótti sá legstaður virðuleg-
astur og helgastur á landi
hér.
Eftir Björn Jórsalafara tek-
ur dóttir hans, Vatnsfjarðar-
Kristín, og maður hennar,
Þorleifur Árnason frá Auð-
brekku, við búi í Vatnsfirði.
Voru þau hjón nafnfræg að
rausn og skörungsskap, enda
stórauðug. Er það rómað hve
stórmannlega þau sátu Vatns-
fjorð og hve veglega þau
hýstu staðinn. Vitnar um það
vísa sú, er Jón biskup Ara-
son kvað um Vatnsfjörð er
hann fór þar um árið 1546:
Virðist mér Vatnsfjörður
vera sem sagður er,
heiðarlega liúsaður
horfinn um með grænt torf.
Kristín hefir byggt best
og búið hér vel frú.
Hann þætti mér heppinn,
er hlotið gæti slíkt kot.
Enginn vafi er á því, að
á dögum Björns Jórsalafara
og Vatnsfjarðar-Kristínar
hefir kirkjan í Vatnsfirði
verið forkunnar vel búin að
kirkjugripum og skarti. Auk
þess höfðu þau gefið henni
stórgjafir í ítökum, jörðum
og öðrum fjármunum.
Á síðari hluta 15. aldar
hófust hinar hörðu deilur
milli kirkjuvaldsins og eig-
enda Vatnsfjarðar um eignar-
rétt yfir staðnum. Skálholts-
biskup taldi sig hafa fulla
eignarheimild á hálfum
Vatnsfirði, en vildi nú kló-
festa hann allan. Blönduðust
hatrömm erfðarpál um Vatns-
fjarðarauðinn inn í þessar
deilur, sem gerðu þær í senn
feikna harðar og flóknar.
Nafnkunnastar eru deilur
Stefáns Jónssonar Skálholts-
biskups og Björns Guðnason-
ar í Ögri um Vatnsfjörð.
voru þeir báðir stórbrotin
mikilmenni, harðvítugir og ó-
vægnir í sókn og vörn. En
sem kunnugt er, enduðu þessi
átök eítir lát Björns í Ögri
með sigri kirkjuvaldsins, sem
nú loks náði öllum Vatnsfirði
á sitt vald. Eftir þetta er
Vatnsfjörður því ekki lengur
höfuðból auðugrar ættar,
heldur prestssetur, sem Skál-
holtsbiskup gat ráðstafað og
veitt eftir vild sinni.
En þótt vegur Vatnsfjarðar
og hróður yrði aldrei eftir
siðaskipti jafn glæstur og
verið hafði á tímum Björns
Jórsalafara og Vatnsfjarðar-
Kristínar, hafa engu að síður
setið þar margir virðulegir
og mætir kennimenn og
kirkjuhöfðingjar, þó aðeins
fárra verði getið hér.
Árið 1636 fékk séra Jón
Arason, sonur Ara Magnús-
sonar sýslumanns í Ögri,
veitingu fyrir Vatnsfirði. Eft-
ir heimkomu frá háskólanámi
í Kaupmannahöfn gerðist
hann skólameistari í Skál-
holti, enda var hann talinn
mikill lærdómsmaður. Hann
var skáldmæltur vel og orti
bæði á íslenzku og latínu.
Hann skrásetti ýmsan
fornan fróðleik, en kunnastur
er hann fyrir annál, er hann
reit, Vatnsfjarðarannál eldri,
sem þykir merk heimild. Eft-
ir hann settist í Vatnsfjörð
sonur hans, Guðbrandur Jóns-
son. Hafði hann verið að-
stoðarprestur föður síns sein-
ustu æviár hans, en tók við
brauðinu að honum látnum.
Séra Guðbrandur var gáfaður
maður og mikilhæfur, enda
talinn í fremstu röð klerka
hér á landi á sinni tíð. Hann
var mikill fræðimaður og
eftir hann liggur meðal ann-
ars Vatnsfjarðarannáll yngri,
sem þykir mjög áreiðanleg
og traust heimild. Voru báðir
þessir feðgar merkir og
virðulegir kennimenn.
Eftir lát séra Guðbrands
árið 1690 kom í Vatnsfjörð
listamaðurinn Hjalti Þor-
steinsson. Hann var maður
fjölgáfaður og fjölhæfur, og
virtist allt leika í listrænum
höndum hans. Hann var tal-
inn ágætur kennimaður og
búhöldur góður. Meðal annars
stundaði hann landmælingar
og gerði landsuppdrátt af
Vestfjörðum, sem talið er að
taki fyrri uppdráttum langt
fram.
Þó er séra Hjalti þekktast-
ur fyrir málverk sín og
myndskurð. Eru til málverk
er hann gerði af Þórði bisk-
upi Þorlákssyni, Jóni biskupi
Vídalín og mynd sú, er vér
eigum af Hallgrími Péturs-
syni, er máluð af séra Hjalta.
Þá eru í Þjóðminjasafni
prédikunarstóll og altaris-
stóll, hinir prýðilegustu grip-
ir, gerðir af séra Hjalta. Bera
verk þessi öll vitni um frá-
Prédikunarstóll úr kirkjunni í Vatnsfirði eftir sr. Hjalta
Þorsteinsson. (Ljósm.: Gísli Gestsson)