Vesturland - 01.01.1972, Page 10
10
Hagi á Barðaströnd, sem var sýslumannssetur á þeim tímum, er frásögnin greinir frá.
(Ljósm. H. T.)
að ná eignum manna og gerði
sér þá háða. Þá voru lög
mjög hörð og notaði hann
valdmennsku sína sér til fjár-
dráttar, lét hann menn stund
um gjalda aleigu sína fyrir
smávægilegar yfirsjónir.
Ólafur var kvæntur konu
þeirri er Halldóra hét. Var
hún prestsdóttir frá Skutuls-
fjarðareyri. Hafði faðir henn-
ar verið fjárplógsmaður mik-
ill og ágjarn og látið líf
sitt, ásamt húskörlum sínum,
i rekaviðarflutningum frá
Ströndum, af því hann kunni
ekki ágirnd sinni hóf og of-
hlóð flutningaskipin.
Halldóru virðist ekki hafa
verið í ætt skotið hvað þetta
snerti. Var það margra mál,
að hún hvetti bónda sinn
mjög til fjárdrægninnar og
styddi hann í öllu slíku. Þess
voru einnig dæmi, að hún
léti sjálf taka góðar kýr úr
fjósum fátækra landseta
sinna og léti strýtlur í stað-
inn. Hér er ein sögnin:
Ekkja ein, barnmörg og
fátæk bjó á Grænhól á Barða
strönd. Hún átti kú eina af-
bragðsgóða og nytjaháa, á
hverri sýslumannsfrú hafði
mjög mikla ágirnd. Einhverju
sinni tók Halldóra sig til og
lót vinnumann sinn ráðast inn
í fjós ekkjunnar cg hafa á
brott með sér kúna, en hann
lét skilja eftir aðra kú, miklu
lakari.
Móðir ekkjunnar, fjörgömul
kona, er horfði á þessar að-
farir á þá að hafa sagt, að
ekki myndi kýrin sú arna
lifa, frekar en aðrar eignir
Halldóru. Mjólkaði kýrin vel
um kvöldið á sýslumannssetr-
inu í Haga, en næsta morg-
un fannst hún dauð í básnum.
Það fylgir og sögunni, að kýr
fátæku ekkjunnar hafi orðið
hinn bezti gripur.
Sú er önnur saga sögð, að
einhverju sinni kæmu þau
sýslmannshjón á ferðum sín-
um að Botni í Patreksfirði.
Bóndi sat í dyrum og smíð-
aði laup. Er sýslumaður bar
í hlað, flýtti bóndi sér svo
mmjög að lúta og heilsa, að
hann gætti þess ekki að
leggja frá sér tálguhnífinn og
hafði hann opinn í höndinni.
Ekki veitti sýslumaður þessu
neina athygli, en Halldóra
varð þess vör. Á hún að hafa
sagt: „Illa sástu nú, þar
gaztu fengið skildingsvirði.
Gættir þú þess ekki, að mað-
urinn gekk með opinn hníf
á móti þér?“
Síðar kallaði sýslumaður
bónda fyrir sig og bar á hann
sök þessa og hótaði lögsókn.
Glúpnaði þá bóndi og bað
sýslumann ráða fjárútlátum
sínum. Urðu þau svo mikil,
að lítið varð eftir af búi
hans, og hafði bóndi þó verið
í góðum efnum áður.
Fleiri eru enn sögur um á-
gang þeirra sýslumannshjóna,
sem ekki verða sagðar hér að
pessu sinni.
Ekki virtist Ólafur vera
eins vökull að refsa mönnum
fyrir lögbrot, ef einskis gróða
var að vænta úr þeirri átt,
sem sökin var. Væru það
eignalausir vesalingar, sem
lögbrot höfðu framið, lét
hann að jafnaði hýðingar
nægja sem refsingu, eða hann
svæfði málin.
Sagt var frá stúlku einni,
er Gunna Skafta var nefnd.
Hún var í ýmsum vistum á
Barðaströnd. Lék orð á því,
að hún hefði bcrið út eða
fyrirfarið þrem börnum sín-
um. Átti hún sum þeirra
uppi á heiðum við smala-
mennsku, eða svo var að
minnsta kosti fullyrt. í fjórða
skiptið, sem hún var ólétt,
var hún á bæ þeim á Barða-
strönd, er Miðhlíð heitir. Eina
nóttina heyrir húsfreyjan í
bænum barnsgrát úr rúmi
því, er Gunna svaf í. Brá hún
þegar við, ásamt annarri
konu, og leituðu þær í rúm-
inu og sat Gunna þar á barn-
inu kæfðu.
Ólafur sýslumaður var
látinn vita um þetta og hafði
hann próf í málinu, en virtist
ekki hafa neinn sérstakan á-
huga fyrir því. Það er í frá-
sögur fært, að hann ráðfærði
sig eitt sinn við meðdómend-
ur í málinu, og spurði þá
hvað þeim virtist rétt að
gera. Varð einn þeirra þá
fyrir svörum og sagði: „Hún
hefur drepið þrjú börn sín
og handvíst er um hið síð-
asta, sem hún kæfði undir
sér. Drepa hana, drepa hana.”
„Ekki þori ég það,” svaraði
sýslumaður. „Ekki er full-
sannað að barnið kæmi lif-
andi.” Svo bætti hann við og
virtist það vera aðalkjarni
málsins: „Það er til einskis
að sælast.” Slapp því Gunna
við refsingu vegna fátæktar
sinnar, — þannig var nú
réttarfarið á þeirri tíð.
3.
ENN UM MÁL SIG-
URÐAR OG GUÐRÚNAR
—- ANDLÁT ÓLAFS.
Nú víkjum við aftur til
Sigurðar Elia og hans máls.
Er Sigurður hafði fengið
Þórð til að gangast við barni
Guðrúnar gerði Gunnar Ólafi
sýslumanni aðvart um, hver
brögð væru hér í tafli.
Sýslumaður brá skjótt við
cg stefndi Þórði á sinn fund
og hótaði honum öllu illu, ef
hann segði sér ekki allt hið
sannasta. Fór svo að lokum,
að Þórður þorði ekki annað
en að segja sem var. Tók
Ólafur þá af honum fé það,
sem Sigurður hafði látið
hann fá, og kvaðst sýslumað-
ur vel gera, að sleppa honum
refsingarlaust.
Sýslumaður hugðist nú
sækja mál þetta vel, því ærn-
ar vissi hann fjárvonir í búi
Sigurðar. Var og sagt, að
kona hans hvetti hann mjög.
Tók hann föstum tökum á
málinu og dæmdi þau Sigurð
til dauða. Dóm sinn fékk
hann staðfestan á Alþingi
(samanber Alþingisbækur.).
Skyldi Sigurður hálshöggv-
inn en henni drekkt, svo sem
lög mæltu fyrir um. Á meðan
á málinu stóð var Sigurður
hafður í haldi í Haga, en
Guðrún var fangi á Geirseyri.
Á meðan Sigurður sat sem
fangi í Haga, lét Ólafur reka
30 geldinga heim í bú sitt
frá Geirseyri. Vir Sigurður
staddur úti við í handjárnum,
er reksturinn bar þar að
garði, og er hann sá sauðina,
mælti hann: „Fallegir eru
þið, gemsar mínir.”
Halldóra heyrði þetta cg
sagði: „Þér má, að eigna þér
þá, líflaus og ærulaus.” Ekki
lét Sigurður sér bregða, en
svaraði: „Ekki hefur þú enn
lokið nösum.”
Aldrei fannst bilbugi á Sig-
urði cg aldrei brá honum til
æðru. Áður en Sigurður var
tekinn, hafði hann grafið
peninga sína alla í jörðu, og
lét hann aldrei neitt uppi
um hvar þeir væru fólgnir.
Sagði hann, að þeim sýslu-
mannshjónum myndi það
meiri hugarkvöl, að ná ekki
peningunum, en sér að verða
drepinn saklaus.
Árið 1754 voru þau Ólafur
og Halldóra, sem oftar, á
ferð um Patreksfjörð. Fór
Halldóra um borð í skip, sem
lágu á Vatneyrarhöfn, lík-
lega til að verzla. En sýslu-
maður sat heima í bæ á Vatn-
eyri. Var hann mjög ölvaður.
Bar húsfreyja honum svið
í|*öl
u* drykkir
Öigerðin Egill Skallagrímsson hefur ávallt á
boðstólum ferska og bragðgóða svaladrykki
til hæfis fyrir alla fjölskylduna.
Sérmenntaður bruggmeistari hefur umsjón með
ölgerðinni, enda hefur Egils Pilsner þótt
framúrskarandi frá fyrstu tíð.
Umboð á ísafirði:
JÓHANN KÁRASON, umboðs- & heildverzlun,
Engjavegi 8, sími: (94) 3538