Vesturland - 01.01.1972, Page 11
11
\^i aans) sissmsixjam ss/taw/EsusMmjm
til matar út í skemmu, en
er hann hafði tekið tvo bita
stóð hinn þriðji í honum.
Hljóp húsfreyja þá skjótt
inn og sótti mjólkurkönnu,
en er hún kom út aftur, var
sýslumaður í andarslitrunum
og dó þegar. Og er þetta
sögn gamalla og fróðra Barð-
strendinga.
Er Halldóru konu hans var
sagt þetta, lét hún sér svo
við bregða, að hún afklæddist
öllu skarti sínu, en enginn
sá hana tárast.
Ekki höfðu samfarir þeirra
hjóna verið ástsælar, drakk
hann bæði mikið og hélt fram
hjá konu sinni svo hún vissi.
Gerði hún Ólafi margt til
skapraunar og háðungar og
var það haft fyrir satt, að
hið eina, sem þau áttu sam-
eiginlegt, var að græða íé.
4.
LYKTIR MÁLA OG
DÓMUNUM FULLNÆGT.
Ólafur sýslumaður hafði
fengið dóm sinn um Sigurð
og Guðrúnu staðfestan á Al-
þingi áður en hann lézt, eins
og áður er getið. Nú tók við
málum hinn nýi sýslumaður
Barðstrendinga, sem var Da-
víð Scheving. Fékk hann að
vita um alla málavöxtu. Vildi
hann gera allt, sem í hans
valdi stóð, til þess að frelsa
þau Sigurð cg Guðrúnu frá
lífláti. Sótti hann um náðun
til Friðriks konungs íimmta
i g ráðuneytis hans, en hún
lékkst ekki.
Var honum þá nauðugur
kostur, að láta taka þau af
lífi og skyldi Sigurður háls-
höggvinn á Hólavellinum í
Haga. Bjarni Búi hét sá, er
var þá Barðstrendingaböðull.
Hann var sagður illmenni
mikið, hafði bæði stolið og
lagzt út, en verið gefnar upp
sakir til að gerast böðull.
Þegar Sigurður gekk til af-
tökustaðarins hafði hann
gyllta skyrtuhnappa úr silfri
um háls sér. Vildi Bjarni
böðull grípa þá. En Sigurður
sló þá höndum saman og
laust hann kinnhest, og bað
helvískan þræl þann ekki við
þeim snerta, skyldu þeir
fylgja sér. Bað hann sýslu-
mann að láta jarða sig, þar
sem mættust vígð mold og
óvígð. Það er sagt, að áður
en hann lagðist á höggstokk-
inn, bæði hann menn bera
Gunnari kveðju sína, og segja
menn, að síðan hafi hann
beðið fyrir sér.
Síðan tók böðullinn til
starfa síns og hjó ósleitilega.
Að öllu lét sýslumaður fara,
sem Sigurður hafði beðið.
Nú er það litlu síðar, að
sagt var á Geirseyri, að fækk
að væri í Haga. Þóttist Guð-
rún þá vita, hvað verða
mundi. Tók hún öllu með
hinni mestu stillingu, og
kvöldið áður en átti að
drekkja henni, saumaði hún
sjálf poka þann, sem hún
skyldi sett í, og vissi til hvers
átti að nota hann.
Um morguninn 17. marz
1755 reið flokkur manna með
henni fram í Mikladal, sem
fram liggur frá Geirseyri.
Átti að drekkja henni þar í
hyl einum í Mikladalsánni. Á
leiðinni fram eftir dalnum,
segja menn að hún hafi sung-
ið sálm einn úr Hugvekju-
sálmum Sigurðar prests á
Presthólum. Var hún mjög
trúarörugg og kvaðst full-
viss um sáluhjálp sína. Liði
hún fyrir syndir sínar að
SENDIR
BEZTU
NÝÁRSÓSKIR
OG ÞAKKAR VIÐSKIPTIN
Á LIÐNUM ÁRUM.
1
É
PRENTSTOFAN ISRUN HF. I
Aðalstræti 35 - Isafirði
Sjálfstæðiskvennafélagið Þnríður
snndafyllir í Bolnngarvik 30 ára
SJÁLFSTÆÐISKVENNA-
FÉLAGIÐ Þuríður sundafyll-
ir í Bolungarvík minntist 30
ára afmælis síns hinn 4. des-
ember sl. með kaffisamsæti
í Félagsheimilinu, — en fé-
lagið var stofnað 21. sept.
1941.
Heiðursgestur samsætisins
var frk. María Maack, en hún
kom til Bolungarvíkur fyrir
30 árum til að stofna félagið.
Mun Þuríður sundafyllir hafa
verið þriðja sjálfstæðis-
kvennafélagið, sem stofnað
var á landinu. Nokkru áður
hafði frú Guðrún Lárusdóttir
komið til að undirbúa stofn-
un félagsins.
Formaður félagsins, frú
Elín Guðmundsdóttir, setti
hófið og flutti stutta ræðu.
Þvínæst rakti frú María
Haraldsdóttir í stórum drátt-
um sögu félagsins frá upp-
hafi.
Heiðursgesturinn, frk. María
Maack, flutti snjalla ræðu og
að lokum fluttu stutt ávörp
þau Jónatan Einarsson, odd-
viti, Jón F. Einarsson form.
Sjálfstæðisfélagsins Þjóðólfs,
vilja Guðs, þó ranglega væri
hún dæmd af mannlegu valdi.
Bjarni böðull var þarna til
staðar og var Guðrún færð
í sekk þann, er hún hafði
sjálf verið látin sauma, og
var grjót sett í pokann með
henni svo að hann sykki. En
svo hörmulega tókst böðlin-
um til við embættisverkið,
að hann setti of lítið grjót
í pokann, svo hann flaut.
Varð tvisvar að draga pok-
ann upp úr ánni og bæta í
hann, og er hann sökk ekki
heldur í þriðja sinn, greip
böðullinn broddstaf og hélt
sekknum þannig niðri.
Þótti mönnum aðfarir
Bjarna böðuls illmannlegar.
Var það almæli, að Scheving
sýslumanni hafi orðið svo
mikið um þessa ómannúðlegu
meðferð, að hann hafi orðið
að ganga frá og hafi tvisvar
sinnum nær hnigið í ómegin.
Ýmislegt var um það rætt
hvers vegna Guðrún hafi flot-
ið. Var það sumra mál, að
hún myndi enn hafa verið
þunguð eftir Sigurð Ella.
Guðrún var dysjuð í holti
litlu í dalnum skammt frá
götunni, þar sem nú heitir
Illimógur.
frú Ósk Ólafsdóttir, Benedikt
Þ. Benediktsson, rafveitu-
stjóri og frú Ingveldur Guð-
mundsdóttir.
í tilefni afmælisins voru 5
konur gerðar heiðursfélagar,
þær frú Elísabet Hjaltadóttir,
frú Guðmunda Pálsdóttir, frú
Margrét Sigmundsdóttir, frú
María Rögnvaldsdóttir og frk.
María Maack.
Sjálfst.kvennafél. Þuríður
sundafyllir hefur allt frá
stofnun félagsins starfað af
mikum þótti og ekki síður
að mannúðar- og menningar-
málum en stjórnmálum. Hef-
ur félagið m.a. gefið sjúkra-
skýlinu, skólanum og kirkj-
unni í Bolungarvík miklar og
dýrmætar gjafir á undanförn-
um árum, — og geta má
þess, að þegar fyrst var haf-
izt handa um vatnsveitufram-
kvæmdir í Bolungarvík,
styrkti félagið þær fram-
kvæmdir með f járframlagi.
Auk þess hefur félagið fært
sjúklingum og einstæðingum
jólaglaðning á hverju ári og
á ýmsan annan hátt verið
mjög virkur þátttakandi í
hverskonar mannúðar- og
menningarstarfsemi í byggð-
arlaginu. Þá hefur félagið
unnið mikið og gott starf
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sér-
staklega í sambandi við al-
þingis- og sveitarstjórnar-
kosningar, og jafnan verið
mjög vakandi í starfi.
Afmælissamsætið var fjöl-
sótt og veitingar allar hinar
rausnarlegustu, svo sem
vænta mátti. Bárust félaginu
margar heillaóskir og gjafir
í tilefni afmælisins.
Að endingu var stiginn
dans fram eftir nóttu og
höfðu allir af hina beztu
skemmtun.
Fyrstu stjórn félagsins
skipuðu: Formaður frú Mar-
grét Hálfdánardóttir, ritari
frú Unnur Sigurðardóttir,
gjaldkeri frú Þorgerður Ein-
arsdóttir. — Eru þær nú allar
búsettar í Reykjavík.
Núverandi stjórn er skipuð
þessum konum: Formaður
frú Elín Guðmundsdóttir, rit-
ari frú Sigrún Bjarnadóttir,
gjaldkeri frú María Haralds-
dóttir. Meðstjórnendur eru
frú Margrét Guðfinnsdóttir,
frú Guðmunda Pálsdóttir og
frú Fríða Pétursdóttir.
VESTURLAND óskar Þu-
ríði sundafylli til hamingju
með afmælið.
Tilkynning
Öllum sem greitt hafa laun á árinu 1971 í Vest-
fjarðaumdæmi ber að skila launamiðum og launa-
miðafylgiskjölum til skrifstofu minnar á ísafirði,
eða til umboðsmanna í hreppunum, fyrir 20. þ.m.
Launamiðana skal fylla vandlega út eins og form-
ið segir til um, og er sérstaklega minnt á, að allir
launamiðar verða að bera með sér greinileg heim-
ilisföng, nafnnúmer og vinnutímabil launþega.
Bent er á að lesa rækilega dreifibréfið sem fylgdi
launamiðunum.
Athygli er vakin á því, að allar greiðslur til verk-
taka ber að gefa upp í heild á nafn verktakans.
Þeir sem launamiða fá senda, en engin laun hafa
greitt, skulu rita á frumrit launamiðafylgiskjals-
ins að svo hafi verið, og endursenda það til skatt-
stjóra.
Nauðsynlegt er að launagreiðendur fylli launamiða-
fylgiskjalið vandlega út skv. texta þess. Lesið
vandlega textann á bakhlið fylgiskjalsins, bæði á
frumriti, afriti og samriti. Það mun auðvelda rétta
útfyllingu.
Engan frest er unnt að veita í sambandi við skil
á launamiðum og launamiðafylgiskjölum.
Öllum hlutafélögum ber að skila til skattstofunnar
hlutafjármiðum, miðað við hlutafjáreign hvers
einstaks hluthafa 31. desember sl.
ísafirði, 6. janúar 1792.
SKATTSTJÓRINN VESTFJARÐAUMDÆMI