Fréttablaðið - 06.10.2010, Page 30
MARKAÐURINN 6. OKTÓBER 2010 MIÐVIKUDAGUR12
F R É T T A S K Ý R I N G
Með fyrri orkuskiptum þar sem
hætt var að nota olíu og kol til hús-
hitunar og jarðvarmi tók við hafa
Íslendingar sýnt heiminum að slík-
ar umbreytingar eru færar, sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, á alþjóðlegu ráðstefnunni
Driving Sustainability sem fram
fór í Reykjvík í september. Hann
segir raunhæfan möguleika á að
Reykjavík gæti með orkuskiptum
í samgöngum orðið fyrsta borg í
heimi til þess að reiða sig að fullu
á visthæfa orku.
Ráðstefnan er árviss og á henni
fjallað um hvernig hægt er að
koma á visthæfum samgöngum,
hér á landi og í heiminum öllum.
Ráðstefnuna sótti fjöldi fyrir-
lesara víðs vegar að úr heiminum,
fulltrúar bílaframleiðenda, orku-
fyrirtækja, stjórnmálamenn og
forsvarsmenn sprotafyrirtækja.
Ólafur kvaðst þess fullviss að
drifkraftur breytinga í samgöng-
um kæmi til með að eiga sér stað
á vettvangi borgríkjanna, en þar
kæmu í ljós vandamál tengd um-
ferð og vatnsskorti. „Slagurinn
verður unninn, eða tapast, í borg-
unum,“ sagði hann í setningar-
ræðu sinni á ráðstefnunni.
„Kína ætlar sér að taka í notkun
eina milljón bíla sem nota vist-
hæfa orku innan fárra ára,“ benti
Ólafur Ragnar á í ræðu sinni, en
hann var við setningu ráðstefn-
unnar nýkominn frá Kína. Hann
hafði í ræðu sinni eftir varafor-
seta Kína, sem hann hafði nýverið
hitt og sagði líklegastan til að taka
við forsetaembættinu, að Kína liti
nú á Ísland sem sinn helsta sam-
starfsaðila í virkjun jarðvarma í
Kína.
Ólafur sagði að á öllum stigum
stjórnmála og fræða í Kína væri
markvisst unnið að því að um-
breyta landinu frá því að vera
steinefnaeldsneytisland yfir í að
verða á næstu tuttugu árum í
farar broddi helstu iðnríkja í notk-
un á visthæfri orku. „Breyting á
sér stað frá borg til borgar, hér-
aði til héraðs,“ sagði Ólafur Ragn-
ar og kvað horft til þess að nota
sambland ýmissa orkugjafa, hvort
sem það væri lífrænt gas, vind-
orka, vatnsafl eða jarðvarmi.
Taki Evrópa og Bandaríkin ekki
til hendinni segir Ólafur Ragnar
fullvíst að Kínverjar nái á þess-
um tuttugu árum afgerandi for-
ystu í þróun á allri tækni sem snúi
að nýtingu visthæfrar orku. „Og
í því felst áskorunin nú. Við þurf-
um að horfast í augu við hvernig
við stöndumst samanburðinn við
Kína, sem þá verður fremst á
þessu sviði í heiminum.“ Hann
segir kapphlaupið vera við Kína.
„Og ef við töpum því þá verður
tæknin og aðferðirnar sem þróað
er í Kína útflutningsvara þeirra
til okkar heimshluta. Ekki okkar
tækni og sérfræðiþekking þang-
að.“
Ástæður Kínverja til þess að
taka upp visthæfa orku eru af
tvennum toga, að mati Ólafs
Ragnars. Mengun í Kína sé orðin
uppspretta óánægju sem þegar
sé orðið vart og geti alið af sér
stjórnmálalegan óróleika. Þannig
hafi síðustu ár verið um 50 þúsund
mótmæli á ári í Kína vegna meng-
unar. Hin ástæðan segir Ólafur
að sé bráðnun jökla í Himalaja-
fjöllunum. „Kínverjum finnst
bitamunur en ekki fjár, hvort sú
bráðnun á sér stað á 30 eða 70
árum,“ sagði hann.
Slagurinn tapast eða vinnst í borgunum
Kína lítur á Ísland sem sitt helsta samstarfsland við nýtingu jarðvarma. Forseti Íslands segir útlit fyrir að
vestræn ríki tapi orkunýtingarkapphlaupinu. Óli Kr. Ármannsson sat Driving Sustainability ráðstefnuna.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forseti Íslands segir Reykjavík geta orðið fyrstu borg í
heimi til að verða 100 prósent visthæf, með því að húshitun byggi á jarðvarma og bílar
aki um á vistvænu innlendu eldsneyti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Allmargir þættir þurfa að koma
saman við hönnun farartækja,
að því er fram kom í máli Chris
Bangle, fyrrverandi aðalhönn-
uðar BMW-bílaframleiðandans,
á Driving Sustainability ráð-
stefnunni í Reykjavík. Hönnuð-
ir þurfa að horfa til þess hvaða
þætti verði að hafa með, hvað sé
hægt að gera, hvað þeir vilji gera
og sé skynsamlegt að gera. „Til
dæmis er skynsamlegt að hafa
bollastatíf, þau eru nú meðal
þess sem fólk býst við að sé í
bílum,“ sagði hann.
Framþróun í tækni segir
Bangle svo breyta því sem mögu-
legt sé að gera, um leið hún breyti
upplifun fólks af bílum sem farar-
tækjum. Þannig sé allt önnur
upplifun að aka bíl með hljóð-
látum rafmótor og stiglausri
hröðun en að aka drynjandi átta
gata bensín tryllitæki. Bílar segir
Bangle að séu að vissu marki
endurspeglun á einhverjum per-
sónueiginleikum eigendanna og
það verði að hafa í huga þegar
maður velti fyrir
sér samgöngumáta
framtíðar. Hann
var fenginn til að
velta upp sýn sinni
á samgöngur eins
og þær gætu orðið
árið 2050. Bangle
benti líka á að
hvert farartæki
tæki um 10 fer-
metra pláss og
því kæmu upp
vandamál með pláss með auk-
inni auðlegð og bílaeign í þriðja
heiminum.
Með allt þetta í huga kom
Chris Bangle upp með nokkuð
byltingar kennda framtíðarsýn
þar sem bíllinn er nokkurs konar
einmenningsumgjörð, með per-
sónueinkennum eigandans, en vél
og dekk væru staðlaðar eining-
ar sem fólk leigði eftir því sem
þörf væri á. Bíllinn yrði nokk-
urs konar persónu gervingur (e.
avatar) eigandans. Bensín stöðvar
dagsins í dag fengju svo nýtt hlut-
verk sem viðhalds- og geymslu-
stöðvar fyrir þá hluti sem fólk
samnýtir, dekk, mótora og raf-
hlöður. Hvert farartæki myndi
nota tvö dekk og vildu fleiri fara
saman, þá væri bílpersónugerv-
ingunum smellt saman og hóað
í fleiri dekk. „Einu sinni snerist
framtíðarsýnin um að bílar gætu
flogið. Það verður bara að koma í
ljós hvort mín sýn verður raunin
eða eitthvert millistig verður til,
það verður bara að koma í ljós,“
sagði Chris Bangle.
Persónugervingar á ferð
Reynslan frá Tókýó sýnir að eftir að settar voru upp hraðhleðslu-
stöðvar fyrir rafmagnsbíla sexfaldaðist notkun þeirra. Þó eru
hleðslustöðvarnar ekki mikið notaðar, fólk hleður bílana frekar
heima, að sögn Hiroaki Takatsu, forstjóra Raf-
magnsveitna Tókýó.
Takatsu sótti Driving Sustainability ráðstefn-
una í Reykjavík í nýliðnum mánuði, en hann
er jafnframt talsmaður fjölþjóðafyrirtækisins
CHAdeMO, sem vinnur að stöðlum og samhæf-
ingu fyrir rafmagnsbíla. Í máli hans kom fram að
í Japan notaði fólk hraðhleðslustöðvarnar að jafn-
aði tvisvar í mánuði. Framþróun í gerð rafhlaða
fyrir rafmagnsbíla segir Takatsu nú gera hraðari
hleðslu þeirra mögulega með hærri spennu. Með
því að koma upp háspennudreifikerfi til hraðhleðslu bíla segir Tak-
atsu raunhæft að notkun þeirra aukist verulega og þeir verði raun-
verulegur valkostur.
Tekið á vegalengdaótta
HIROAKI TAKATSU
CHRIS BANGLE Fyrrverandi
aðalhönnuður BMW lýsti sýn
sinni á framtíðarhönnun bíla
á Driving Sustainability ráð-
stefnunni sem
fram fór á
Hilton Nordica.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ELVIS
Styrktarkvöld Samhjálpar
Matseðill
með uppáhaldsréttum Elvis Presley
Fools gold loaf
★
Southern fried chicken
★
Peanutbutter and banana sandwich
★
Savory meat loaf
★
Baked apple and sweet potato pudding
★
Barbecue spare ribs
★
Sweet potato casseroles
★
Pound cake
★
Öflun heimilda og matreiðsla
er í höndum Brynjólfs Sigurðssonar
matreiðslumeistara.
STYRKTARFÉLAG SAMHJÁLPAR
Bjarni töframaður sér
um gleðina og heldur
uppi heiðri KÓNGSINS
með tónlist.
Binni matreiðslumeistari
hristir matseðilinn fram
úr erminni að hætti
Elvis Presley.
Húsið opnar kl 18.30
Verð kr 7.900.-
HÁBORG Stangarhylur 3a Laugard. 9. október 2010
Miðasala á skrifstofu Samhjálpar
Símar: 561 1000 og 661 1720