Fréttablaðið - 06.10.2010, Page 40
20 6. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Heimsins kóngalýður er, í mínum huga, þjóðum sínum yfirleitt til ósóma frek-
ar en hitt. Ég finn til með fjámálaráðherr-
um þessara þjóða, nú á niðurskurðartím-
um, að geta ekki skorið þennan tilvalda
útgjaldalið af rétt eins og botnlangatotu af
sjúklingi með botnlangabólgu.
ÞÓ ég hafi ekki áhuga á þessum lýð hef
ég ekki komist hjá því að sjá uppskrúfaðar
samkundur hans. Þá finn ég svo til við að
sjá svo stóran hóp af veruleikafirrtu fólki
að ég reyni að sannfæra mig um að þarna
eigi sér stað grímuball sem stofnað hafi
verið til af gamansemi.
ÞÓ kemst ég ekki heldur hjá því að bera
vott af lotningu fyrir tveimur persónum
úr þessum ankannalega hópi.
FYRSTAN skal þar nefna Jóhann Karl
Spánarkonung. Ástæðurnar fyrir
lotningunni eru tvær. Í fyrsta
lagi má segja að hann hafi unnið
fyrir því að vera einhvers konar
þjóðar leiðtogi. Í örðu lagi virð-
ist vera lífsmark með karli
og sker hann sig þannig úr
í þessu þurrprumpuliði.
JÓHANNI Karli fórst það
nefnilega vel úr hendi að
koma á lýðræði hér á Spáni eftir valdatíma
Francos en best stóð hann sig þegar herinn
gerði valdaránstilraun árið 1981. Þá komu
vopnaðir byssubrandar inn í þingið í miðri
atkvæðagreiðslu sem sjónvarpað var um
allt land. Sögðu þeir undir dynjandi byssu-
hvelli að nú væri herinn búinn að taka völd-
in. Kóngur ávarpaði þá þjóð sína og bað
hana ekki örvænta, engin stjórn tæki við
fyrr en kóngur kvittaði upp á slíkt og það
stæði ekki til. Valdaræningarnir treystu
sér ekki til að koma kóngi fyrir kattarnef
né áttu þeir mótleik við neitun hans.
EKKI heyri ég oft talað um Jóhann Karl hér
í hversdagslegu spjalli. En þó hef ég heyrt
þær getgátur að valdaránstilraunin hafi
verið spuni úr smiðju hans, til þess ætluð að
koma þeim skilaboðum á framfæri að Spáni
yrði ekki hnikað frá lýðræðisátt. Reynist
þetta satt má margfalda þessa lotningu
mína með tveimur.
EINS er sagt að kóngsi eigi það til að stinga
varðsveit sína af, dressa sig upp í leður og
fara um óáreittur á mótorfák sínum um
spænskar sveitir. Það rennur sem sagt í
honum bláa blóðið.
HIN undantekningin er Mary krónprins-
essa Dana en um þá lotningu mína verður
ekki fjölyrt hér.
Gull í kóngssorpinu
Varstu búinn að
heyra að Stígur og
Anna eru skilin?
Í alvöru?
Þau líka? Jamm.
Við vorum í
brúðkaup-
inu þeirra
og núna...
Búið
spil!
Hvað gerist
eiginlega?
Hvernig gerist
þetta? Það verður
að vera þolinmæði
og samstaða
í hjónabandi.
Fólk verður að
gefa hvort öðru
næði! Enginn er
fullkominn!
Hann svaf
hjá báðum
systrum
hennar
með
reglulegu
millibili!
Og hún gat
ekki unað
honum það?
Týpískt!
Pondus!
Nú lem ég
þig!
Ég skil það
mjög vel, láttu
vaða!
PALLI!
SÍMINN!
H‘ló?
Hæ. Bídd‘
aðeins...
Hvernig
vissirðu að
þetta væri til
mín?
Segjum
að ég hafi
giskað.
Hérna eru
skilaboðin til
þín í dag Palli
minn.
Verð að
þjóta,
sjáumst.
Hvað liggur á?
Klukkan er bara
hálf átta.
Við erum
að deila bíl,
manstu?
Alveg rétt,
bíllinn er á
verkstæðinu.
Þetta gæti
orðið
gaman.
Jú, en miðað við
hvað ég er heppinn
gæti ég lent á ein-
hverjum furðufugli.
Ég vissi
það.
Ég vissi
það.
LÁRÉTT
2. samtök, 6. úr hófi, 8. dýrahljóð,
9. eldsneyti, 11. hljóta, 12. barn,
14. yndis, 16. skóli, 17. gljúfur, 18. í
viðbót, 20. sjó, 21. snjóföl.
LÓÐRÉTT
1. tónlistarstíll, 3. í röð, 4. strits, 5. af,
7. skítugur, 10. léreft, 13. tækifæri, 15.
vond, 16. starfsgrein, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stef, 6. of, 8. urr, 9. kol,
11. fá, 12. kríli, 14. unaðs, 16. fg, 17.
gil, 18. auk, 20. sæ, 21. gráð.
LÓÐRÉTT: 1. rokk, 3. tu, 4. erfiðis,
5. frá, 7. forugur, 10. lín, 13. lag, 15.
slæm, 16. fag, 19. ká.
Ég ætla ekki að ljúga
að þér - þetta eru ekki
beint bestu gæludýrin!
Pósthúsið | Suðurhraun 1 | S: 585 8300 | www.posthusid.is
Nú þegar farið er að dimma úti viljum
við vinsamlega minna íbúa á að hafa
kveikt á útiljósum við heimili sín á
næturnar til að auðvelda blaðberum
Pósthússins aðgengi að póstlúgu.
Með fyrirfram þökk,
Pósthúsið
dreifingaraðili Fréttablaðsins og
annarra dreifinga
Blöð og tímarit
Bréfasendingar
Markpóstur
Fjölpóstur
Vörudreifing
Plöstun blaða
og nafnamerking
Munum eftir að
kveikja útiljósin!
Við látum það berast
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000N1 VERSLANIR
Þráðlaus 9mm
myndavél með barka
og 3,5” LCD skjá
Tilboðsverð
39.900 kr.
16108803AL
SKOÐUNAR-
MYNDAVÉL