Fréttablaðið - 06.10.2010, Qupperneq 41
MIÐVIKUDAGUR 6. október 2010
TAKTU
ÞÁTT!
SENDU SMS
-IÐ EST BUD
DY
Á NÚMER
IÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR U
NNIÐ!
FRUMSÝNDUR 7. OKTÓBER Í AUSTURBÆ
HENSON
LAGERSALA
AÐEINS Í ÞR
JÁ DAGA. Á
HORNI
BRAUTARHO
LTS OG NÓA
TÚNS.
Byrjar 7. okt
óber.
Opið frá kl. 1
2:00–18:00.
Laugardag f
rá kl. 11:00–
16:00.
FÓTBOLTI Landslið Íslands og Skot-
lands, skipuð leikmönnum 21 árs
og yngri, mætast á Laugardals-
velli á morgun. Liðin eigast við
í tveimur leikjum í umspili um
hvort liðið komist í úrslitakeppni
Evrópumeistarmótsins í Dan-
mörku næsta sumar en síðari leik-
urinn fer fram í Skotlandi á mánu-
daginn.
Eins og ítrekað hefur verið fjall-
að um fékk Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari U-21 landsliðsins, að velja
alla þá leikmenn sem höfðu aldur
til að spila með liðinu í þessu verk-
efni. Sjö þeirra sem hann valdi
voru valdir í A-landsliðið sem
mætti Noregi og Danmörku í síð-
asta mánuði. A-liðið mætir Portú-
gal á þriðjudaginn næstkomandi
og verður því án sjömenninganna
í því verkefni.
Það var stjórn KSÍ sem ákvað
þetta fyrirkomulag og hefur
ákvörðunin verið umdeild.
„Þessir strákar fá nú tækifæri
til að komast í lokakeppni stór-
móts, sem er draumur allra knatt-
spyrnumanna,“ sagði Eyjólfur,
spurður hvernig málið horfði við
honum. „Ef maður hefði sjálfur
haft tækifæri á því á ferlinum
hefði það verið stórkostlegt,“ bætti
hann við.
Eyjólfur segir að sú reynsla sem
hljótist af því að spila á stórmóti
trompi margt annað. „Vafalaust.
Við sáum hversu margir leikmenn
U-21 landsliðs Þýskalands komu
upp í A-landsliðið og slógu í gegn
á HM í sumar. Þeir eru nú komnir
til Real Madrid og annarra stór-
liða.“
Eyjólfur á ný fyrir höndum erf-
itt val á byrjunarliði Íslands en
í hópnum eru 22 leikmenn sem
allir hafa spilað með U-21 liðinu í
undan keppninni til þessa.
„Það er enginn með öruggt sæti
í liðinu og það verður enginn fúll,“
sagði Eyjólfur spurður hvort hann
ætti von á því að valið yrði erfitt.
„Ég stilli einfaldlega upp besta lið-
inu sem ég á hverju sinni. Þá er
líka gott að eiga menn sem geta
komið inn á og breytt leiknum.“
Aron Einar Gunnarsson spilaði
einn leik með U-21 landsliðinu í
riðlakeppninni þar sem hann var
annars alltaf með A-landsliðinu
sem hann hefur spilað með 20
sinnum undanfarin þrjú ár. Hann
segir það vissulega skrýtið að vera
með U-21 landsliðinu nú.
„Jú, það er skrýtið. Það er vissu-
lega ákveðin reynsla fólgin í því
að fá að spila á móti Cristiano
Ronaldo og hinum köllunum í
Portúgal en miðað við það sem er
í húfi í leikjunum gegn Skotlandi
er mér í raun alveg sama,“ sagði
Aron. „Það væri mikil reynsla
fyrir okkur að komast á stórmót.
Þá reynslu gætum við tekið með
okkur upp í A-landsliðið.“
Hann segir alla í liðinu tilbúna
fyrir verkefnið. „Ég er til í þetta
og líka strákarnir sem hafa verið
að spila með A-liðinu að undan-
förnu. Þeir eru klárir.“
Sem fyrr segir hefur Aron lítið
spilað með U-21 landsliðinu í
núverandi undankeppni en hann
segir að það ekki koma að sök.
„Ég hef spilað með einhverjum
í U-17 og U-19 landsliðunum. Ég
þekki alla þessa stráka og á ekki
von á að það verði vandamál að
spila með þeim.“
eirikur@frettabladid.is
Það verður enginn fúll
Íslenska U-21 landsliðið mætir á morgun Skotlandi í fyrri leik liðanna í umspili
um sæti í úrslitakeppni EM 2011 í Danmörku. Liðið er skipað gríðarlega sterk-
um leikmönnum enda fékk liðið forgang á leikmenn á undan A-landsliðinu.
BROSMILDUR Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 landsliðsins, var kátur á æfingu liðsins á Laugardalsvellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI