Morgunn - 01.06.1958, Page 48
42
MORGUNN
En hin klassísku orð Jónasar um dauðann er að finna
í því ljóði, sem sumir telja fegurst allra ljóða hans, í Ferða-
lokum, sem hann yrkir til stúlku, er hann hafði fellt hug
til löngu fyrr. Lokaorð þess fagra ljóðs geri ég að loka-
orðum þessara hugleiðinga:
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg,
en anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð aðskilið.
Þessi orð „listaskáldsins“ hafa fengið ríkan stuðning,
örugga staðfesting frá sálarrannsóknunum.
★
ÁRBÓK S.R.F.Í.
fyrir árið 1958 kemur á markaðinn í haust og verður ritgerðasafn
eftir hinn vinsæla hugsuð og skáld, Jakob J. Smára. Félögum sálar-
rannsóknafélagsins verður send bókin í póstkröfu — en þannig
greiðið þér félagsgjaldið — og auk þess verður hún seld hjá bóksöl-
um. Vafalaust verður mikil eftirspurn þessarrar bókar hins vinsæla
höfundar, svo að ráðlegra er að tryggja sér hana í tíma.
Eitthvað er enn til af árbókunum, sem áður hafa komið, en þær
eru: Bréf frá Júlíu og Sýnir við dánarbeði.