SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Síða 4

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Síða 4
4 5. júní 2011 D anskur sjónþjálfari sem væntanlegur er til landsins heldur því fram að í lang- flestum tilfellum séu gleraugu óþörf og hægt sé að laga sjón með því að þjálfa augun með markvissum æfingum. Forvitni Einhverjum kann að koma þetta spánskt fyrir sjónir og skyldi engan undra því umræða um slíka þjálfun hefur ekki farið hátt, að minnsta kosti ekki hér heima. Þegar sjónin versnar fá menn sér gleraugu eða linsur og hugleiða málið sjaldnast frekar. Þrír forvitnir Íslendingar heyrðu af umræddum manni, dr. Leo Angart, fyrir nokkrum misserum, kynntu sér þau fræði sem hann hefur stundað árum saman og í fyrra kom Angart til landsins og hélt námskeið á þeirra vegum. Birgir Jóhannsson, einn þre- menninganna, segir Angart hafa fengist við sjónþjálfun í 17 ár og segir hann einmitt hafa náð að laga mikla nærsýni hjá sjálfum sér með nokkurra vikna æfing- um á sínum tíma. Þannig hafi ævintýrið byrjað. Birgir tekur skýrt fram í sam- tali við blaðamann að ekki sé um gróðastarfsemi að ræða hjá Íslendingunum þótt vissulega kosti að taka þátt í námskeiði hjá dr. Angart, en hann gefi vinnu sína hér á landi og þeir sem standi að komu hans vinni einnig kauplaust og eigi engra hagsmuna að gæta. Birgir er rekstrarverkfræð- ingur, Hafsteinn G. Haf- steinsson er MA í átakastjórnun en hefur mikið unnið við aug- lýsingar og kvikmyndir og Guð- mundur J. Haraldsson er leik- stjóri. Kvikmyndagerðin sameinaði þá raunverulega í þessu verkefni því Birgir, Hafsteinn og Guð- mundur vinna nú að gerð heim- ildarmyndar um sjónþjálfun Danans og það sem hann hefur upp úr krafsinu fyrir Íslands- ferðina séu myndbrot sem þeir taki upp á námskeiðinu og hann fái að nota á heimasíðu sinni. Umhverfið hefur áhrif „Eftir að Gummi, sem er 48 ára, fékk einkenni aldursfjærsýni heyrði hann af dr. Angart og við urðum strax mjög forvitnir. Við komumst í samband við hann og höfðum áhuga á að fá hann hingað en þá kom í ljós að hann var bókaður í heilt ár.“ Þeir tóku sig þá til og lásu í staðinn allt sem þeir komust yfir um þann danska og aðra sem hafa stundað þessa þjálfun. „Seinna hafði Ang- art svo samband við okkur þegar ein vika losnaði og við fengum hann hingað í nóvember í fyrra.“ Þre- menning- arnir vilja fyrst og fremst vekja athygli á þessu fyrirbæri sem sjónþjálfun er því að þeir trúa á hana. Birgir segir hins vegar vel skiljanlegt ef al- menningur efist um gildi sjón- þjálfunarinnar og sjálfur hafi hann haft ákveðnar efasemdir á sínum tíma. Dr. Angart hafi hins vegar sannfært hann. Eins og í ræktinni Birgir segir að tæp 80% þeirra sem tóku þátt í námskeiðinu í fyrra og gerðu sjónæfingarnar hafi náð að losa sig við gleraugu. Sumir hafi einungis gert æfingar í skamman tíma, fundið mun á sér en ekki náð umtalsverðum árangri. Æfingarnar virki því vel en séu þær ekki gerðar náist að sjálfsögðu ekki árangur. „Þetta er eins og að fara í ræktina,“ segir hann. „Það er ekki nóg að kaupa sér kort! Þeir sem æfa vel ná árangri en ekki hinir.“ Birgir segir 98% allra barna vera með fullkomna sjón um fimm ára aldur. Eftir áratug í skóla sé hins vegar fjórðungur þeirra kominn með gleraugu, skv. evrópskri tölfræði, flest vegna nærsýni. Með þessu er hann ekki að segja að óhollt sé að vera í skóla (!) „heldur að í raun er það umhverfið sem hef- ur mest áhrif á sjónina. Ég get nefnt sem dæmi að árið 1985 þekktist ekki nærsýni á Græn- landi, þá var skólaganga lengd þar og upp úr því fór að bera á nærsýni hjá krökkum þótt full- orðna fólkið sæi vel eftir sem áður, bæði stutt eða langt.“ Einhæfni er slæm Það sem er óhollt, segir Birgir, er sem sagt ein- hæfnin. „Það er ekki til- viljun að mun fleiri skólamenn og skrifstofufólk eru með gleraugu heldur en jóga- kenn- arar, bændur eða menn í byggingavinnu.“ Hinir fyrrnefndu rýni mikið á sama stað allan vinnudaginn, sér- staklega þeir sem sitja mikið við tölvu, en sjón hinna flökti mun meira um. Þeir horfi bæði stutt og langt. „Fullkomin, náttúruleg sjón er innbyggð í líkamann en þegar hún versnar er hægt að snúa ferlinu. Málið snýst um að þjálfa vöðvana í kringum augun því með tímanum slappast þeir eins og aðrir vöðvar líkamans. Sjón- þjálfunin snýr því ferli við.“ Í hjólastól Birgir líkir þessu við að maður sem sæti allan daginn og kvart- aði undan því að fæturnir yrðu slappir yrði settur í hjólastól. „Hann kæmist um allt en vöðv- arnir í fótunum myndu ekki styrkjast.“ Þjálfun vöðvanna í kringum augun lúti sömu lögmálum og annars staðar í líkamanum. Þá þurfi að hreyfa til að halda þeim í þjálfun. Birgir heldur því fram að ef þeir sem nota gleraugu yrðu spurðir hvort sjónin hefði lagast eftir það yrði aðeins um tvö svör að ræða; annaðhvort hefði sjón- in staðið í stað eða versnað. Hún batni aldrei. Tvær ástæður eru fyrir því að augunum hrakar, að sögn Birgis. Annars vegar stress því það hef- ur áhrif á taugakerfið og þar með augun eins og önnur líffæri og hins vegar vondar sjón- venjur. Birgir segist ekki geta sagt til um hvers vegna sjónþjálfun sé ekki útbreiddari en raun ber vitni. Hún sé reyndar þekkt víða en ekki megi búast við að augn- læknar, sjóntækjafræðingar og gleraugnasalar taki henni fagn- andi. Hafi hann þó alls engan áhuga á að deila við þá. „Þeir læra allir sömu fræði og fara eft- ir þeim. En gaman yrði í fram- tíðinni að sjá þá kynna sér sjón- þjálfun og snúa sér að fyrir- byggjandi aðgerðum.“ Það er spurning hvort maður fer að æfa. Best að sjá til. Betur sjá augu en gleraugu Danski sjónþjálfarinn Leo Angart heldur því fram að hægt sé að laga sjónina með æfingum Vikuspegill Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Dr Leo Angart

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.