SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 22

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 22
22 5. júní 2011 H austið 1971 var Einar í landi að fara með bát sinn í slipp þegar hann varð var við neyðarblys sem síðar reynd- ist vera frá færeysku fiskiskipi. Þegar skipið fannst, hafði það rekið inn fyrir brimgarðinn vestur af Selvogi, með drauganet í skrúfunni, og drógu þeir skipið til Þorlákshafnar. Að sögn Einars er það liðin tíð að skip lendi í óhöppum sem rekja má til drauganeta. Stöðugleikamælingum ábótavant Hinn 2. desember sama ár bjargaði Einar fjögurra manna áhöfn þegar Ásdís, 20 lesta bátur, sökk skyndilega í vondu veðri. Einar og áhöfn hans á skipinu Jóni Vídalín voru að landa þegar tekið var eftir neyðarblysi. Leystu þeir þá bátinn og héldu út. „Við vorum komnir hérna inn að bryggju og vorum að byrja löndun þegar við sjáum blys koma frá Ásdísi. Ásdísi hafði hvolft úti við nesið, en þau komust í björgunarbátinn sem stefndi inn í grunnbrot. Við komumst sem betur fer inn fyrir þau áður en björgunarbáturinn lenti í briminu, sem hefði orðið til þess að þau hefðu endað á hvolfi,“ segir Ein- ar. Þegar síðasta manni hafði verið komið úr björgunarbátnum, slitnaði hann frá og því mátti þetta ekki tæpara standa. Einar vill meina að ekki hafi verið passað eins vel upp á stöðugleika báta í þá daga eins og er gert í dag, og telur hann það vera orsök þess að bátnum hvolfdi. Jafn- framt segir hann að stöðugleikamæl- ingar báta hafi ekki verið nægjanlega góðar og markvissar í þá daga, en úr því hafi verið bætt síðar meir. Alelda á mjög skömmum tíma Hinn 11. desember tveimur árum síðar, á afmælisdegi Einars, björguðu Einar og áhöfn hans á Arnari ÁR 55 síðan 12 manna áhöfn af skipinu Ingvari Einars- syni sem varð alelda úti af Vík í Mýrdal. „Það kviknaði í honum austur af Kötlugrunni og þegar að við komum að honum logaði stór hluti af honum. Áhöfnin var ekki komin í björgunarbát- inn, en ekki var hægt að komast að hon- um þar sem eldurinn hamlaði för þeirra þangað og því stóðu þeir frammi á stefni og komust þaðan yfir í bátinn til okkar. Við tókum Ingvar í tog og drógum hann eiginlega á þurrt, settum hann upp í fjöruna fyrir vestan Vík og þar sjást örugglega leifarnar af honum. Hin 30. október 1976 björguðu Einar og áhöfn hans enn á ný 6 manna áhöfn af skipinu Brynjólfi sem sökk skyndilega suðvestur af Surtsey. Svo heppilega vildi til að Arnar Ár 55, bátur Einars, var ekki langt frá og voru þeir í óðaönn að taka inn trollið. Þeir gátu því skorið á restina af trollinu þegar þeir sáu í hvað stemmdi og drifu sig af stað. „Það var bræla og þeir fengu belginn inn fyrir og sjó í lestina og þá varð ekkert við það ráðið,“ segir Einar. Illa hefði farið ef Einar og félagar hefðu verið lengra í burtu, þar sem björgunarbátur Brynjólfs hafði ekki blásist út. Þegar þetta gerðist var komið svarta myrkur og báturinn sökk mjög fljótt. Mennirnir hefðu því líklegast lent í sjónum í svarta myrkri og brælu. Einskær tilviljun Einar haut afreksverðlaun sjómanna- dagsins árið 1976 fyrir ofangreind björg- unarafrek, en nokkrum árum síðar komu Einar og áhöfn hans að gúmmí- báti, en þar innanborðs sátu tveir menn og hafði trilla þeirra sokkið. Hjálp- arbeiðnir þeirra höfðu engan árangur borið og ekkert hafði sést til neyð- arblysa. Það var því aðeins fyrir ein- skæra tilviljun að mennirnir, sem voru feðgar, fundust þarna úti á banka. Það var því ótrúleg tilviljun að örlögin höguðu því svo að Einar og áhafnir hans voru til taks þegar hjálparbeiðnir bárust. Þegar þessar fimm áhafnir hafa verið taldar, hefur Einar komið að því að bjarga 24 mönnum úr klóm hafsins. Bættur aðbúnaður Á árunum 1971–1979 fórust 150 sjómenn við störf sín. Þegar fjöldi drukknaðra sjómanna á þessum árum er borinn sam- an við fjölda síðustu ára má sjá gríð- arlegan mun. Má einna helst rekja það til mikilla framfara í sjávarútvegi og betri aðbúnaðar. „Það er ekki hægt að neita því að að- búnaður hefur allur breyst til batnaðar. Það eru kröfur tímans. Þótt flotinn okk- ar sé orðinn frekar gamall núna, hafa þessi skip mestmegnis verið endurnýj- uð,“ segir Einar. Hann bendir jafnframt á að öll ný- smíði taki mið af því að gera aðbúnað betri fyrir sjómenn, betri fyrir skipin sjálf og betri útbúnað fyrir vinnslu um borð. Þá kveðst Einar ánægður með störf Slysavarnaskóla sjómanna, sem menntar sjómenn í öryggisfræðum. Einar á og rekur útgerðina Auðbjörgu ehf. frá Þorlákshöfn. Auðbjörg var stofnuð árið 1971, en Einar keypti út- gerðina tveimur árum síðar. Í dag á út- gerðin þrjú skip sem og 100% eignarað- ild í Atlantshumri ehf sem á eitt skip til viðbótar, og er eru þá skipin orðin fjögur talsins. Sjómannadagurinn í Þorlákshöfn verður með glæsilegasta móti þetta árið þar sem bæjarfélagið á 60 ára afmæli um þessar mundir. Auðbjörg, útgerð Einars, mun bjóða gestum og gangandi til sigl- ingar. Sigling þessi hefur verið fastur liður í sjómannadegi Þorlákshafnar í fjölda ára og verður engin breyting þar á í ár. Til gamans má geta þess að alnafni Einars, sem alltaf var kenndur við Aðal- björgina, tók þátt í því að bjarga, ásamt hermönnum bandamanna, 198 sjóliðum af Skeena, sem var kanadískur tundur- spillir sem strandaði í Viðey árið 1944. Skipstjórinn Einar Sigurðsson við höfnina í Þorlákshöfn Bjargaði fimm áhöfnum á árunum 1971-1979 Einar Sigurðsson, skipstjóri og fyrrum oddviti bæjarstjórnar í Þorlákshöfn, hlaut af- reksverðlaun sjó- mannadagsins fyrir 35 árum. Björgunarafrek hans urðu til þess að bjarga samtals fimm áhöfnum á árunum 1971–1979. Róbert Benedikt Róbertsson robert@mbl.is Meðaltal yfir dauðsföll sjómanna 25 20 15 10 5 0 19 47 –5 0 19 51 –5 5 19 56 –6 0 19 61 –6 5 19 66 –7 0 19 71 –7 5 19 76 –8 0 19 81 –8 5 19 86 –9 0 19 94 -99 20 00 -04 20 05 -09 17 20 20 25 20 21 13 11 8 3 2 1 Graf Eins og sést á grafinu hefur dauðsföllum sjómanna fækkað umtalsvert. Athygli vekur að árið 2008 lést enginn sjómaður við vinnu sína.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.