SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 45

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 45
5. júní 2011 45 Þ að er hollt að halda bókhald yfir það sem maður les, þó það geti stundum komið óþægilega á óvart. Það getur nefnilega verið lærdómsríkt að sjá að maður er ekki bara að lesa meistaraverk bókmennt- anna svona dagsdaglega. Oftar en ekki grípur maður ein- hvern reyfarann eftir þung- lyndan Skandinava eða skvísusögu eftir glaðlyndan Engilsaxa í stað þess að sökkva sér niður í meistaralega grein- ingu á afleiðingum kúgunar nýlenduveldanna eða harm- þrungna frásögn af einmana- legu lífi fátækrar fjölskyldu í Fjarskanistan. Þetta ætti ekki að vera vandamál í sjálfu sér, það er ekkert athugavert við það að lesa skemmtilegar bækur, nei, vandamálið er það þegar ein- hver segir við mann: Ertu að lesa þetta drasl!? Ég geri reyndar ráð fyrir því að flestir þeir sem þetta lesa séu lausir við slíkt jóss, en þá líka að þeir þekki það frá æsku sinni, þekki þá tilfinn- ingu sem enskumælandi kalla „guilty pleasure“, þ.e. að njóta einhvers sem maður skammast sín fyrir að njóta. Þeirri spurningu hvers vegna maður les vondar bæk- ur hafa margir reynt að svara, til mynda skrifaði George Or- well grein um það sem er meðal annars í greinasafninu Stjórnmál og bókmenntir sem Bókmenntafélagið gaf út í lær- sómsritaröð sinni í hitteðfyrra. Sú grein fer reyndar að stórum hluta í það að telja lesandanum trú um það að þær bækur sem Orwell hélt upp á sem unglingur, og má ráða af textanum að hann kann enn að meta, hafi verið góðar bókmenntir þrátt fyrir allt. Orwell var nefnilega enn að glíma við samviskubitið eftir að einhver sagði við hann: Ertu að lesa þetta drasl!? Draslið lifi! ’ Þeirri spurn- ingu hvers vegna maður les vondar bækur hafa margir reynt að svara. Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Yfirvöld í Singapore eru vönd að virðingu sinni, svo vönd að bannað er að gagnrýna opinber- ar stofnanir opinberlega, þar með talið réttarkerfið. Þetta sannaðist áþreifanlega þegar breski blaðamaðurinn og rithöf- undurinn Alan Shadrake var handtekinn og síðar dæmdur fyrir að halda því fram á prenti að sitthvað væri bogið við rétt- arkerfið í landinu. Shadrake, sem er á 77. ald- urári, býr í Bretlandi og Malasíu og hefur gefið út ýmsar bækur og skrifað fyrir blöð víða um heim. Hann var handtekinn í Singapore fyrir tæpu ári, daginn eftir útgáfu bókar sinnar, Once a Jolly Hangman: Singapore Justice in the Dock. Í bókinni fjallar hann um dauðarefsingar í Singapore, en þeim er gjarnan beitt á andófsmenn og þá sem gagnrýnt hafa stjórnarfar í ein- ræðisríkinu sem hefur verið undir stjórn sama flokks í hálfa öld og sá flokkur undir stjórn feðga lungann af þeim tíma. Eitt af því sem vakið hefur mikla athygli í Singapore er að í bókinni ræðir Shardrake við böðulinn fyrrverandi Darshan Singh, sem stýrði aftökum í helsta fangelsi Singapore um áraraðir, en er nú komin á eft- irlaun og býr í Ástralíu. Auk þess ræðir Shadrake við mann- réttindafrömuði, lögmenn og fyrrverandi lögreglumenn. Að mati ríkissaksóknara Singapore varpar bókin rýrð á dómskerfi og sjálfstæði Singa- pore og því var Shadrake hand- tekinn og kærður fyrir að móðga réttinn. Bók hans var þó ekki bönnuð opinberlega, en bóksal- ar í Singapore urðu þó snimm- hendis við þeim tilmælum yf- irvalda að hætta að selja hana og hún er víst nánast ófáanleg í borgríkinu. Shadrake var sleppt gegn tryggingu og síðan var mál hans tekið fyrir í október sl. Í þeim málarekstri, sem lauk mánuði síðar, var hann dæmdur í sex vikna fangelsi og ríflega sekt, en Shadrake varði sig sjálfur með aðstoð lögfræðings sem barist hefur gegn dauðarefsingum. Shadrake áfrýjaði dómnum en hann var svo staðfestur fyrir áfrýjunarrétti í vikunni og Sha- drake var settur inn á miðviku- dag sl. Hann þarf að sitja inn í átta vikur hið minnsta, enda hefur hann lýst því yfir að hann muni ekki greiða sektina og því sitja tveimur vikum lengur í fangelsi, þó hugsanlega losni hann fyrr ef hann hegði sér sómasamlega í fangelsinu. Ýmsir hafa gagnrýnt dóminn, þar á meðal alþjóðleg samtök blaðamanna og mannréttinda- samtökin Amnesty. arnim@mbl.is Gagnrýni bönnuð Breski rithöfundurinn Alan Shadrake var settur inn fyrir gagnrýni. LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011 SUNNUDAGSLEÐSÖGN kl. 14, í fylgd Hrafnhildar Schram KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Eitthvað í þá áttina, sýning um kortagerð, skrásetningu og staðsetningu. 14. maí - 21. ágúst Byggðasafn Reykjanesbæjar: Bátasafn Gríms Karlssonar: Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn 15. maí – 15. sept. Róðu betur, kær minn karl - Af sjókonum á 18. öld Fyrirlestur 5. júní Ragnhildur Bragadóttir sagnfræðingur kl. 16.00 Sumarsýningin Fundað í Fjölni Fjölbreyttar sýningar í báðum söfnum Opið alla daga 11-18 www.husid.com sími 483 1504 Sýningarsalir safnsins eru lokaðir vegna uppsetningar sýningar. HLUTIRNIR OKKAR – safneign safnsins verður opnuð fimmtudaginn 9. júní kl. 17. Safnbúðin er opin á opnunartíma safnsins. Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. KRAUM og kaffi. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ 21. maí til 26. júní Harpa Árnadóttir MÝRARLJÓS Sýningin er hluti af Listahátíð Opið 13-17, nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Síðasta sýningarhelgi: Ljósmyndari Mývetninga. Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Stoppað í fat – Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 Myndin af Þingvöllum Sýningarstjóri: Einar Garibaldi Eiríksson Verk frá 1782-2011 eftir 50 höfunda OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði Hugvit Einar Þorsteinn Ásgeirsson List án landamæra - Abstrakt Jón B.K. Ransu og Guðrún Bergsd. Laugardag 4. júní Ratleikur - kl. 14 Fræðsla og útivist fyrir fjölskylduna í höggmyndagarðinum Víðistaðatúni. Styttuganga - kl. 15 Útilistaverkin í miðbæ Hafnarfjarðar skoðuð með leiðsögn. Gengið frá Hafnarborg Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.