SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 37

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Side 37
5. júní 2011 37 ásamt félögum mínum verkfræðistofu í áratugi og ég sótti hingað í slökun - en fyrir mörgum öðrum er veiðin alltaf keppni,“ segir hann og brosir. „Þeir vilja veiða sem mest. Ég er enginn stórveiðimaður. Ég er gutlari. Ég nota veiðina sem heilsubót og afslöppun. Þegar ég rak verkfræðistofuna var ég sífellt í hasar og samkeppni og þá var gott að koma hingað í sambandsleys- ið. Ég hef notið lífsins hér.“ „Það er ekkert sem toppar þessa á“ Við Árni Björn sitjum fyrir utan veiðihúsið Rauðhóla og drekkum kaffi. Þangað til okkar koma þau Andrés Magnússon, sem hefur veitt álíka lengi í dalnum og Árni Björn, og Ebba systir hans en hún hefur komið þangað í tvo áratugi og hefur setið í stjórn veiðifélagsins Ármanna eins og Árni Björn bróðir hennar; hún var fyrsta konan í stjórn stangveiðifélags hér á landi. Árni Björn hefur frá árinu 1988 alltaf veitt í þrjá daga í Laxárdal á vorin og aftur í þrjá eða fjóra síðustu dagana á haustin, áður en veiðinni lýkur í ágústlok. „Ég veiði síðan alltaf líka í sex daga í Mývatnssveitinni, fyrst um Jónsmessuna og síðan í ágúst - og svo veiði ég eitthvað smávegis annarsstaðar.“ Hann kímir. „Hér í Laxárdal var þetta hús komið þegar ég byrjaði að veiða hér en það var líka hægt að tjalda. Ég byrjaði hinsvegar að veiða í Mývatnssveitinni árið 1992 og þar var alltaf verið í tjaldi. Þar veiddi ég með Bjarna Kristjánssyni rektor, Jóhanni Bjarnasyni og Hauki Brynjólfssyni. Hérna í dalnum lærði ég allt sjálfur, á veiðina og veiðistaðina, en upp frá kenndi Bjarni mér á ána,“ segir hann og brosir. Það kemur á óvart að þrátt fyrir allar ferðirnar í Laxárdal hefur Árni Björn aldr- ei veitt þar í júlímánuði frá því hann kom þangað fyrst. Hann segist ætla að bæta úr því í sumar og er mjög spenntur fyrir því; þá ætlar hann að veiða með þurrflugu. En hver skyldi munurinn vera á því að veiða í Laxárdal og efra svæðinu, í Mývatns- sveitinni? „Himinn og haf!“ segir hann ákveðinn. Andrés bætir við að í Laxárdalnum þurfi að ganga mikið um þegar komið er að vori og kanna aðstæður, því botninn breyti sér svo mikið milli ára. „Það er mun erfiðara fyrir óvana að koma hingað í dalinn að veiða og ætla að setja í fiska,“ segir Árni Björn. „Oft tekur menn langan tíma að læra á ána hér. Ætli það hafi ekki tekið mig fimm til tíu ár að ná þokkalegur tökum á þessu. En eftir rúm tuttugu ár er ég samt ennþá að læra á ána. Í Mývatnssveitinni er áin auðveiddari og meira af fiski sem tekur. Hann er erf- iðari hérna, en hinsvegar er umbunin sú að hér er fiskurinn svolítið stærri að meðaltali. Það má fá stóra bolta hérna.“ Þeir segja erfitt að kenna óvönum á veiðisvæðið þar sem veiðistaðir breytast milli ára. „Á vorin hópar urrðinn sig og er víða í torfum. maður hittir ekki alltaf á slíkar torfur en það kemur fyrir og það er gaman,“ segir Árni Björn og glampinn í augunum staðfestir það. Þeir Árni Björn og Andrés fullyrða að áin verðlauni þá veiðimenn fyrir þolgæð- ið, sem leggi á sig að kynnast leynd- ardómum hennar. „Það er ekkert sem toppar þessa á, hér í Laxárdalnum. Hún er algjör snilld. Ég hef ekki fundið neitt í veiði sem toppar Laxárdalinn, ekki síst þegar gróðurinn er kominn vel af stað.“ En hvað með eftirlætis veiðistaði? „Ég gæti nefnt staði á öllum svæðum. Þeir eru allir í uppáhaldi. Ég gæti verið bara í Birningsstaðaflóanum hér við húsið í þrjá daga. Ef enginn fiskur tæki yrði ég líklega svolítið leiður, en það er gríðarlega mikið af fiski hér. Ég stoppa aldrei lengi á sama stað, ég er hér til að hreyfa mig og safna þreki; hreyfa mig og njóta náttúrunnar. Að fá fisk er bara bónus.“ Gaman að sjá fiskinn elta Það er svalt þótt við sitjum í skjóli við veiðihúsið og Árni Björn segir að ekki hafi verið svona kalt í opnun síðan vorið 1995 en þá fraus í lykkjum stanganna. „Þá gekk á með hríð og við gátum varla veitt fyrir snjókomu. Þá fékk Magnús tengdarsonur minn sinn fyrsta fisk og hann man vel eftir þeirri ferð. Veðrabrigðin geta líka verið snögg hér. Eitt árið sveiflaðist hitinn um ein 26 stig á einum degi. Við fórum út í hörku frosti en um kvöldið voru menn að veiða berir að ofan í vöðlunum. Það var ævintýralegt.“ Aftur berst talið að muninum á veið- inni í Mývatnssveit og Laxárdal og segir Árni Björn veiðina tvisvar til þrisvar sinnum meiri í Mývatnssveitinni, en þar er líka veitt á fleiri stangir. „En hér þarf meira að leita að fiski og það er skemmtilegra að ná honum,“ segir hann. „Hér þarf að hafa fyrir þessu. En veiðitæknin hefur breyst talsvert. Hér áður fyrr veiddu menn bara með straumflugum, stundum með dropper, en nú er andstreymisveiðin orðin mjög algeng. Það er nýtt og menn veiða miklu meira á þann hátt. Þetta er hluti af þró- uninni. Einn veiðifélagi okkar, Valgarð Ragn- arsson, var að leggja til að veiðimenn ættu að sleppa öllum fiski sem þeir veiða andstreymis en þeir gætu tekið þá sem elta straumfluguna og taka. Mér finnst það ekki vitlaus hugmynd. Sjálfur hef ég ekki veitt mikið með andstreymistækninni, mér finnst skemmtilegra að kasta straumflugu, og finnst gaman að sjá fiskinn elta. En hver hefur sitt lag á þessu, þetta er eins og með ánamaðkinn, fluguna og spúninn. Þegar veitt er andstreymis er agnið fært nær fiskinum og sumir ná gríðargóðum ár- angri í því. Mér finnast báðar aðferðirnar ágætar.“ Spurningin hvenær hann tekur Við Varastaðahólma kastar Árni Björn á báðar hendur þegar hann veiðir sig niður strengina. Að þessu sinni nær hann ekki að landa fiski þótt þeir séu þarna, enda eru aðstæðurnar ekki beint veiðimönn- um vinsamlegar, í bítandi kuldanum. Jónas veður upp gegn straumnum og kastar stutt fram fyrir sig, með þrjár púpur á taumnum og tökuvara. Í eitt sinn bregður hann við fiski og hátt upp úr vatninu hendist þriggja til fjögurra punda urriði en losnar af króknum. Þegar Árni Björn kemur aftur upp í hólmann lítur hann yfir strengina og seg- ir að reynslan hafi kennt sér að fiskarnir séu þarna víða. „Aðal tökustaðurinn er við grjótið þarna,“ segir hann og bendir, „þar hjá er stríður straumur og flúðir á milli, þar má líka hitta á hann. Svo liggja fiskar í rennunni hérna við landið, og í gamla daga lá hann oft í víkinni fyrir handan, í kyrrara vatni. Þó við förum héðan fisklausir, eða setjum í einn eða tvo og missum þá, þá vitum við samt að hann er hérna. Spurningin er bara hve- nær hann tekur,“ segir hann og brosir. Þegar ég spyr hvort þa sé einhver regla hvenær urriðin tekur, þá segist Árni Björn ekki geta sagt til um það, bætir síð- an við að það sé ekki gæfulegt að kasta í tveggja til þriggja stiga hita. Hann lítur aftur út yfir ána og hugsar sig um, segir síðan að það gangi ekki allt- af jafn vel. „En þetta er ævintýraheimur og margir veiðimenn hafa ekki hugmynd um að hann sé til.“ Morgunblaðið/Einar Falur „Maður veiðir bara þegar línan er í vatninu,“ segir Árni Björn Jón- asson og lyftir stönginni við Varastaðahólma ofarlega í Lax- árdalnum. Skyldi hann vera á? „Veiðimenn hafa ýmsa sérvisku. Ég hef veitt með þessa húfu í yfir tuttugu ár,“ segir Árni Björn Jónasson verkfræðingur þegar við Jón- as sonur hans höfum vaðið út í Var- astaðahólma í Laxá í Laxárdal, í Suður- Þingeyjasýslu, þar sem þeir köstuðu síðan flugum sínum fyrir urriðana. Þeir feðgar voru í hópi veiðimanna sem „opnaði“ þetta róm- aða urriðasvæði um helgina og gekk vel, þrátt fyrir umtalsverðan kulda; hollið fékk um 100 silunga á stangirnar tíu og flesta ríg- væna. Í hópnum voru fleiri skyldmenni Árna Björns; Ragna dóttir hans, tengdasonurinn Magnús og Ebba systir hans. Fjölskyldan heldur tryggð við þennan hrífandi dal og ána sem um hann rennur. Með eru líka veiði- félagarnir Hilmar Ragnarsson, Andrés Magn- ússon, Þorbjörn Helgi Þórðarson, Valgarð Ragnarsson, Gunnar Baldur Norðdahl, Alex- ander Smárason, Jón Eyjólfur Jónsson, Ás- geir Böðvarsson og Björn Steinar Sólbergs- son. Það sem Árni Björn kallar sérvisku veiði- manns, bláu prjónahúfuna, má líka segja um ástundun hans á þetta svæði, Laxárdalinn, en þar hefur hann veitt í opnunarhollinu síð- ust 23 árin. Og hefur hann einnig veitt í síð- asta holli sumarsins ár hvert og ennfremur í sex daga á sumri í Laxá í Mývatnssveit, svæðinu fyrir ofan Laxárdal. Í árnefndum Laxár í Laxárdal og Hítarár Árni Björn rak í tæp þrjátíu ár verkfræðistof- una Línuhönnun og sinnir ennþá ýmiskonar verkfræðistörfum og ráðgjöf. Hann veiðir ekki bara í Laxá í Laxárdal heldur er þar líka í árnefndinni. „Árnefndin var stofnuð þegar Stangaveiði- félag Reykjavíkur tók við svæðinu fyrir tveim- ur árum,“ segir hann. „Þá komu í hana fjórir menn að norðan og ég að sunnan. Síðan hefur reyndar verið fjölgað í nefndinni enda hefur verkefnunum fjölgað.“ Þetta er ekki eina árnefndin sem Árni Björn situr í fyrir SVRF. „Nei, ég hef líka verið í árnefnd Hítarár. Í gamla daga var ég að aðstoða Odd Helga- son, fyrrum leigutaka hennar og tengdason hans og vin minn Steinar Friðgeirsson, en ég byrjaði að veiða í Hítará ásamt félögum árið 1982 og hefur sá hópur veitt í henni síðan. Þegar SVFR tók ána yfir æxluðust mál þann- ig að ég lenti í árnefndinni og sá verk- fræðistofan sem ég rak, Línuhönnun, einnig um endurbygginguna á veiðihúsinu Lundi við Hítará, ásamt Vatnari Viðarssyni arkitekt, þeim mikla öndvegismanni.“ Veitt með Árna Birni Jónassyni í Laxá í Laxárdal Hefur veitt í opnunarholl- inu síðustu 23 árin Árni Björn Jónasson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.