SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 14

SunnudagsMogginn - 05.06.2011, Blaðsíða 14
14 5. júní 2011 V ið erum á uppleið. Með lyftunni á Hilton. Fyr- irheitna landið er betri stofan á áttundu hæð sem Eggert Jóhannesson ljósmyndari mælir af- dráttarlaust með. Ég veit að Eggert er smekk- maður og Eiður Smári Guðjohnsen treystir því bersýnilega líka. „Þessi stofa er fyrir fræga fólkið,“ laumar Eggert sposkur að mér. Látum hann þekkja það, kappinn er ný- kominn heim af stefnumóti með Lady Gaga. „Er þetta mikil stássstofa,“ spyr ég prúðbúinn hótelmann sem fylgir okkur (alltaf gaman að sletta orðum með þremur samliggjandi essum yfir menn). „Já, þetta er „lounge“ fyrir svíturnar okkar á níundu hæðinni,“ svarar hótelmaðurinn stoltur. Eiður Smári mælir hann út með augunum. Lætur það svo flakka: „Það vantar alveg svona „lounge“ á fimmtu hæð- ina.“ Hann glottir við tönn. Hvurslags er þetta eiginlega? Er íslenska a-landsliðinu í knattspyrnu í kot vísað hér á Hilton? Varla yrði farið svona með 21 árs-landsliðið! Ekki veit ég hvort hótelmaðurinn prúðbúni les þessar ósvífnu hugsanir mínar, í öllu falli bif- ast hann ekki frekar en birkið á Kjalarnesinu. „Lounge-ið“ stendur undir væntingum og vel það. Út- sýnið er stórfenglegt. „Þarna er gamla góða Esjan,“ upp- lýsir Eiður Smári og stökkbreytist eitt augnablik í útskeifan hreppamann. Það er brýnt að hafa fasta punkta í tilver- unni. Annar prúðbúinn hótelmaður býður okkur hress- ingu. Bara vatn, segi ég til að ganga í augun á íþróttamann- inum sem feykir mér hins vegar um koll eins og hverri annarri keilu með því að biðja um appelsín – íslenskt í þokkabót. Glösin eru full og ekki eftir nokkrum sköpuðum hlut að bíða. Eiður Smári er fyrst spurður hver staðan sé á hans knattspyrnuferli? „Ég er laus allra mála hjá Stoke og staðan akkúrat núna er sú að Fulham hefur gert mér samningstilboð sem ég er að skoða. Þetta er samningur til eins árs með möguleika á öðru ári. Ég hef verið mjög ánægður hjá Fulham og er hrifinn af félaginu, þjálfarateyminu og leikmönnunum, þannig að ég mun að sjálfsögðu skoða þetta tilboð mjög vandlega.“ – Er Fulham þá fyrsti kostur? „Já, eins og staðan er í dag.“ – Er þetta ásættanlegt tilboð? Þá er ég að tala um lengd samningsins. „Það held ég. Maður er ekkert unglamb lengur, kominn yfir þrítugt,“ segir Eiður og brosir. (Viðtalið fór fram á miðvikudegi, daginn eftir sagði Mark Hughes starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Fulham. Í samtali við Sunnudagsmoggann á föstudag sagði Eiður Smári of snemmt að meta hvaða áhrif það hefði á sína stöðu en hann muni að sjálfsögðu fylgjast grannt með þróun mála hjá félaginu á næstunni.) Lifnaði allur við – Var mikill léttir að komast til Fulham frá Stoke? „Já, ég lifnaði allur við eftir þau vistaskipti. Það var erfitt í Stoke og engan veginn eins og ég hafði gert mér í hug- arlund.“ – Hvað gerðist hjá Stoke? „Til að gera langa sögu stutta þá stillti þjálfarinn mér ein- faldlega ekki upp. Ég kom til Stoke á elleftu stundu og vitað Eiður hendir reiður Á ýmsu hefur gengið hjá Eiði Smára Guðjohnsen eftir að hann yfirgaf Barcelona fyrir tveimur árum. Hann fann sig ekki í Mónakó, hvarf óvænt frá Tottenham, var hrað- frystur hjá Stoke City en lifnaði aftur við hjá Ful- ham undir vorið. Hann hefur enn drjúgan vilja til að leika knattspyrnu en viðurkennir að vera farinn að huga að lífinu sem bíð- ur hans þegar skórnir fara á hilluna. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.