Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 29
Haukur Kristjánsson
og
Sverrir Gislason:
Norðurárdalur.
1. LANDSLAG.
Norðurárdalurinn er nyrzta sveit Borgarfjarðar og
skerst nál. 30 km. norðaustur í hálendið. Suðaustan hans
er lágur, klettóttur háls, er Grjótháls nefnist, en hann
skilur milli Norðurárdals og Þverárhlíðar. Þegar Grjót-
hálsi sleppir, taka við Hellistungur og ná þær allt upp
til Holtavörðuheiðar, en þar eru innstu drög Norðurár-
dals. Norðvestan dalsins er allhár fjallgarður, sem mynd-
ar einskonar tengilið milli Snæfellsnesfjallgarðar og meg-
in-hálendis landsins. Mörg há og tíguleg fjöll eru á fjall-
garði þessum og eru þeirra helzt: Vikrafell, fornt eld-
fjall, er stendur all-langt vestur frá Hreðavatni, þá
Hraunsnefsöxl (sem er vestasti hluti Hvassafells eða
Brekkufjalls) með háu, þverhníptu hamrabelti þeim meg-
in, er að dalnum snýr. Norðaustan Hvassafells skerst
Bjarnadalur norður í fjallgarðinn. Hann greinist í marga
smærri dali. Um hann liggur þjóðvegurinn til Breiða-
fjarðardala. Austan Bjarnadals stendur Baula, fegursta
fjall í nágrenni Norðurárdals og þótt víðar sé leitað. Hún
er 930 m. á hæð, keilulaga, með snarbröttum hlíðum, öll
er hún byggð upp af líparíti. Af tindi hennar er furðulega
víðsýnt, er talið, að í heiðskíru veðri sjáist þaðan í'tíu
sýslur, einkum er þó gott útsýni yfir Borgarfjörð og Dali.
Norðaustur af Baulu eru ýmsir fleiri hnúkar, svo sem
Litla-Baula og Baulusandur. Sanddalur nefnist dalur einn
mikill, er skerst í há-norður milli Hvammsmúla og Sveina-
tungumúla, hann nær allt upp til Snjófjalla, sem er hár
fjallaklasi austur af Holtavörðuheiði. í Sanddal eru nú
tveir bæir, en hafa verið fleiri fyrr á öldum. Upp af botni
Norðurárdals er Holtavörðuheiði, víðfeðmir flákar, þar