Svanir - 01.05.1939, Qupperneq 56
50
sæld og fegurð náttúrunnar og myndarbragur húsbænd-
anna.
Á Brekku býr síðan 1919 Þórður Ólafsson, Ólafssonar
bónda á Dysey 1890—1909. Móðir Þórðar, kona Ólafs,
var Guðrún Þórðardóttir, Jónssonar, er bjó á Brekku fyrir
eða um 1860—1908. Kona Þórðar er Þórhildur Þorsteins-
dóttir, Sigurðssonar á Hamri í Þverárhlíð. Sigurður, faðir
Þorsteins, bjó á Dýrastöðum frá 1869—1881. Börn þeirra
Þórhildar og Þórðar eru: Þórunn Erna, Ólafur og Þor-
steinn.
Á Dysey býr síðan 1929 Sigríður Daníelsdóttir og Ólaf-
ur Tómasson. Fluttu þau í dalinn 1915, þá að Sanddals-
tungu. Eru þau ættuð úr Vestur-Húnavatnssýslu.
Á Hraunsnefi býr síðan 1938 Einar Vigfússon, Bjarna-
sonar, áður hreppstjóra og bónda í Dalsmynni. Kona Ein-
ars er Ragnhildur Jóhannesdóttir, flutt í dalinn vestan úr
Dalasýslu. Þau Einar og Ragnhildur bjuggu á Hreims-
stöðum frá 1917—1937. Börn þeirra eru: Þorbjörg og
Jóhanna. Annað heimilisfólk: Bjarni Einarsson, eigandi
jarðarinnar og ábúandi nokkurs hluta hennar (Bjami er
dóttursonur Árna Guðmundssonar, sem bjó á Hraunsnefi
frá 1874—1897), Jóhanna Þórðardóttir, móðir húsfreyju,
og Anna Jónsdóttir, báðar fluttar í dalinn úr Dalasýslu.
Á Hraunsnefi bjó 1907—1938 Þorbjöm Ólafsson, Ólafs-
sonar á Dysey, og kona hans Guðný Bjamadóttir, ættuð úr
Árnessýslu. Létu þau af búskap s. 1. vor og fluttu í Borg-
arnes.
Á Hvassafelli býr síðan 1929 Þorsteinn Snorrason, Þor-
steinssonar, sem lengi bjó á Laxfossi, og konu hans, Guð-
rúnar Sigurðardóttur frá Efstabæ. Kona Þorsteins er Sig-
urlaug Gísladóttir frá Hvammi. Börn þeirra hjóna eru:
Snorri og Gísli. Annað heimilisfólk: Kristín Gísladóttir,
systir húsfreyjunnar, og Jón Bjarnason, ættaður úr Staf-
holtstungum.
I Dalsmynni býr síðan 1920 Sesselja Jónsdóttir, ekkja
Jóns Vigfússonar, Bjamasonar, sem bjó í Dalsmynni frá
1878—1920. Hreppstjóri frá 1902—1934. Bjarni, faðir