Birtingur - 01.06.1962, Qupperneq 59

Birtingur - 01.06.1962, Qupperneq 59
leika, göfugmennsku, ást á fólki, allt sem fær okkur til að þykja vænt um eftirlætishetjur okk- ar í skáldskap." (Ræða Tvardofskís í „Soviet Li- terature" nr. 1, 1962.) Rithöfundur in n ,,hefur stöðugar á- hyggjur af því, hvað er leyfilegt og hvað er ekki leyfilegt." Þcssi ummæli hitta beint í mark og geta ekki sannari verið. í allri ræðu Tvardofskís voru engar skammir um ungu kynslóðina. Þeim mun eftirtektarverðara er, að ræðu hans skyldu yfirvöldin hafa gefið einkunnina: „Stormandi, langvarandi lófa- klapp.“ Ræða Tvardofskís var sem hressandi andblær. Það eitt, að honum skyldi vera leyft að flytja þessa ræðu sýnir glögglega, að munur er á and- legu frelsi f tíð Stalíns og nú. Hefði Tvardofskí sagt þessi orð á þeim tíma (þegar þau áttu enn betur við), þá hefði hann ekki þurft að kemba hærurnar. Fjölmargir rithöfundar vonuðu að ræða Tvard- ofskís táknaði, að takmörk hins leyfilega hefðu verið færð örlítið út, hættusvæðið dregið saman. Árum saman hafa þeir einmitt fengizt við það eingöngu að útlista hugmyndir úr ritstjórnar- greinum Prövdu og úr flokksskjölum með orðum og athöfnum andvana og líflausra sögupersóna. Samt er vafasamt að á eftir fylgi nokkur breyt- ing. Hingað til hafa allir þeir höfundar og lista- menn sem hafa reynt að blása lífsanda í nasir verka sinna, fengið rækilega á baukinn og Hrús- joff sjálfur jafnvel ómakað sig að skipa fyrir um meðferðina á þeim. „Ég get líka þjarmað obboð- lítið að ykkur," sagði hann á síðasta þingi rit- höfunda, en þau ummæli voru ekki birt í Prövdu. Það eru einkum ungir rithöfundar og listamenn, sem hafa reynt að brjóta upp á einhverju nýju og reyna að skapa list. Þeir hafa haft í frammi óróa í þjóðfélaginu og orðið valdsmönnum á- hyggjuefni. Solokoff og Tvardofskí veittu hinum ungu stuðning. Ek'ki voru þó allir ræðumenn á því niáli. Gríbatsoff, sá er áður var nefndur, á ekki orð til að lýsa hneykslun sinni yfir nokkr- um rithöfundum, sem ,,bitu á agnið hjá vest- rænum sálnaveiðurum" og kröfðust þess, að flokkurinn breytti um stjórnarhætti á bókmennt- um og vildu jafnvel, að allt væri prentað, sem fært væri í letur án redaktora (en redaktorar sitja í útgáfufyrirtækjum og sníða og klippa texta bóka í' samráði við ritskoðunina). Einn þessara rithöfunda dirfðist jafnvel að láta út úr sér ann- að eins og það, að „rithöfundur hefur rétt til þess að láta gamminn geysa“. En svo léttir Gríbatsoff fyrir brjósti, þegar hann minnist þess, að Ní'kíta Sérgéévits Hrúsjoff og Miðstjórn Kommúnista- flokksins „veittu bókmenntum okkar skjóta og áhrifaríka hjálp. Þruma, sem drundi yfir okkur einn sumardag, sópaði burt sorpinu, hreinsaði andrúmsloftið og veðrið gerðist gott á ný“. Með þessu esópsmáli á ræðumaður við það, að um tíma á árinu 1956—7 dottaði ritskoðunin, og birt voru nokkur verk um lifenda líf. Fyrir þann krana var skjótt skrúfað með atfylgi æðstu flo'kks- BIRTINGUR 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.