Vera - 01.09.1989, Blaðsíða 27
#
• *,
_ , , * ; '* jf .... .
4^ i ' ** jf *'
-
Viö sjóinn, sem um-
lykur Aukland á
nœstum alla vegu.
Stráin í baksýn láta
kannski ekki mikiö yf-
ir sér en Márarnir,
frumbyggjar Nýja Sjá-
lands trúa því aö í
þeim búi „mana",
sállr mannanna í ein-
hvern tíma eftir dauö-
ann.
ekki búnar að gefa karlmenn upp á
bátinn, eins og mér finnst ég finna á
konum hér. Þær eru hreinlega búnar
að gefast upp á þeim. Það er auðveld-
ara í stærri samfélögum, þar sem hver
og einn leikur minna hlutverk. ís-
lendingar hafa aldrei getað leyft sér
þann lúxus að hafa konur eins og
stáss inni í stofu og þar af leiðandi
hafa þær alltaf verið virkar í samfélag-
inu.
Auðvitað eru íslenskir karlmenn
karlrembur en íslenskar konur eru
kvenrembur. Kannski er þetta jafn-
ræði í rembunni það sem er svo
óskaplega ólíkt með þessum tveimur
þjóðum. Hér eru bara karlmennirnir
karlrembur, og meira að segja voða-
legar karlrembur, en konurnar gefa
þeim ekki færi, því þær vilja ekki tala
við þá.
Ég held að þessi leið sé ekki rétt, en
ég er ekki viss um að mér takist að
sannfæra nýsjálenskar konur um það.
Þær geta bent á að hér hafa margar
konur náð mjög langt. Það sem þær
gleyma er að eftir sem áður mynda
velflestar hinna kvennanna neðsta
lagið á vinnumarkaðinum, og þá er
lítið gagn í nokkrum konum á toppn-
um.
Ég held að hugsunarhátturinn í
kvennabaráttunni hér sé svo langt á
eftir því sem ég þekki frá Evrópu að
eftir á að hyggja er ég undrandi á því
að flugmaðurinn skuli ekki hafa sagt
í hátalarann, þegar við lentum í Auk-
land: Gjörið svo vel að stilla klukk-
una 25 ár aftur í tímann." aób.
SIEMENS-gæð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020
■ Breidd 60 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
HN 26020
■ Breidd 50 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið.
• Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.
• Glitnir, Borgarnesi
• Rafstofan Bæ, Borgarfirði.
• Guðni Hallgrímsson, Grundartirði.
• Verslunin Blómstun/ellir, Hellissandi.
• Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal.
• Póilinn hf., isafirði.
• Rafsjá hf„ Sauðárkróki.
• Sir hf„ Akureyri.
• Grimur & Árni, Húsavík.
• Raftækjav. Sveins Guðmundss., Egilsstöðum.
• Rafvöruverslun Stefáns N. Stefánssonar,
Breiðdalsvík.
• Kristall, Höfn I Hornafirði.
• Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli.
• Árvirkinn hf„ Selfossi.
• Raftækjaverslun Sigurðar Ingvarssonar, Garði.
• Ljósboginn, Keflavík.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Frá Heimspeki-
skólanum
Samræðu- og rökleikninámskeið fyrir 10—15 ára stelpur og
stráka hefjast 18. september.
Innritun og upplýsingar í síma 628088 frá 10.-16. septem-
ber.
27