Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 18

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 18
unni og þess vegna fjölgar þeim með hverju ári sem ná að uppfylla gömul og hefðbundin viðmiðun- armörk um afurðir. Haustið 2003 voru samtals 248 skýrsluhaldarar sem náðu því marki að framleiða 30 kg eða meira eftir hverja skýrslufærða á að meðaltali. I töflu 2 er gefíð yfirlit um örfáa af þeim skýrsluhöldurum sem efstir stóðu með framleiðslumagn eftir hverja á haustið 2003. Eins og sjá má þá eru þetta yfirleitt örlitlar hjarðir, en þeim er það sammerkt að féð býr við einstaka fóðrun og meðferð og í flestum þessum hjörðum er einnig að baki löng og öflug ræktunarsaga. Frábær ár- angur mældur í framleiðslumagni þarf því engum að koma að óvart. Að þessu sinni skipar efsta sætið Þorvaldur Jónsson á Innri-Skelja- brekku í Borgarijarðarsveit en sjö ær hans skila að jafnaði tveim fá- dæma vænum lömbum að hausti og reikað framleiðslumagn hjá hverri þeirra var 49,5 kg af dilka- kjöti. Enn áhugaverðari er saman- burðarlisti um “alvörubú”, þ.e. þar sem fleiri en 100 ær eru skýrslufærðar og æmar ná að skila 28 kg af dilkakjöti eða meira. Haustið 2003 vom það samtals 283 skýrsluhaldarar sem fylltu þann flokk eða nær 40% fleiri en árið áður, en sú mikla aukning skýrist bæði af auknum íjölda skýrsluhaldara og vænni dilkum víðast um land en árið áður. Tafla 3 gefur yfirlit um þau bú sem haustið 2003 stóðu efst á lista um búin í þessum flokki. Likt og þeir lesendur rita, sem þekkja hliðstæð skrif frá fyrri ámm, þá em flest búin sem skreyta þennan lista vel þekkt af honum frá fyrri árum. Þama gefur samt að þessu sinni að líta ný bú. Líkt og svo oft á síð- ustu ámm þá skipar bú þeirra Indriða og Lóu á Skjaldfönn efsta sætið. Hjá þeim vom árið 2003 213 fullorðnar ær skýrslufærðar og þær skiluðu að hausti að jafn- aði 1,77 lömbum til nytja og líkt og áður var vænleiki var fágætur þannig að reiknað framleiðslu- magn eftir hverja á reyndist 38,3 kg af dilkakjöti. Þó að þetta sé frá- bær árangur vantar aðeins á að þau nái að hnekkja eigin meti frá haustinu 2000. Mesta keppni veit- tu þeim nágrannar þeirra Reynir og Ólöf í Hafnardal en hjá þeim voru 254 ær að skila að jafnaði 37,4 kg af dilkakjöti, frjósemi var heldur meiri en á Skjaldfönn eða 1,88 lamb til nytja eftir ánna en fallþungi heldur minni þó að hann væri feikilega mikill. Síðan koma afreksbúin af Vatnsnesinu. Efst þeirra haustið 2003 var bú Heimis Ágústssonar á Sauðadalsá en 338 ær hjá honum voru að meðaltali að skila 2,01 lambi til nytja haust- ið 2003 sem verður að teljast frá- bært eftir slíkan fjölda áa og reiknuð framleiðsla ánna er að meðaltali 37,0 kg af dilkakjöti. Nágranni hans, Ellert Gunnlaugs- son á Sauðá, kemur fast á hæla hans en hjá honum em 357 ær að skila að meðaltali 36,7 kg af dilkakjöti haustið 2003. Ullin Því miður verða engar meiri- háttar breytingar hjá skýrsluhöld- urum ijárræktarfélaganna með skráningu á upplýsingum um ull- arþunga ánna. Það em að vísu talsvert fleiri ær sem slíkar upp- lýsingar er að finna um en árið áð- ur en samt ekki nema 404 samtals og ullarmagn þeirra var 2,56 kg að meðaltali. Það hlýtur að vera verulegt álitamál hvort ekki muni eðlilegt að hætta skráningu þess- ara upplýsinga í skýrsluhaldinu þegar það er aðeins brot úr pró- senti af öllum ánum sem þessar upplýsingar eru skráðar fyrir. Þó að ljóst sé að ullin er orðin hrein hliðarafurð í framleiðslu sauðfjár- ræktarinnar í landinu þá hlýtur jafn mikið áhugaleysi um þennan þátt og þessi upplýsingaöflun ber vitni um að vera nokkurt um- hugsunaratriði. í þessari yfirlitsgrein er ekki fjallað um niðurstöður skýrslu- haldsins um kjötmat sláturlamb- anna en vísað til sérstakrar grein- ar um það á öðrum stað í þessu blaði. Veturgamlar ær Að síðustu verður líkt og áður í hliðstæðum yfirlitsgreinum vikið nokkuð að sumum helstu niður- stöðutölum um veturgömlu æmar árið 2003. Fram hefúr komið að þær voru samtals 45.841 (42.538) og fjölgun þeirra í skýrsluhaldinu frá árinu áður hlutfallslega tals- vert minni en hjá fúllorðnu ánum sem gefúr tilefni til að ætla að lambaásetningur hafi verið hlut- fallslega minni haustið 2002 en haustið 2001. Ásetningsgimbram- ar haustið 2002 vom nákvæmlega jafnvænar og árið áður, eða 41,1 kg að meðaltali, sem verður að teljast góður vænleiki. Fóðmn á gemlingum er víðast orðin mjög góð og það endurspeglast m.a. í þungaaukningu gemlinganna yfír veturinn sem reyndist að þessu sinni 12,1 kg (11,8) að jafnaði. Frjósemi hjá veturgömlu ánum var mjög áþekk og árið áður, að meðaltali fæddustu 0,83 lömb (0,82) og 0,69 (0,69) fengust til nytja að hausti. Af gemlingunum er skráð að 6254 af þeim hafi ekki verið haldið eða 13,72% þeirra sem lifandi vom að vori og er það heldur lægra hlutfall en árið áður. Að þeim gemlingum sem hins vegar var ætlað að eiga lömb vor- ið 2003 reyndust 7.558 þeirra eða 19,22% algeldir, 25.832 vom ein- lembdir eða 65,69%, 5.892 vom tvílembdir eða 14,98% og 42 þeir- ra eða 0,11% áttu þrjú lömb. Þeg- ar þessar hlutfallstölur em bomar 118 - Freyr 6/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.