Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 44

Freyr - 01.09.2004, Blaðsíða 44
Sæðingar með frystu hrútasæði haustið 2003 Inngangur A seinni hluta áttunda áratugar- ins var undirritaður við doktorsnám við Dýralæknaháskólann í Osló. Aðalverkefnið var að finna aðferð til þess að nota fryst hrútasæði. All- ar tilraunir til þess að nota það fram að því höfðu mistekist að því leyti að ekki var hægt að sæða með ffys- tu sæði þannig að góður árangur næðist nema með mjög flóknum tilfæringum. Arið 1976 tókst mér að finna aðferð til þess að ffysta hrútasæði á þann hátt að sæðing með glenni gaf mjög viðunandi ár- angur. A næstu ámm var unnið við að þróa þessar aðferðir og hafa Norðmenn notað ffyst hrútasæði frá því í byrjun 9. áratugarins. Hér á landi voru gerðar tilraunir með fryst hrútasæði á áranum 1979 - 1982. Þeim tilraunum var hætt vegna þess að árangurinn var ekki samkeppnisfær við mjög góða reynslu af notkun á fersku sæði. A undanfömum árum hafa sauð- fjársæðingastöðvarnar farið að senda sæði víðar en á hefðbundin svæði og sæðingar hafa stóraukist á svæðum sem era mjög tjarri stöðvunum, eins og Austurlandi. Vestfirðir hafa alla tíð verið heldur afskiptir með hrútasæði. Á sama tíma hafa Norðmenn haldið áfram að þróa notkun á frystu sæði þann- ig að aðferðimar við frystingu og notkun á sæðinu eru orðnar heldur einfaldari en þær vora um 1980. Héðan frá íslandi hefur verið flutt út til Bandaríkjanna fryst sæði sem hefúr krafíst flókinna og dýrra að- ferða við sæðingu. Þess vegna var ákveðið að gera tilraun til þess að frysta sæði með sömu aðferð og notuð er í Noregi til þess að sjá hvort það geti ekki verið valkostur í viðbót við ferska sæðið innan- lands og hvort við gætum ekki fengið virðisaukann af því að selja Bandaríkjamönnum sæði sem þeir gætu sætt með sjálfir án þess að kaupa að rándýra sérfræðiaðstoð. Sæðingatilraun haustið 2003 Safnað var sæði til frystingar í nóvember 2003. Samtals var safn- að sæði í 2217 ministrá 0,2 ml (IMV) úr 26 hrútum á 13 dögum. Sæðið var þynnt u.þ.b. 1:9 og kælt niður í 5°C á 2-3 klst. Þá var það sett í skilvindu í 10 mín og þynn- ingarvökvi soginn af þannig að endanleg þynning varð 1 hluti sæði og 1,5 hlutar þynningarvökvi. eftir Þorstein Ólafsson, dýralækni, Sauðíjár- sæðingastöð Suðurlands Samið var við 7 sæðingamenn um að sæða á eigin búum og í vissum tilfellum hjá nágrönnum í desember sama ár. Samtals voru sæddar 1271 ær. Af þeim vora 4 geldar, 3 drápust og 1 lét án þess að fram kæmi lambaljöldi. Þannig er árangurinn reiknaður eftir sæð- ingu á 1263 ám með sæði úr 22 hrútum. Þar að auki liggja fyrir upplýsingar um sæðingu á 697 ám sæddum á Suðurlandi með fersku sæði úr 18 afþessum hrútum. Sæðingamönnum var falið að láta leita að blæsma ám sem næst 17 klst. áður en sætt var. Það gekk eftir í flestum tilfellum þannig að leitað var 16-19 klst. fyrir sæð- ingu. Sætt var ýmist með sæðis- skammti úr heilu strái 0,2 ml í á Tafla 1. Árangur einstakra sæðingamanna Sæðingamaður N Hélt Hálf strá % L/á N Heil strá Hélt % L/á A 3 1 33% 2,00 5 4 80% 1,50 B 51 33 65% 1,58 65 44 68% 1,82 C 32 18 56% 1,78 38 23 61% 1,78 D 28 12 43% 2,00 12 7 58% 2,10 E 147 69 47% 1,65 72 35 49% 1,60 F 251 97 39% 1,73 131 55 42% 1,67 G 140 54 39% 1,63 104 41 39% 1,63 H 116 38 33% 1,42 68 26 38% 1,77 Samtals 768 322 42% 1,62 495 235 47% 1,73 | 44 - Freyr 6/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.