Fréttatíminn - 03.12.2010, Page 51

Fréttatíminn - 03.12.2010, Page 51
Välj. Eða veldu eins og sagt er á íslensku. Nýtt samstarf SAS og Icelandair þýðir að núna áttu möguleika á að velja á milli miklu fleiri áfangastaða en áður. Við bjóðum nú uppá þann möguleika að bóka flug til Evrópu og lengra á frábæru verði á www.flysas.is flysas.is Ávallt með S AS Engin dulin g jöld - innritu n án endurg jalds - sætab ókun án end urgjalds Farangurshe imild án end urgjalds - Eu roBonus-pun ktar - 25% b arnaafsláttu r Bergen London París Frankfurt Peking Tokyo Bangkok Ósló Kaupmannahöfn Stokkhólmur Helsinki Gautaborg Stafangur Þrándheimur Berlín München Hamborg Varsjá Zürich Mílanó Vilníus Fært til bókar Dóttir hans í lögum „Ég er Dr Jaen Marshall er forstöðu- maður Bókhald endurskoðunar í bank- anum Harlesden, North West London, hérna í Englandi (Natwest Bank). Ég er að skrifa þér um viðskipti tillögu sem verða gríðarlega gagnast bæði af okkur.“ Svona byrjar svokallað Nígeríubréf sem er frábrugðið hinum fyrri að því leyti að það er á íslensku í stað ensku. Um ís- lenskuna á bréfinu má þó deila en það heldur svona áfram: „Í deildinni minni, sem framkvæmdastjóri Greater London Regional Office, uppgötvaði ég Summa £ 15 milljónir á reikning sem tilheyrir einu af erlendum viðskiptavinum okkar Late Viðskipti Mogul Mr. Moises Saba Masri Milljarðamæringur, Gyðingur frá Mexíkó sem var fórnarlamb þyrla hrun snemma á þessu ári, drepa hann og fjölskyldu. Saaba var 46 ára gamall. Einnig í chopper á þeim tíma sem hrun var konan hans, sonur þeirra Avraham (Albert) og dóttur-hans í lögum. Flugmaðurinn var líka dauður.“ Ekki er víst að hið íslenskaða bréf skili betri árangri en þau sem voru á ensku en vissulega væri gaman að heyra meira af tengdadótturinni, dóttur hans í lögum! Nánast allir með lausa samninga Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar hefur verið með vindinn í fangið allan sinn starfstíma. Hún hefur þó búið við frið á vinnumarkaði, samningar hafa verið í gildi og fólk jafnt sem verkalýðsfélög halda að sér höndum á tímum mikils atvinnuleysis. Breytingar eru hugsanlegar á þessari stöðu því um leið og desember gekk í garð runnu út kjarasamningar aðildarfélaga Alþýðu- sambands Íslands og Samtaka atvinnu- lífsins. Langstærstur hluti launamanna á vinnumarkaði er því með lausa samninga. Reiknað er með að Starfsgreinasamband- ið kynni SA kröfugerð sína á mánudag- inn. En það eru ekki aðeins launamenn á almennum vinnumarkaði sem eru með lausa samninga. Stór hluti samninga aðildarfélaga BSRB við hið opinbera rann einnig út um mánaðamótin. Átök á vinnu- markaði hafa reynst skeinuhætt mörgum ríkisstjórnum. Hvort svo verður núna skal ósagt látið en eins og mál standa nú er ólíklegt að forystumenn verkalýðsfélaganna leiði fólk sitt út í hörð átök á næstunni. Þeir sem halda vinnunni prísa sig sæla og ólíklegt er að margir vilji rugga bátnum verulega.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.