Búskapur hins opinbera 1997-1998 - 01.03.1999, Blaðsíða 5
Formáli
Rit þetta fjallar um búskap hins opinbera. Með búskap hins opinbera er átt við
starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfís. Hér er þó undanskilin
starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri starfsemi að jafnaði
ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á almennum markaði.
I ritinu er meðal annars að fínna yfirlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins
opinbera. Birt eru sundurliðuð yfirlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í
heild. Jafnframt er fjallað um umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum og í því
skyni stuðst við mismunandi mælikvarða. Þá er gerð grein fyrir skuldum og
lánastarfsemi hins opinbera. Einnig er gerður samanburður á afkomu og umsvifum
hins opinbera á Islandi og í öðrum aðildarríkjum OECD. Við hefðbundið efni
ritsins er bætt efni um almannatryggingar og velferðarmál. Gerð er grein fyrir
tekjutilfærslum og þjónustu hins opinbera á þessu málasviði. Sömuleiðis er gerður
talnalegur samanburður við Norðurlöndin annars vegar og þau OECD ríki hins
vegar sem hafa samsvarandi upplýsingar. Megintilgangurinn er að gefa talna-legt
yfirlit um helstu þætti velferðarkerfísins.
Rétt er að vekja athygli á því að í þessu riti líkt og í síðustu þremur er fylgt
þeirri breyttu skilgreiningu á umfangi hins opinbera sem kynnt var í Búskap hins
opinbera 1992-1993, sem út kom í apríl 1994. Eldra uppgjör um íjármál hins
opinbera hefur því verið leiðrétt til samræmis við þessa nýju skilgreiningu. Hér er
um að ræða ýmsar viðbætur við tekjur og útgjöld hins opinbera, sem teljast að réttu
með samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna. Þessar breytingar
tengjast breytingum á reikningsskilum ríkisins, sem nú hafa verið samþykktar á
Alþingi.
Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1990-1997 og bráðabirgðatölur fyrir
1998. Sömuleiðis er að finna talnaefni sem nær allt aftur til ársins 1980. Gerð er
grein fyrir þessu talnaefni í fyrsta hluta ritsins og þar er lögð áhersla á búskap hins
opinbera í heild.
Áður hafa komið út átta rit um sama efni; árin 1983, 1986, 1991, 1993, 1994,
1995, 1996 og 1997. Ritið sem gefið var út 1997 spannaði tímabilið 1990-1996.
Nú bætast við tvö ár, 1997 og 1998. Ritið kemur út árlega og er með áherslu á
næstliðin tvö ár, með endanlegu uppgjöri fyrir fyrra árið og bráðabirgðatölum fyrir
það síðra. Þetta rit kemur út nokkru síðar en fyrra rit sama efnis, en ákveðið var að
fresta útgáfunni þar til bráðabirgðatölur liðins árs lægju fyrir. Á vegum Þjóðhags-
stofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum unnið að gerð þessa rits, tekið
saman talnaefnið og samið skýringar.
Þjóðhagsstofnun
í mars 1999
Friðrik Már Baldursson
3