Fréttablaðið - 13.04.2013, Page 8

Fréttablaðið - 13.04.2013, Page 8
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 SJÁVARÚTVEGUR „Það virðist vera töluvert af loðnu hérna á svæðinu. Það er gríðarlegt magn af þorski, en hann tekur ekki línuna hjá okkur af því að það er svo mikið æti. Þess vegna er tregfiskerí á línubátunum,“ segir Þorvaldur Garðarsson, útgerðarmaður og skipstjóri á Sæunni Sæmunds- dóttur ÁR. Sögur berast frá sjómönnum sem eru við veiðar fyrir Suður- landi að loðnu sé að finna víða. Nefnt er að til loðnu sjáist allt frá Reykjanesi austur að Höfn í Hornafirði. Þorvaldur, sem hefur róið frá Þorlákshöfn í fjóra ára- tugi, hefur ekki séð loðnu á miðun- um svo seint áður en hann var við veiðar djúpt á Selvogsbanka í gær. Hann segir þvert á móti að venju- lega gangi loðnan hratt með land- inu og hverfi vestur fyrir land þar sem hún hrygnir og drepst. „Hún virðist hins vegar vera dreifð hérna um gríðarlega stórt svæði núna. Núna er hún hérna um allt, og er sjálfsagt að fara drepast hérna í stórum stíl. Það eru góðar fréttir fyrir allan þennan þorsk sem þarf eitthvað að éta,“ segir Þorvaldur. Þorvaldur segir að handfæra- bátar séu að fá góða veiði og mok sé hjá netabátunum um allan sjó. Hann telur að þorskur líti ekki við línunni af því að beitan leggst á botninn; fiskurinn sé hins vegar að elta lifandi bráð og því taki hann hjá krókabátunum, en færa- krókarnir líkja eftir lifandi síli. Sveinn Sveinbjörnsson, fiski- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir að þessar fregnir af loðnu við Suðurland hafi ekki borist á sitt borð. Hins vegar þurfi þetta ekki að koma sérstaklega á óvart. „Þegar við mældum seinni partinn í janúar og fram í febrúar þá fundum við loðnu á gríðarstóru svæði frá miðjum Vestfjörðum og vestur fyrir Hala. Svo kom þessi vesturganga sem gekk suður með Vestfjörðum og inn á Breiðafjörð, en hins vegar virðist loðna hafa gengið austur úr og farið þessa löngu hringleið. Þetta gætu verið eftirhreyturnar af slíkri göngu,“ segir Sveinn. Sveinn telur að mæling Haf- rannsóknastofnunar á loðnunni hafi náð yfir alla loðnugöng- una, og ekkert hafi orðið útund- an. „Það getur jafnframt verið að loðna sé enn að hrygna fyrir vestan og norðan. Í þessum kalda sjó seinkar þessu, því eftir að hún kemur í hlýja sjóinn þá tekur hrognaþroskinn fyrst við sér, sem ræður því hvað hún lifir lengi. Þess vegna hef ég enga ástæðu til að efast um að sjómenn séu að sjá loðnu,“ segir Sveinn. svavar@frettabladid.is EFNAHAGSMÁL Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í ár verði 1,9 pró- sent í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Spáin gerir jafnframt ráð fyrir aukningu hagvaxtar á næsta ári, verði „um það bil 2,8 prósent á ári frá og með 2014“. Verðbólguhorfur fyrir árið 2013 eru sagðar stöðugar eftir að veiking krónunnar frá síðasta hausti hafi tekið að ganga til baka í nýliðnum febrúarmánuði. „Spáð er að neysluverð verði 4,2 prósent- um hærra 2013 en 2012 en að verð- lag 2014 hækki um 3,4 prósent.“ Bent er á að góður afgangur sé af utanríkisviðskiptum og að ferða- þjónusta sé í miklum vexti. „Gert er ráð fyrir því að lágt raungengi krónunnar styðji áfram við þessa þætti,“ segir í spánni. Vöxtur einkaneyslu er talinn verða 2,5 prósent á þessu ári en um og yfir 3,0 prósentum á ári frá 2014. Fjárfesting er talin munu dragast saman um 2,3 prósent á þessu ári en aukast um 16,9 pró- sent á næsta ári. - óká Verðbólguhorfur stöðugar eftir að veiking krónunnar tók að ganga til baka: Hagvöxtur taki kipp á næsta ári Hagvöxtur til 2015 Undrast að sjá loðnu fyrir öllu Suðurlandi Fréttir af miðunum fyrir Suðurlandi greina frá því að þar sé allnokkuð af loðnu. Óvenjulegt ástand á þessum tíma árs, segir skipstjóri með 40 ára reynslu. Sérfræð- ingur Hafró telur að um eftirhreytur stóru loðnugöngunnar geti verið skýringin. MOK Blóðbað var hjá netabátnum Kristbjörgu á dögunum en á meðan fæst lítið á línu. Kristján Hilmarsson, alltaf kallaður Stjáni Nínon, er hér á rúllunni. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Dýraverndarsambands Íslands, DÍS. Aðalfundur DÍS verður haldinn þann 20. apríl 2013 kl.13.00 Fundað verður í nýjum húsakynnum félagsins að Grensásvegi 12A (bakhús). Dagskrá fundar: 1. Kynning framboða til stjórnar 2. Ársskýrsla 3. Tillögur um verkefni næsta árs og stefnumótun DÍS 4. Endurskoðun reikninga og skýrsla gjaldkera 5. Félagsgjöld 6. Lagabreytingar 7. Kosning stjórnar 8. Önnur mál Framboð Ef menn hyggjast bjóða sig fram til stjórnarsetu þarf framboð að hafa borist til félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Síðasti skiladagur framboðs er 13.apríl kl. 24.00. Framboð sendist til dyravernd@dyravernd.is. Nánar um aðalfundinn, framboð og lagabreytingar má finna inni á vef sambandsins www.dyravernd.is. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Bílabúð Benna Reykjavík Bílabúð Benna Reykjanesbær Verð aðeins: 5.590.000 kr. Chevrolet Captiva bílaleigubílum CHEVROLET CAPTIVA 160.000 kr. NOTAÐIR BÍLAR Aðalfundur Félags Rafeindavirkja verður haldinn mánudaginn 22. apríl 2013 kl.17:30 á Stórhöfða 27, gengið inn Grafarvogsmegin. Dagskrá: • Baldur Viðar Baldursson forstöðumaður símkerfa hjá Símanum kynnir 4G • Venjuleg aðalfundarstörf • Kosning fulltrúa á ársfund Stafa lífeyrissjóðs • Önnur mál Reykjavík 10. apríl 2013 Stjórn Félags Rafeindavirkja AÐALFUNDUR Félags Rafeindavirkja Save the Children á Íslandi 2012* 2013 2014 1015 *Skv. bráðabirgðatölum. Heimild: Hagstofa Íslands 1,6% 1,9% 2,7% 2,9% Núna er hún hérna um allt, og er sjálfsagt að fara drepast hérna í stórum stíl. Það eru góðar fréttir fyrir allan þennan þorsk sem þarf eitthvað að éta. Þorvaldur Garðarsson, skipstjóri á Sæunni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.