Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 73
KYNNING − AUGLÝSING Jóga13. APRÍL 2013 LAUGARDAGUR 3
LJÚFT OG HOLLT
Hér er hollur og góður réttur sem hentar
vel þeim sem iðka jóga og vilja hugsa um
heilsuna. Í réttinum er kínóa-korn sem er afar
hollt og prótínríkt. Það sem þarf í þennan rétt
fyrir fjóra:
1,5 dl kínóa-korn
3 dl vatn
2 kjúklingabringur
Ein lúka af saxaðri steinselju
100 g feta-ostur
1 dl sýrður rjómi eða hrein jógúrt
500 g blandað salat
1 dl bláber
6 msk. ólífuolía
2 msk. hindberja- eða sérríedik
2 msk. fínt saxaður skalotlaukur
2 msk. fínt saxaður graslaukur
Smjör
Salt og pipar
Dressingin: Setjið bláberin í skál og hrærið
síðan olíu, ediki, graslauk og skalotlauk saman
við. Bragðbætið með salti og pipar.
Eldið kínóað eftir leiðbeiningum á umbúð-
um. Kælið áður en það er sett út í dressinguna.
Kryddið bringurnar með salti og pipar.
Steikið báðum megin á pönnu í smávegis
smjöri og með steinseljunni. Setjið í eldfast
mót og steikið áfram í tíu mínútur við 180°C.
Kínóa-korn þykir einstaklega hollt og
prótínríkt.
Vertu með í vorhreinsun.
Sex vikna lokað námskeið.
Skráning er hafin.
Taktu á móti vorinu af krafti
Detox-jóga eru hreinsandi og orkugefandi tímar fyrir þær sem vilja ná betra jafnvægi á líkama, huga og sál.
Hver tími samanstendur af kraftmiklum jógaæfingum sem byggja upp hita og svita, hreinsandi öndunar-
æfingum, jógaæfingum sem örva meltingu, blóðrás og sogæðakerfið - og að lokum endurnærandi slökun.
6 vikna lokað námskeið frá 15. apríl til 22. maí.
Lokaðir 60 mínútna tímar tvisvar sinnum í viku.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9.00 og mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30.
Jógakennari er Eva Rún Þorgeirsdóttir.
Verð kr. 17.900 -
Skráning er hafin í síma 515 1900 og á mottaka@badhusid.is.
Nánari upplýsingar um þetta og önnur námskeið: www.badhusid.is/heilsuraekt/namskeid
Við mælum með að eftir hvern tíma sé hreinsun haldið áfram í vatnsgufu, sauna og slökun í okkar rómaða Hvíldarhreiðri.
Mjög gott er að þurrbursta húðina daglega. Að tíma loknum er upplagt að fá sér góða næringu í móttökunni og mælt er
sérstaklega með detoxdrykknum okkar sívinsæla, eða græna heilsudrykknum, en þeir aðstoða báðir við hreinsun, ásamt því að
vera holl og góð næring fyrir líkama og sál.
www. b a d h u s i d . i s
15. apríl - 22. maí.