Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 10

Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 10
10 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 Í stuttu máli Nú er hægt að senda spurningar sem vakna í kjölfar frétta til spyr.is í þeim tilgangi að fá svar frá þeim sem tengjast málefninu. spyr.is vilJa efla málefnalega umRæðu GóðvinuR ClintonS StæRSti eiGandi EimSkipS meiRa dót GeRiR enGan HaminGJuSaman Eiginkona Englandsbankastjóra: Það eru 12 konur sem standa á bak við fyrir ­tækið spyr.is. Áhersl­urnar hjá fyrir tækinu eru fyrst og fremst að kalla eftir nánari upplýsingum í kjölfar frétta eða umræðu. Það er því hægt að senda spurningar til spyr.is, starfsmenn lesa þær yfir og ef þær þykja málefna­ legar eru þær sendar til þeirra sem tengjast viðkomandi frétt eða umræðu og þeir beðnir að svara þeim. Spurningarnar og svörin birtast síðan á heimasíðu fyrirtækisins, spyr.is. „Þetta eru alls kyns fréttir sem endurspegla flóruna sem er í umræðunni,“ segir Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri. „Aðalmálið hjá okkur er að efla málefnalega umræðu. Fólk svarar nánast án undantekn­ inga,“ segir Rakel og bendir á að góð upplýsingamiðlun sé hjá flestum orðin hluti af góðum stjórnarháttum og að fyrirtæki og stofnanir séu farin að miðla upplýsingum til fjölmiðla og almennings í miklum mæli. „Fólki finnst þetta horfa öðru vísi við þegar það veit að við lesum spurningarnar og sam þykkjum ekki allt. Þetta eru spurningar sem hafa upplýsinga gildi. Með því að svara geta aðilar líka nýtt tækifærið til að koma sjónarmiðum sínum betur á fram- færi. Til viðbótar nýta fyrir tæki og stofnanir sér síðan raf ræna miðlun efnis með því að skrá sitt efni inn sjálfir. Þetta er gert með aðgangi að greina­ og fréttakerfi spyr.is en þjónusta sem þessi hefur lengi verið þekkt erlendis þótt hún sé ný af nálinni hér.“ Rakel Sveinsdóttir. Ronald Burkle. HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI Dálæti sumra á Kofareykta hangikjötinu frá Kjarnafæði virðist engum takmörkunum háð. það er vissulega skemmtilegt að ljúffengt hangikjötið öðlist þann virðingarsess sem hér má sjá, en auðvitað nýtur það sín betur á matarborðum landsmanna, þar sem það hefur í áranna rás glatt og satt íslendinga og skapað sannkallaða hátíðar- og jólastemmningu, enda um sérlega bragðgott hangikjöt að ræða. Kofareykta hangikjötið frá Kjarnafæði er sérvalið fyrsta flokks lambakjöt með ljúffengu, ríku og hefðbundnu íslensku reykbragði, verkað og reykt af kjötiðnaðarmeisturum fyrirtækisins. Eftir glæsilegt útboð og skráningu Eimskips í Kauphöllinni er bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa núna stærsti eigandi Eimskips með 25% hlut en var áður sá næststærsti með 32,3% og kom á eftir gamla Landsbankanum sem var með 37,3% hlut. Góðvinur Bills Clintons, auðkýfingurinn Ronald Burkle, fer fyrir fjárfest ingarsjóðnum sem er með hlut sinn í Eimskip í tveimur félögum; Yucaipa Fund II (15,3%) og Yucaipa Parallel (10,0%). Forbes metur auð Ronalds Burkles á 3,5 milljarða dollara eða 420 milljarða króna. Burkle er sagður hafa mikinn áhuga á Eimskip. Lífeyrissjóður versl­ unarmanna er annar stærsti hluthafinn með 14,6% og skilanefnd gamla Landsbankans er með 10,4% Mark Carney, aðalbanka­stjóri Seðlabanka Kanada, tekur við em bætti Englandsbankastjóra um mitt næsta ár. Skipan hans vakti verulega athygli – en skoð anir eiginkonu hans, Díönu Carney, gera það ekki síður. Hún hefur lýst alþjóðlegum fjár málafyrirtækjum sem rotnum og hvetur fólk til að draga úr neyslu til að verja náttúruna. Hún hefur lýst yfir samúð með Occupy Wall Street­hreyfingunni sem gagnrýnt hefur að eigendur banka hirði gróðann af bönkun­ um en skattborgarar taki á sig tapið. Á heimasíðu sinni segir hún að meira dót geri engan ham ingjusaman. Díana Carney.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.