Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 64

Frjáls verslun - 01.09.2012, Page 64
64 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 rakel sölvadóttir, framkvæmdastjóri skema: Rakel Sölvadóttir, fram-kvæmdastjóri Skema, fjallaði um tæknigreinar og menntun. Hún sagði vera skort á konum í tæknigeir­ anum, skortur væri á sýnilegum fyrirmyndum innan kvenþjóðarin- nar og það væri allt of seint að hefja kennslu í tæknigreinum þegar komið væri á háskólastig. „Það er voðalega dapurt hvern ig menntakerfið vinnur gagn vart tækninni og því sem a t vinnulífið kallar eftir,“ sagði Rakel og varpaði fram þeirri hug ­ mynd að ýta þyrfti undir mennta­ kerfið og koma forritunar kennslu inn í kerfið. Hún sagði það tengjast framþróun stjórnvalda að byggja upp upplý singa­ og tæknimenntun í landinu. Skema stæði fyrir námskeiðum í leikjaforritun fyrir börn og ungl inga og vildi stuðla að því að kennsla í forritun yrði í boði í grunn­ og framhaldsskólum auk þess að rannsaka þau áhrif sem kennsla í forritun hefði á ýmsa þætti varðandi þroska og námsgetu barna. „Við erum búin að sýna fram á að börn geta forritað og það er tækifæri á að koma forritun inn í grunnskólana. Eigum við ekki að byrja á því að byggja upp næstu kynslóð og byggja upp tækni- menntun í landinu?“ sagði Rakel. Dóttir hennar, Ólína Helga Sverrisdóttir, sem er tólf ára að stoðarkennari hjá Skema, var kölluð upp á svið og spurði hún áheyrendur hversu margar mömmur væru í salnum: Þær voru margar. Þá spurði hún hversu margar væru tæknimennt að­ ar: Þær voru ekki eins margar. Síðan kom í ljós að þær voru ekki margar mömmurnar sem spila tölvuleiki með börnunum sínum. „Þetta er málið,“ sagði Rakel. „Það eru fáar mömmur sem setj­ ast niður með börnunum sínum og spila tölvuleiki eða hvetja stelpurnar sínar áfram til þess að kynna sér tækniheiminn. Þið þurfið að yfirstíga óttann, takið fyrstu skrefin með börnun­ um ykkar, prófið að forrita og fikta, takið smááhættu og sýnið framþróun.“ Skortur á Konum í tæknigeirAnum „Börn geta forritað og það er tækifæri á að koma forritun inn í grunnskólana.“ Þórunn jónsdóttir, framkvæmdastjóri fafu, og Þóranna K. jónsdóttir hjá markaðsmálum á mannamáli: Þórunn Jónsdóttir, fram-kvæmdastjóri FAFU, og Þóranna K. Jónsdóttir hjá Markaðsmálum á mannamáli fjölluðu um netsam- félög kvenna með skemmtilegu myndbandi þar sem fleiri komu fram. Þess má geta að Þórunn er forsvarskona Korku sem er hópur kvenna í nýsköpun og sprotafyrirtækjum. Rúmlega 700 konur eru meðlimir í hópnum og hafa margar þeirra komið á dýrmætum tengslum. Þórunn og Þóranna nefndu líka „Íslenskir frumkvöðlar“ á Facebook og LinkedIn sem hægt er að nota til að komast í samband við erl enda aðila. Þá fjölluðu þær um Twitter og mikilvægi þess að vinna markvisst að tengslaneti. Hulda Hreiðarsdóttir, meðstofn­ andi FAFU, kom líka fram í mynd bandinu og sagði að þær Þórunn hefðu notað LinkedIn mikið og kynnst þannig sérfræð­ ingum í Bretlandi sem þær hefðu síðan unnið með. „Við höfum aðallega gert það í gegnum hóp ana á LinkedIn sem fjalla þá um ákveðin málefni tengd okkar málaflokki eða okkar vinnu. Þarna hefur okkur tekist að kynn ast fólki sem hefur hjálpað okkur að byggja upp tengslanet í Bretlandi.“ Rúna Magnúsdóttir hjá Con- nected Women sagði sögu um virkni tengslanetsins á Twitter. „Tengiliður sem ég kynntist á Twitter bað mig að taka þátt í blogathon ásamt 29 öðrum. Útkoman var rafræn bók sem þessir 30 aðilar deildu á netinu á sínu eigin tengslaneti. Framhald­ ið var vídeó­blogathon og komst ég að því að vídeóið mitt náði tengslum við 250.000 manns á innan við einum sólarhring. Allt þetta hefur gefið mér meiri tæki færi á því að koma mér og því sem ég geri á framfæri. Það skiptir í sjálfu sér engu máli hvar ég er stödd í heiminum þegar ég er að vinna. Hlutirnir gerast í gegnum netið. Það sem skiptir máli er á hvaða tímabelti við skiptavinurinn er. Ég nálgast hann í gegnum Twitter, Facebook, LinkedIn og alþjóðlegt tengsla net sem ég hef byggt upp í gegnum Connected­Women.com.“ neTsamFélög kvennA Þórunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri FAFU, og Þóranna K. Jónsdóttir hjá Markaðsmálum á mannamáli. „Gott er að nota tengilinn „Íslenskir frumkvöðlar“ á Facebook og LinkedIn til að komast í samband við erlenda aðila.“ Rakel Sölvadóttir. Við hjálpum þér að tengja nýju græjurnar TÆKNISVEITIN - 444 9911 - HJALP@TAEKNISVEITIN.IS - WWW.TAEKNISVEITIN.IS REYKJAVÍK Ármúla 11 REYKJANESBÆR Tjarnargötu 7 AKRANES Dalbraut 1 BORGARNES Borgarbraut 61 Tæknisveitin er hluti af Omnis Þinn ráðgjafi í tæknivæddum heimi 1 2 3 Fujitsu Stylistic M532 spjaldtölva með 10” ölsnertiskjá með 1920x1080 punkta upplausn, innbyggðum 3G móttakara, 32GB minni og NVIDIA Tegra QuadCore örgjörva. 89.900 kr. HP TouchSmart 520 sambyggð borðtölva og 23“ skjár. Intel Core i5 örgjörvi, 4GB vinnsluminni og 1TB gagnageymsla. Innbyggt sjónvarpskort, Windows 8 uppfærsla fylgir með ásamt þráðlausu lyklaborði og mús. 189.900 kr. Lenovo IdeaPad S400 fartölva með 14” HD LED skjá. Snilldar hönnun sem vekur athygli. Intel Core i3 örgjörvi, 4GB vinnsluminni, 500GB diskur, ATI HD7450 1GB skjákort. Kemur upsett með Windows 8. 119.900 kr. 1 2 3 444 9900 - omnis.is

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.