Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 70

Frjáls verslun - 01.09.2012, Side 70
70 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 nokia Lumia 920 Snjallsími (verð 129.995 kr. hjá helstu símafyrirtækjum). Lumia 920 er flagg- skip nýjustu kynslóðar Nokia­síma og skartar Windows Phone 8­stýrikerfi. Eitt helsta einkenni Lumia 920 er einstaklega góð 8,7 megapixla Pure- view­myndavél, sem virkar mjög vel við myndatöku þegar birta er lítil. Skjárinn er jafnframt afar bjartur og skýr, síminn styður þráðlausu NFC­tæknina, sem margir telja að verði greiðslumáti framtíðarinnar, og þar að auki verður hægt að hlaða hann þráðlaust með þar til gerðum hleðslutækjum. sony Playstation vita Leikjatölva (verð frá 49.995 kr., t.d. hjá www.elko.is). PlayStation Vita frá Sony kom út snemma á árinu, en hún er öflugasta handleikjatölva sem framleidd hefur verið. Hún er með fjögurra kjarna skjáörgjörva (GPU) sem er svipaður þeim sem notaður er í iPhone 4S og iPad 2, en er nokkru öflugri. Með honum getur Vita spilað bíómyndir og tölvuleiki í hárri upplausn án þess að hiksta og það ætti að kæta kröfuhörðustu leikjaunnendurna. Þrátt fyrir það hefur PlayStation Vita ekki selst eins vel á heimsvísu og búist hafði verið við, en ástæðan er sennilega sú að snjallsímar og spjaldtölvur eru orðin nægilega góð í leikjaspilun til að mörgum finnst óþarfi að eiga sér­ staka handleikjatölvu. Panasonic Lumix DMC-LX5 Myndavél (verð 69.990 kr. hjá www.sm.is). LX5­myndavélin frá Panasonic er góður kostur fyrir þá sem vilja fikta sem mest í stillingum myndavélarinn­ ar frekar en hafa hana stöðugt á sjálfstýringu. Hún er með góða F2.0­linsu, leiftur snögga fókusstillingu og alla hefðbundna stillimöguleika ódýrari mynda­ véla. Hún bætir hins vegar um betur þegar kemur að vídeótöku, því þá er bæði hægt að stjórna ljósopi og lokuhraða. Þar sem LX5 er ekki alveg ný af nálinni fæst hún á mjög góðu verði miðað við hversu vel heppnuð hún er. nvidia geForce gtX 680 Skjákort (verð frá 89.990 kr., t.d. hjá www.tolvulistinn.is). GTX 680 var fyrsta skjákortið sem nýtti hina nýju Kepler­tækni frá Nvidia. Við prófanir reyndist það einstaklega vel, réð vel við flókna myndvinnslu og tölvuleiki auk þess að krefjast minni orku og vera hljóðlátari en sambærileg skjákort. Lg nexus 4 Snjallsími (verð 109.900 kr. hjá helstu símafyrirtækjum). Nexus 4 er samvinnu verkefni Google og LG og er nýjasta útgáfa Android­stýri kerfisins, Jelly Bean 4.2, frumsýnd í símanum. Hann skartar einnig nýrri kynslóð fjögurra kjarna örgjörva, nýrri skjátækni og hægt er að hlaða hann þráðlaust með því að nota sérstakt hleðslutæki. Miðað við að vera með nýjasta vél- búnað og stýrikerfi á markaðnum er síminn tiltölulega ódýr í samanburði við flaggskip keppinautanna. Dell XPs 13 Fistölva (verð frá 249.990 kr. hjá www.advania.is og omnis.is). Þessi ein stak­ lega létta og netta fistölva frá Dell er ekki bara meðfærileg (hún er einungis 18 mm þykk), heldur er hún líka merkilega öflug miðað við stærð samkvæmt ítar­ legum prófunum PC World. Að auki er lyklaborðið vel heppnað og ekki til trafala fyrir þá sem skrifa hratt – en sú er oft raunin í þessum stærðarflokki fartölva. HP Zr2440w Tölvuskjár (137.764 kr. hjá www.okbeint.is og omnis.is). 24 tommu tölvu- skjárinn HP ZR2440w er bæði vel hannaður og með öll helstu tengi sem þörf er á fyrir tölvuskjá (þar á meðal DVI, HDMI og DisplayPort). Mestu máli skipta þó gæði skjásins og þar bar hann af keppinautunum á svo til öllum sviðum að mati sérfræðinga PC World. Lenovo ideapad Yoga 13 Fartölva/spjaldtölva (verð 229.900 kr. hjá www.netverslun.is). Yoga 13 frá Lenovo er gott dæmi um samrunann sem er að verða í spjaldtölv um og fartölvum með tilkomu Windows 8. Þetta er í eðli sínu fartölva, en hún er með snertiskjá sem er hægt að snúa í 360 gráður og þá hefur tölvan breyst í spaldtölvu. Samkvæmt prófunum PC World stenst hún hefðbundnum fistölv­ um snúning hvað vinnslugetu varðar, er með gott lyklaborð og önnur stjórntæki og er einstaklega þægileg í notkun. Nokia Lumia 920 er með einstaklega góða myndavél. playStat­ ion Vita er öflugasta handleikja­ tölva sem gefin hefur verið út. LX5­mynda­ vélin frá pana sonic er góður kostur fyrir þá sem vilja fikta sem mest í still ing­ um mynda­ vélarinnar. LG Nexus 4 skartar því nýjasta í bæði vél­ og hugbúnaði snjallsíma. HP ZR2440w er með betri tölvuskjám sem fást í dag. Hægt er að snúa skjánum á Lenovo Ideapad Yoga 13 í 360 gráður. Fartölvurnar gerast ekki miklu nettari en Dell XPS 13. græjur

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.