Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 67
Hugmyndafraði Sigurðar Nordal — hann hefur ekki hugsað nóg um Þór, segir hann. Meira sé eftir af norrænni hugsun og skapi í eðlisgrunni Islendinga en margan gruni (48). Við þetta bætir hann að erlendir lesendur muni aldrei nenna að lesa íslensk skáldverk séu þau aðeins stæling á erlendum stefnum, heldur verði íslensk skáld að rækta hið séríslenska vilji þau ná frægð. En „Verk E.H.Kv. eiga sér ekki djúpar rætur í íslenzkum jarðvegi“ (49) að dómi Sigurðar. í lokagrein ritdeilunnar boðar Sigurður Nordal nýja rómantík sem muni sópa lífsskoðun Einars H. Kvaran burtu: Rómantíkin á brýnt erindi í nútímalífið, ekki einungis bókmenntimar, heldur búnað og iðnað, vísindi og stjórnmál, trú og siðferði. Það mun sönnu nær, að mannkyninu hafi á síðari tímum farið fram í öllu, nema manngildi, því sem eitt er nauðsynlegt. Nú liggur framsóknin ekki í áttina til aukinna þæginda, sem fást við meiri tækni og tillátssemi, heldur nýrrar menningar, sem gerir lífið heilla — og erfiðara. (Vaka 1927, 168) Ekki held ég að ákall Sigurðar um erfiðleika í stað þæginda hafi fallið í góðan jarðveg hjá verkalýðnum um 1930. I upphafsgrein ritdeilunnar skrif- ar Sigurður: Síðustu 50 árin hefur heimurinn sífelt stefnt að meira frelsi, skilningi, mannúð o. s. frv. Þessi stefna hefur gert sitt gagn, og nú er hún farin að gera tjón. Hún er komin út í öfgar. En hún stöðvast ekki, nema risið sje gegn henni. Gamla kynslóðin heldur áfram í sömu áttina, meðan hún lifir. Verk E.H.Kv. eru gott dæmi þessa. Prédikun mannúðar og umburðarlyndis hefur orðið því ríkari þáttur í þeim sem slíkar fortölur áttu minna erindi til þjóðar vorrar. (Skírnir 1925, 143) Rómantíkin nýja Ný rómantík var boðuð á íslandi um þetta leyti af Erik Blomberg, Jörgen Bukdahl, Eiríki Magnússyni, Eiríki Sigurðssyni og Þorkeli Jóhannessyni, auk Sigurðar Nordal, aðallega í tímaritinu Iðunni. Knut Hamsun var uppáhaldshöfundur þessara manna, og virðist Hamsun hafa verið vinsæll í landinu ef marka má tímaritsgreinar. Að sögn Þorkels Jóhannessonar ein- kenndust bækur hans af barnalegri hlýju og ákafa, djúpri tilfinningu fyrir náttúrunni og virðingu fyrir lífinu í öllum myndum þess ásamt rótgróinni andúð á allri tískumenningu og félagslegri hræsni. Allt þetta tjáir, að sögn hans, þrá Hamsuns eftir að ná hinni einu sönnu hamingju, sem felst í samstillingu allra glóandi krafta í honum sjálfum og í tilverunni allri (Iðunn 1926, 123). Talsmönnum nýju rómantíkurinnar virðist einkum hafa fallið Gróður jarðar eftir Hamsun vel í geð, en þar segir frá einyrkjanum ísak, sem 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.