Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Qupperneq 70

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Qupperneq 70
Tímarit Máls og menningar Lífsheimspekin var án efa tímabær á þeim árum þegar verkleg uppbygg- ing átti huga manna óskiptan í iðnaðarlöndum Evrópu, líkt og átti sér stað á uppbyggingartímanum 1904—1930 á Islandi. Engu að síður er það alveg rétt, sem Leo Löwenthal hefur sýnt fram á, að hamsúnisminn og lífs- heimspekin tengjast hugmyndafræði fasismans órofaböndum.1:’ Löwenthal fjallar meðal annars um hvaða hlutverki náttúrudýrkunin gegnir hjá Hamsun, þar sem náttúran er mikil og meiri en mannskepnan, sem stendur frammi fyrir henni og er hluti af henni. Þegar sjálfstæðisbaráttan krafðist þess á Islandi að náttúran væri rómuð, urðu lofgerðirnar óhjákvæmilega hjáróma á stundum, enda búa fáar vestrænar þjóðir við verri náttúruskilyrði en Islendingar. Samkvæmt Löwenthal lýsir myndin af hinum litla manni frammi fyrir ofurmagni náttúrunnar aðstöðu einstaklingsins í auðvaldskerf- inu, sem hann stendur máttvana frammi fyrir. Því verður ekki neitað að talið um Lífið og Manninn þjónaði oft þeim tilgangi að fela samfélagið og stéttirnar. Langvinnar deilur hafa staðið um pólitískar hugmyndir Hamsuns, og hér er ekki staður til að bæta við þær. Sama gildir um Nietzsche, en sem kunnugt er notuðu nasistar sér þætti úr kenningum hans.16 Þegar ræða á hugmyndafræði Sigurðar Nordal kemst maður ekki úr sporunum nema fjalla jafnframt um lífsheimspeki og nasisma. A Islandi átti nasismi í formi stjórnmálahreyfingar litlu fylgi að fagna, en þess meira áberandi voru vissir þættir úr hugmyndafræði hans í opinberri menningar- umræðu. Mjög margir höfundar hylltu menningu brenda í tímaritsgreinum og ræðum (Agúst H. Bjarnason, Sigurður Nordal, Guðmundur Finnboga- son, Eiríkur Albertsson, Árni Jónsson frá Múla), íslenski kynstofninn var rómaður (Guðmundur Hannesson, Guðmundur Finnbogason, Olafur Lár- usson), mannkynbótafratði var kynnt og lofuð (Guðmundur Finnbogason, Agúst H. Bjarnason, Eiður S. Kvaran), dulhyggja blómstraði í ótal trúar- kenningum (spíritismi, guðspeki, indverskir trúspekingar, Lao-tse o. fl.), stungið var upp á róttækum stjórnarfarsbreytingum í ólýðræðislega og andsósíalíska átt (Guðmundur Finnbogason, Guðmundur Hannesson), stéttabaráttan var hörmuð mjög eftir 1918 (Halldór Stefánsson, Jónas Jónsson frá Hriflu, Arni Pálsson) og sumir gerðu meira að segja landakröfur á hendur grannríkjum okkar (Einar Benediktsson). Höfundarnir sem hér eru nefndir í svigum voru yfirleitt áhrifamiklir og er upptalningin vitaskuld mjög langt frá því að vera tæmandi. Þessar hugmyndir, sem nefna má einu nafni þjóðernishyggju, voru megineinkenni íslensks menningarvettvangs á tímabilinu 1920-30. Eftir það dró úr henni, hún einangraðist og fjaraði út að kalla með smáflokkunum sem kenndu sig við hana. Þess vegna verða höf- undarnir sem boðuðu hana ekki kenndir við hina eiginlegu stjórnmálastefnu 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.