Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 72
Tímarit Máls og menningar 3. Sbr. Óskar Halldórsson, TMM 1978 318 — 19. Varðandi „núllstíl" má segja, að stílfræðingar hafa efast um tilvist hans m. a. vegna áhrifa frá formgerðastefnunni, til dæmis frá ritgerð Rolands Barthes: Le degré zéro de l’écriture (París 1953, 1968). Nordal virðist aðhyllast ekki einasta slagorðið Listin fyrir listina, heldur einnig Vísindin fyrir vísindin í Snorra Sturlusyni (sbr. bls. 217—19). 4. Fróðlegt er að bera saman þessi viðhorf og skoðanir annarra höfunda á millistríðsárunum. Halldór Laxness lagði t. d. ríka áherslu á að rithöfundar yrðu skilyrðislaust að kynna sér afreksverk heimsbókmenntanna, en sumir aðrir, t. d. Jakob Smári og Grétar Fells, töluðu um meðfæddar skáldgáfur. 5. Um þetta efni segir S.N. í Snorra Sturlusyni: „listaverk má dæma eftir því, hvort höfundurinn hefur náð tilgangi sínum með því eða ekki, án þess að fara nánar út í að meta þennan tilgang" (64). 6. I skáldskap S.N. eru, að því marki sem ég hef kynnt mér hann, þrjár megingreinar: dæmisagan (t. d. „Ferðin sem aldrei var farin“), smásagan/skopsagan (t. d. „Spekingurinn") og draumkennd táknsaga (t. d. „Hel“). Er ekki rúm til að ræða skáldskap hans frekar að sinni. 7. Þótt Sigurður geri greinarmun á því sem skáldið ætlar að segja og hinu sem verkið segir, á hann um margt skylt við svokallaða tjáningarfagurfrœði, sem skoðar verkið fyrst og fremst sem tjáningu listamanns á meira eða minna persónulegri reynslu. Tjáningarfagurfræðin var í rauninni að miklu leyti framhald á fagurfræði rómantíkurinnar, og helstu fulltrúar hennar eru Croce, Vossler og Spitzer. 8. Margir höfundar auk Lukácsar vildu láta „boðskapinn" vaxa saman við verkið (ef ekki hverfa alveg), og var þá oft talað um að verkið ætti að vera (lífræn) heild (organismi eða tótalitet). Að höfundur ætti frekar að sýna en segjafrá er skoðun sem tengist áróðri Henry James fyrir sjónarhornstækninni, sem var túlkaður skipulega af Percy Lubbock í The Craft of Fiction 1921.1 þeirri bók er aðgreining gerð milli þess að sýna og að segja frá (útg. New York 1973 , 62). Lubbock var meðal margra sem tóku „showing“ fram yfir „telling“. Aðgreining þessi er lík aðgreiningu Aristóteles- ar milli leikrænnar og frásagnarlegrar framsetningar í texta, en Wayne C. Booth hefur sýnt að vandasamara er að greina milli „showing" og „telling" en menn héldu á fyrstu áratugum aldarinnar. Sjónarhornstækni og það að sýna í stað þess að segja frá tengjast blekkingartækni skáldsöguformsins og áttu að auka trúverðugheit textans. Fræðimenn hafa sett fram tilgátur um að hinn „hlutlægi“ frásagnarháttur sjónar- hornstækninnar samsvari í einhverjum skilningi firringu og valdleysi nútímamanns- ins og því hve fjarri hann er því að hafa yfirsýn yfir samfélagið (hinn firrti maður hefur takmarkað sjónarhorn). Fylgismenn sjónarhornstækni vildu yfirleitt láta hugrenningar annarra en sögumanns lönd og leið og skrifa „hlutlægan" stíl, en aðalávinningur sjónarhornsfræða var að gera menn meðvitaða um möguleikana sem í breytileika sjónarhornsins liggja. Sigurður Nordal hefur sjálfsagt orðið fyrir áhrifum frá Lubbock og fylgismönnum hans, annars er einnig líklegt að hann hafi sótt þetta viðhorf til íslendingasagna. 9. I íslenskum tímaritum var vísað til trúarbragða Fornpersa (sbr. H.G.: „Verð- leikar bændastöðunnar" í Hlín 1929), sem þóttu afar merkileg, meðal annars fyrir þá hugmynd að í heiminum færu fram stöðug átök milli góðs og ills. Hins vegar man ég 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.