Ský - 01.04.2007, Síða 9

Ský - 01.04.2007, Síða 9
 sk‡ 9 Hvaða verkefni eru efst á baugi hjá þér um þessar mundir? Fyrir hvaða óperuhús ert þú að vinna núna? - Ég er bókaður fram til sumarsins 2008 við hin ýmsu verkefni. Öll eru þau ólík en mjög spennandi. Í sumar fer ég í tónleikaferð með San Biago-kórnum þar sem við troðum upp á einum átta tónleikum á Lombardia-svæðinu og endum ferðina í Romano-leikhúsinu í Verona. Í júní held ég tónleika með fílharmóníusveitinni á Scala í borginni Brescia og í haust syng ég óperuna Wozzeck eftir Alban Berg, í Róm. Þú vinnur við söngkennslu fyrir fólk sem er útskrifað. Er kennsla að vinda upp á sig hjá þér? - Já, þetta hefur undið skemmtilega upp á sig en kennslan hjá mér felst í „perfezionamento di canto“, sem má þýða sem kennsla í að samhæfa tækni, túlkun og ekki síst tjáningu. Hópurinn minn er alltaf að stækka og núna er ég með tíu nemendur sem ég hef valið sjálfur og sem ég tel eiga góða framtíðarmöguleika. Það má segja að kennslan hafi byrjað hjá mér óvart, fyrir nokkrum árum, þegar ég var beðinn um að vera með „masterclass“ í sumum óperuhúsunum þar sem ég var að syngja en þá var ég beðinn um að segja ungum söngvurum til. Hvaðan koma nemendur þínir? - Ég er með fólk alls staðar að úr Evrópu, meðal annars frá Finn- landi, Englandi, Ítalíu og fimm eru frá Íslandi en það er sérstaklega ánægjulegt að vera með samlanda sína. Það hefur komið mér skemmtilega á óvart hvað kennslan hefur gefið mér mikið en ég verð að viðurkenna að það eru forréttindi að geta valið nemendur sjálfur. Kennslan veldur því einnig að ég er raunverulega syngjandi alla daga og þá með nemendum mínum en mér finnst þeir halda mér ungum og hressum í anda. Segja má að kennslan og nemendur mínir, sem eru allir á besta aldri, 23-33 ára, haldi mér í formi bæði andlega og líkamlega og ekki síst listrænt. Hvernig er aðstaðan heima hjá þér fyrir söngkennsluna? - Ég hef mjög góða aðstöðu heima við en þar er ég með tveggja her- bergja stúdíó með sérinngangi og þar hef ég flygilinn minn, nótur og allt sem ég þarfnast til kennslunnar. Ég er með framúrskarandi sam- starfsmann, Matteo Falloni, en hann er mjög fær á sínu sviði, hvort heldur sem tónskáld, píanóleikari, undirleikari eða „opera-coach“. Samstarf okkar hófst þegar mig vantaði undirleikara og „opera- coach“ fyrir nokkrum árum og ég var að læra nýja óperu. Með okkur tókst mikil vinátta og afskaplega gott samstarf og hef ég lært allar óperur síðan með honum. Einnig samdi tónskáldið Matteo eitt af fallegri lögunum á síðustu plötunni minni. Matteo spilar undir hjá mér í kennslunni og þar er mikill fengur að honum því hann er mik- ill tungumálamaður og talar mjög góða frönsku og þýsku og er vel að sér í ítölskum, þýskum og frönskum óperustíl sem er mjög mikilvægt fyrir „opera-coach“. Óperustíll er breytilegur, eftir því hvort sunginn er Mozart, Verdi eða Puccini. Allar óperur og öll tónskáld eiga sinn lit og sína þyngd í tónlistinni og síðan eru textarnir einnig mismun- andi dramatískir þannig að það er mikilvægt að hafa kunnáttumann á þessu sviði. Viðtal Texti: Erla Gunnarsdóttir • Myndir: Úr einkasafni Kristján Jóhannsson óperusöngvari um ævistarfið: Hjarta mitt slær fyrir Kristján Jóhannsson óperusöngvari slær ekki slöku við frekar en fyrri daginn og hefur í nógu að snúast í kringum sönginn. Hér ræðir hann við Erlu Gunnarsdóttur um söngkennsluna, samskiptin við Vatíkanið, óperuumhverfið á Íslandi, matarást, rósina í hnappagatinu og skandalinn á Scala. SÖNGINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.