Ský - 01.04.2007, Side 27

Ský - 01.04.2007, Side 27
 sk‡ 27 Heimsóknir heimsleiðtoga Pompidou og Nixon komu til Íslands vorið 1973 til að ræða nýja Atlantshafssáttmála, bera saman bækur sínar og jafna ágreining um áherslur í varnarmálum. Báðar þjóðirnar eru í NATO, en Frakkar vildu fara sínar eigin leiðir innan bandalagsins. „God forsaken place“ eða – Guðs volaða land – átti Richard Nixon að hafa sagt þegar hann steig út úr flugvélinni á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins á fund sinn með Pompidou Frakklandsforseta. Kári Jónasson ritstjóri Fréttablaðsins var á þessum tíma nýbyrjaður á Útvarpinu og var í blaðamannamiðstöð- inni á Kjarvalsstöðum. Hann minnist fundarins: „Ég var líka í hjáverkum fréttaritari alþjóðlegu fréttastofunnar UPI - United Press International. Þeir sendu hingað her manns og í þeim hópi var meðal annars Helen Thomas, forsetafréttaritari UPI í Washington. Stuttu eftir að Nixon kom til landsins bað Helen mig að reyna að fá það staðfest að hann hefði talað um Guðs volaða land. Það gekk nú ekki vel. Bandaríkjamennirnir töluðu við landa sína sem voru við móttökuathöfnina og ég ræddi við Íslendinga sem þar voru. Þessi ummæli hefðu verið mikil móðgun við gest- gjafa fundarins, okkur Íslendinga, og við fengum þau aldrei staðfest.“ Kári heldur áfram: „Fyrir utan sjálft efni fundarins beindist athygli manna mjög að Pompidou, sem var orðinn sjúkur maður. Þegar hann gekk þessi fáu skref frá bílnum og inn á Kjarvalsstaði voru allir sammála um að það sæi á honum, enda lést hann ári eftir Íslandsferðina.“ Meðan á leiðtogafundinum stóð bjó Pompidou í húsi Alberts Guðmundssonar við Laufásveg, en hann var aðalræðismaður Frakka á Íslandi. Nixon bjó hins vegar í bandaríska sendiherrabústaðnum við Laufásveg, þaðan sem hann fór eitt kvöldið í göngutúr um miðborg Reykjavíkur, spjallaði brosandi við þá sem á vegi hans urðu og þótti maður við alþýðuskap. Hann entist þó ekki miklu betur í embætti en Pompidou því að hann sagði af sér embætti 8. ágúst 1974 í kjölfar Watergate-málsins. Georges Pompidou og Richard Nixon – 1973 Guðs volaða land Georges Pompidou og Richard Nixon framan við Kjarvalsstaði árið 1973.

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.