Ský - 01.04.2007, Síða 35

Ský - 01.04.2007, Síða 35
 sk‡ 35 Íþróttadópið Áslaug Sigurjónsdóttir, formaður lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ. „Það er orðið aðkallandi að fá tvo starfsmenn í 100% starf til þess að hægt sé að sinna þessu starfi af einhverri skynsemi. Ég tel orðið nauðsynlegt að þýða efni frá Norðurlöndunum, þar er af nógu að taka. Norðurlöndin standa mjög framarlega á þessu sviði, ekki síst Norðmenn, og fyrir Ólympíuleikana sem fara fram í Kína árið 2008 er í undirbúningi að gefa út sameiginlega bæklinga og efni. Nú heyrast einnig háværar kröfur um að allir sem fari til keppni á Ólympíuleikum gangist áður undir lyfjapróf.“ Mataræði sem inniheldur mikið af prótínum og orku (margar hitaeiningar) er ef til vill einnig mikilvægt til að hámarka árangur af steranotkun. Mikil hætta er á að notendur vefaukandi stera verði andlega háðir þeim. Þunglyndi og sjálfsmorðshugleiðingar eru algeng fráhvarfseinkenni þegar notkun er hætt. Notkun vefaukandi stera er mikil í Bandaríkjunum og eykst jafnt og þétt, ekki síst hjá stelpum og ungum konum. Einnig færist notkunin sífellt neðar í aldurshópa. Í könnun sem þar var gerð í júní árið 2000 viðurkenndu 5,2% stráka og 2,2% stelpna í 9.–12. bekk (14-18 ára) að þau notuðu stera. Ólíklegt er að ástandið hér sé sambærilegt. En nauðsynlegt er að vera á varðbergi. Á hádegisverðarfundi hjá ÍSÍ, sem haldinn var fyrir fyrir nokkrum mánuðum, kom fram að 60% þeirra sem taka þátt í fitness-keppnum á Íslandi falla á lyfjaprófi. Um 4,5% þeirra framhaldsskólanema sem stunda frjálsar íþróttir vikulega eða oftar hafa notað stera. Stera- notkun er mun algengari en notkun annarra vímuefna, eins og hass, amfetamíns og e-taflna hjá unglingum, samkvæmt niðurstöðu skýrslu sem lögð var fram á hádegisverðarfundinum. Allir í lyfjapróf Á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Gautaborg í sumar voru tekin 364 lyfjapróf. Þau reyndust öll vera neikvæð. Þrefalt fleiri lyfjapróf voru tekin á þessu Evrópumeistaramóti, en því síðasta fyrir 4 árum. Auk þessa var tekið 151 blóðsýni. Forseti Frjálsíþrótta- sambands Evrópu sagði að tekin hefðu verið þrefalt fleiri lyfjapróf nú og þau öll samkvæmt ítrustu kröfum WADA. En því miður gengur þetta ekki alltaf svona vel. Fleiri en 70 breskir frjálsíþróttamenn og konur hafa ekki mætt í lyfjapróf hjá eftirlitsmönnum breska lyfjaeftirlitsins á undanförnum misserum. Dave Collins, framkvæmdastjóri afreksnefndar breska frjálsíþróttasambandsins, segir í viðtali við BBC að nokkrir þeirra hafi ekki mætt tvívegis í röð í boðuð lyfjapróf en Christine Ohuruogu var á dögunum kippt út úr breska frjálsíþróttaliðinu fyrir að hafa ekki mætt þrívegis í boðað lyfjapróf. Ohuruogu átti að keppa í 400 metra hlaupi kvenna á Evrópumeistaramótinu í Gautaborg. Ohuruogu hafði ekki mætt í lyfjapróf utan keppni und- anfarna 18 mánuði og á yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann. Hún segir að æfingaáætlun sem hún vann eftir hafi ekki gert sér kleift að mæta í lyfjaprófin á tilsettum tíma. Þekktir hérlendir íþróttamenn hafa fallið Hér heima hafa þekktir íþróttamenn fallið á lyfjaprófi, þ.e. nið- urstöðurnar hafa reynst jákvæðar. Íslandsmeistari í kringlukasti mældist tvívegis jákvæður sem gerði að mestu út af við hans keppnis- feril. Hann tók þá til við þjálfun og hefur undanfarin misseri verið landsliðsþjálfari erlendis. Mjög efnilegur spretthlaupari sem miklar vonir voru bundnar við fór til keppni erlendis 1993 til keppni í 60 metra hlaupi innan- húss. Hann fór í lyfjapróf sem reyndist jákvætt og einnig gerði hann ógilt í hlaupinu. Niðurstaðan af lyfjamisnotkuninni var því dapurleg, keppnisbann og engin keppni á erlendri grund. Hann hélt áfram að æfa, en hefur ekki keppt opinberlega síðan. Þekktur handboltamaður féll á lyfjaprófi vegna neyslu kókaíns. Hann hélt áfram að æfa meðan á keppnisbanninu stóð, en skipti síðan um félag og keppti með því nokkur keppnistímabil. Nýlega voru fjórir keppendur íþróttafélagsins Þróttar í Vogum boðaðir í lyfjapróf eftir leik í bikarkeppni í handbolta. Þrír þeirra létu sig hverfa í miðjum leik en sá fjórði fór í lyfjaprófið eftir leik- inn. Niðurstöður eru ekki komnar. Leikmenn Þróttar komu úr ýmsum íþróttafélögum og íþróttagreinum, sumir landsliðsmenn í öðrum íþróttagreinum. Þremenningarnir hljóta væntanlega leik- bann, en orðstír íþróttafélagsins hefur beðið mikinn hnekki og það vegna eins handboltaleiks og leikmanna sem að öllu jöfnu keppa ekki fyrir félagið. En niðurstöðurnar eru mun oftar neikvæðar. Til dæmis mætti Lyfjaeftirlitsnefnd fyrir skömmu á æfingu karlalandsliðsins í körfuknattleik og tók leikmenn liðsins í lyfjapróf. Niðurstöðurnar reyndist neikvæðar hjá öllum leikmönnunum. Að sjálfsögðu geta landsliðsmenn sem og aðrir leikmenn átt von á lyfjaeftirliti án fyrirvara á æfingum eða í keppni hvenær sem er. Stundum á sér líka stað einhver klaufaskapur, líkt og þegar leikmaður Breiðabliks í knattspyrnu kvenna mætti ekki í lyfjapróf í London í haust vegna þess að hún sat uppi í stúku og vissi ekki að hún hafi verið boðuð. Þar er trassaskap fararstjóra um að kenna. sky ,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.