Ský - 01.04.2007, Page 43

Ský - 01.04.2007, Page 43
 sk‡ 43 inni frá og sameina jafnaðarmenn voru vægast sagt litlir kærleikar á milli hans og forystumanna Alþýðubandalagsins,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur í bókinni Völundarhús valdsins þar sem segir frá stjórnarmyndunum í forsetatíð Kristjáns Eldjárns. Það var líka umdeilt í Framsóknarflokknum hvaða leið skyldi valin, þótt ráðandi öfl í flokknum væru áfram um að komast í ríkisstjórn eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Þannig voru ýmsir í ungliðahreyfingu Framsóknarflokksins, menn eins og Ólafur Ragnar Grímsson, rétt eins og menn í Samtökunum áfram um að „ ... brjóta upp flokkaskipunina og mynda einn stóran og öflugan vinstri flokk – áður en gengið yrði frá myndun ríkisstjórnar. Var það óraunsætt því slíkt gerist ekki með skjótum hætti í reynd, en myndun nýrrar ríkisstjórnar var mjög aðkallandi,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson í sögu Eysteins ráðherra Jónssonar, Eysteinn í stormi og stillu. Varnarlið, landhelgi og skuttogarar Heill mánuður leið frá kosningum vorið 1971 uns tókst að koma saman starfhæfri ríkisstjórn. Þá höfðu Samtök frjálslyndra og vinstri manna horft til hægri og vinstri á víxl, en niðurstaðan varð vinstri stjórn Framsóknar, Alþýðubandalags og Samtakanna undir forsæti Ólafs Jóhannessonar. Hún tók við völdum 14. júlí. Fyrir hönd Sam- takanna settust í ríkisstjórn þeir Hannibal, sem varð félagsmála- og samgönguráðherra, og Magnús Torfi fór í menntamálaráðuneytið. Var gengið svo frá málum að Hannibal yrði ráðherra fyrsta kastið en Björn Jónsson tæki svo við keflinu „ ... þegar hæfilega þætti liðið á kjörtímabilið,“ eins og Magnús Torfi segir í afmælisriti Ólafs Jóhann- essonar, Ólafsbók. Þrjú mál bar öðrum hærra í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, Ólafskveri sem einhverjir nefndu svo. Þau voru að varnarliðið færi úr landi og landhelgin yrði færð út í fimmtíu mílur. Byggðamálin voru einnig áberandi, ekki síst skuttogaravæðingin svonefnda. Hún hafði hafist skömmu áður en nú kom skuttogari í nánast hvert þorp. Útfærsla landhelginnar var samþykkt með 60 samhljóða atkvæðum á Alþingi og hrint í framkvæmd með tilheyrandi þorskastríði við Breta. Varnarliðið fór hins vegar hvergi, enda studdu margir innan Framsóknarflokksins veru þess. Sömuleiðis hafði undirskriftasöfn- unin Varið land og andstaða ýmissa borgaralegra afla við fyrirhugaða brottför hersins mikil áhrif á viðhorf almennings í hermálinu. Rumpulýður og aulabárðar Eftir á að hyggja „ ... virðist mér enginn vafi á að upp hafi verið lagt til stjórnarsamstarfsins 1971 af helst til mikilli bjartsýni á getuna að ráða framvindu efnahagsmála,“ segir Magnús Torfi í Ólafsbók. Verðbólga jókst mjög og Vestmannaeyjagosið dró ekki úr hræringum í efnahagsmálum. Verðbólgan fór á meiri hraða en við varð ráðið. Björn Jónsson, sem varð ráðherra sumarið 1973 þegar Hannibal dró sig í hlé, sat ekki í ráðherrastól nema tæpt ár því þegar kom að því að grípa þyrfti til ráðstafana í efnahagsmálum taldi hann sig ekki geta stutt stjórnina lengur og baðst lausnar. Varð úr að þrír af fimm Hannibalistar og Hulduher Feðgarnir Jón Baldvin og Hannibal. Hannibal var forystu- maður í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Bjarni Guðnason er þekktastur fyrir „rumpulýðs“-ræðu sína árið 1974.

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.